



Fahrenheit 451
990 kr.Í þessari mögnuðu framtíðarskáldsögu hefur gagnvirkt sjónvarp náð yfirráðum yfir mannlífinu. Bækur eru bannaðar. Aðalsöguhetjan, Montag, gengur til vinnu sinnar á hverjum degi. Starf hans felst í því að uppræta hættulegustu ógn samfélagsins, hið prentaða orð, með því að brenna allar bækur sem finnast og húsin þar sem þær hafa leynst. Dag einn kynnist Montag sérviturri stúlku sem kynnir fyrir honum fortíð þar sem fólk lifði ekki í ótta og bækur voru lesnar. Smám saman fer Montag að endurskoða allt sem honum hefur verið kennt – með ógnvænlegum afleiðingum.
Fahrenheit 451 er jafnan talið meistaraverk bandaríska rithöfundarins Ray Bradburys (1920-2012) sem er þekktur fyrir vísindaskáldsögur sínar.
„Afburðasnjöll … Bradbury dregur upp áhrifamikla mynd af brjálæðislegum heimi sem er kvíðvænlega líkur okkar eigin.“
THE NEW YORK TIMES„Dýrleg amerísk klassík sem allir ættu að lesa.“
THE BOSTON GLOBE„Frábær sögumaður.“
THE WASHINGTON POST











Glæsir
1.290 kr.Aleinn í myrku fjósi flytur hann sjálfum sér eigin ævisögu um væntingar og svik, heiður og vansæmd, einmanaleik og botnlausa óhamingju. En hver er hann sem á svo harmræna fortíð að baki er hann þessa heims eða annars, forynja eða tröll – eða aðeins vesæl skepna?
Og Glæsir hefur marga fjöruna sopið. Hann heyr harða glímu við sjálfan sig og einn og yfir- gefinn gerir hann upp líf sitt og nöturleg örlög.
Í þessari nýstárlegu skáldsögu tekst ÁRMANN JAKOBSSON á við sagnaarfinn og þjóðsögurnar á afar frumlegan hátt. Sagan um Glæsi er í senn dramatísk og neistandi fyndin en umfram allt barmafull af tilfinningum.




