


Persónur og leikendur
1.290 kr.PERSÓNUR OG LEIKENDUR er sjálfstæð skáldsaga í flokki sem hófst með PUNKTUR PUNKTUR KOMMA STRIK og ÉG UM MIG FRÁ MÉR TIL MÍN.
PERSÓNUR OG LEIKENDUR: Laxness, Hemingway, Steinn Elliði, Peter O’Toole ANDRI HARALDSSON. Diljá, Katrín, Hadley, Audrey Hepburn – BYLGJA ÆGISDÓTTIR. París er leikin af Reykjavík. Sögusviðið er Menntaskólinn, Borgin, Glaumbær, Vefarinn mikli frá Kasmír, síldarþorp úti á landi, Veisla í farángrinum. Þingvellir, m/s Gullfoss og París. Viðreisnarárin eru að telja út og síldarævintýrið á útgönguversinu. Andra dreymir um að komast á rétta hillu í bókaskápnum en kvenfólkið setur strik í reikninginn…
Punktur punktur komma strik
1.990 kr.Pétur Gunnarsson er fæddur í tvíburamerkinu 15. júní 1947. Hann byrjaði ungur að skrifa en ekki er að sjá að honum hafi farið mikið fram. Ljóðabókin „Splunkunýr dagur“ sem kom út 1973 var afleit. Hér birtir hann skáldsöguna „Punktur punktur komma strik“ sem hann hefur lesið úr með Listaskáldunum vondu og er eins víst að megninu sé stolið úr óvæntum áttum. Pétur reynir mikið að vera fyndinn og mest er það háð og grátt gaman um fólk sem hefur reynst honum vel og lýsir það innrætinu. Þó kastar tólfunum þegar höfundur byrjar að klæmast og eru oft áhöld um hvort hann sé með öllum mjalla, en þar sem virkilega er stungin tólg, bendir flest til að Pétur hafi prófað sóðaskapinn á sjálfum sér og sést af þessu hvernig maðurinn er.
Gylfi Gíslason bogmaður, fæddur 19. desember 1940, myndskreytir bókina og er ljótt af honum að bæta þannig gráu ofan á svart.








Aldrei nema vinnukona
1.290 kr.Aldrei nema vinnukona er sjálfstætt framhald bókarinnar Aldrei nema kona sem kom út 2020.
Höfundurinn, Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, hefur þýtt bækur og sjónvarpsefni auk þess að gefa út söguna Aldrei nema kona. Sú bók hefur notið mikilla vinsælda, einkum fyrir glögga mynd af kjörum kvenna á 18. og 19. öld.
Eins og í fyrri bókinni eru öll nöfn, tímasetningar og stærri viðburðir sannleikanum samkvæmir og stuðst við bréf og opinber skjalagögn auk ýmissa rita og vefsíðna sem fjalla um þennan tíma.
Í þessari bók fer fram tvennum sögum, af ferðinni frá Íslandi til Ameríku og minningarbrotum Þuríðar Guðmundsdóttur úr vistum í Skagafirði og Húnavatnssýslum.
