

The City and The House
3.690 kr.Giuseppe is leaving his flat in the city of Rome, where he has lived for more than twenty years, to go and live with his brother in America. He must say goodbye to his cousin Roberta; to his former lover Lucrezia and her husband Piero; and to all his friends who used to gather for weekends at Le Margherite, Lucrezia’s splendid house in the country. But even before Giuseppe’s departure, friendships have begun to fracture as frustrated yearnings and past infidelities strain the bonds.
The sale of Le Margherite marks the end of an era and its old inhabitants and visitors are left to pursue happiness on their own. Their stories unfold through an exchange of letters that reveal with great poignancy the thoughts, passions and desires of the protagonists.

Flóra
5.990 kr.Flóra geymir myndir af flestöllum tegundum íslenskra blómplantna og byrkninga, alls um 460. Hér er megináherslan á að sýna plönturnar sjálfar, fegurð þeirra og sérkenni, fremur en vistfræði, útbreiðslu og flokkunarfræði – því hlutverki gegna fjölmörg önnur verk. Langflestar myndanna eru gerðar eftir lifandi eintökum en annars byggt á bestu heimildum sem völ er á til að gefa sem sannferðugasta mynd af hverri tegund auk þess sem ýmis einkenni eru dregin fram.
Myndir listamannsins Jóns Baldurs Hlíðberg af íslenskri náttúru, dýrum og foldarskarti, eru löngu kunnar hér á landi auk þess að hafa birst víða erlendis og hlotið þar margháttaða viðurkenningu.
Fátt jafnast á við að njóta skrúðs og fjölbreytileika blómanna í náttúrunni sjálfri en þegar því verður ekki við komið er gott að geta notið þeirra í myndasafni eins og því sem hér birtist.


On Cats: An Anthology
4.390 kr.In these pages, writers reflect on the curious feline qualities that inspire such devotion in their owners, even when it seems one-sided. Cats’ affections are hard-won and often fickle. Freud considered his cat an embodiment of true egoism; Hilaire Belloc found peace in his feline companion’s complacency; and Hemingway—a famous cat-lover—wrote of drinking with his eleven cats and the pleasant distraction they gave him.
Edward Gorey can’t turn down a stray despite the trouble they cause him, and admits he has no idea what they’re thinking about; Muriel Spark gives practical advice on how to teach a cat to play ping-pong; Nikola Tesla, who helped design the modern electricity supply system, describes a seminal experience with a cat that first sparked his fascination with electricity; and Caitlin Moran considers the unexpected feelings of loss after the death of her family cat.
These writers, and many others (including Mary Gaitskill, Alice Walker, Ursula K. Le Guin, John Keats, James Bowen, Lynne Truss, and more), paint a joyful portrait of cats and their mysterious and loveable ways. As Hemingway wrote, “one cat leads to another.” The book features six black-and-white cat portraits by photographer Elliot Ross.


Creation Lake
3.490 kr.This summer, meet Sadie Smith: seductive, cunning and going undercover – the Booker-shortlisted, wickedly entertaining New York Times bestseller.

Rósa og Björk
4.690 kr.Hvað varð um Rósu og Björk, yngri systur lögreglukonunnar Hildar, sem hurfu fyrir vestan árið 1994? Í öll þau ár sem liðin eru hefur ekkert til þeirra spurst en nú er Hildur loks komin á spor sem gæti leitt hana áleiðis að lausn gátunnar. Það þarf samt kjark til að horfast í augu við fortíðina …
Lögreglulífið á Ísafirði er líka allt annað en rólegt og lítill tími til að sinna öðru. Einn af máttarstólpum bæjarins, athafnamaður sem situr í sveitarstjórn, er skotinn til bana uppi í fjalli og Hildur og félagar eru ráðþrota. Hinn myrti var umdeildur, tókst á við pólitíska andstæðinga og einkalífið var skrautlegt svo að ýmsir gætu hafa viljað hann feigan. Og um götur Reykjavíkur reikar manneskja sem á harma að hefna.
Satu Rämö hefur slegið í gegn með bókunum um hina vestfirsku Hildi. Satu er finnsk en hefur búið lengi á Íslandi. Glæpasögur hennar hafa selst í bílförmum í Finnlandi, Þýskalandi og víðar. Sú fyrsta, Hildur, varð metsölubók hér heima – Rósa og Björk er æsispennandi framhald.
Erla Elíasdóttir Völudóttir þýddi.

Tímaráðuneytið
4.690 kr.Ung kona sækir um háleynilegt og vellaunað starf á vegum hins opinbera í Bretlandi. Hún er ráðin og í ljós kemur að það tengist tímaferðalagsverkefni stjórnvalda sem reynist svo yfirgripsmikið að það þarfnast sérstaks ráðuneytis; tímaráðuneytis. Starfið felst í því að taka á móti einstaklingum sem hafa verið fluttir til nútímans frá fortíðinni og sjóliðsforinginn Graham Gore, þekktur nítjándu aldar maður sem tók þátt í frægum heimskautaleiðangri á skipinu Erebus, er fyrsti brottflutti einstaklingurinn sem hún aðstoðar við að aðlagast nútímanum. Brátt takast með þeim eldheitar ástir.
Tímaráðuneytið er allt í senn spennandi njósnatryllir, falleg ástarsaga sveipuð vísindaskáldsöguljóma og áleitin og djúp frásögn um það að tilheyra tilteknum stað og tíma. Þetta er fyrsta saga Kaliane Bradley og hefur hún slegið rækilega í gegn víða um heim. Hún var á metsölulista New York Times og valin besta bók ársins 2024 af ýmsum miðlum.

Jarðtengd norðurljós
4.590 kr.Jarðtengd norðurljós inniheldur áður óbirt ljóð af ýmsu tagi, óbundin, háttbundin og yrkisefnin fjölbreytileg.

Eldri konur
4.590 kr.Ég hef alltaf verið rótlaus og vannærð. Þegar ég kynntist áfengi fannst mér eins og ég væri gróðursett í sólríkan lund. Tilveran fékk á sig fagurgulan blæ eins og horft væri gegnum litað gler. Allt varð bærilegra. Fljótlega fór ég þó út í harðara efni.
Efnið mitt gerir mig heila, fyllir mig krafti, lífi, fær mig til að engjast um af fráhvörfum og þráhyggju, lemja, slá, fær mig umsvifalaust til að steypa mér í glötun.
Efnið mitt er eldri konur.
Ung kona gefur rapport af þráhyggju sinni fyrir eldri konum og rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsára gegnum frásagnir af konum sem hafa heltekið hana.
Eldri konur er röntgenmynd af ástandi. Við kynnumst konunni með ólíkum brotum af sögu hennar, uppvexti í flóknum heimilisaðstæðum, mismunandi vinnustöðum, vináttu, ástum, sigrum og ósigrum.

Himintungl yfir heimsins ystu brún (kilja)
4.590 kr.Hvort er mikilvægara, að segja sannleikann eða vernda þá sem maður elskar? Árið er 1615, og veröldin er gengin úr lagi, því jörðin er ekki lengur miðdepill alheimsins. Presturinn Pétur á Meyjarhóli skrifar bréf – eða skýrslu, jafnvel ákæruskjal – til að henda reiður á atburðum sem hafa skekið sveitina á Brúnasandi og kippt stoðum undan tilveru hans og ástvina hans.
Himintungl yfir heimsins ystu brún er saga sem talar til samtímans aftan úr öldum, um ástina, mennskuna og ábyrgðina sem við berum hvert á öðru. Hún dregur upp ljóslifandi mynd af opinni, forvitinni og ástríðufullri öld, þar sem ný vísindi takast á við trúna, og penninn er beittari en sverðið.
Jón Kalman Stefánsson er fæddur árið 1963. Himintungl yfir heimsins ystu brún er hans fimmtánda skáldsaga. Fjarvera þín er myrkur (2020) hlaut virt frönsk verðlaun LePoint og France Inter sem besta þýdda skáldsagan vorið 2022. Jón Kalman hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2005 fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin.
Bækur hans hafa verið þýddar á yfir 30 tungumál.
