- -15%

Mið-Austurlönd – fortíð, nútíð og framtíð
Original price was: 6.990 kr..5.942 kr.Current price is: 5.942 kr..Mið-Austurlönd – sem afmarkast af Egyptalandi í vestri, Íran í austri, Tyrklandi í norðri og Jemen í suðri – eru einhver mesti suðupottur okkar tíma og hafa raunar verið um áratugaskeið. Nær daglega flytja fjölmiðlar þaðan fréttir af stríðshörmungum, kvennakúgun, misskiptingu og neyð. Um leið hafa víglínurnar færst óþægilega nærri Vesturlöndum – hryðjuverk í nágrannalöndum okkar og straumur flóttafólks meinar okkur að loka augunum fyrir ástandinu.Ýmis vandamál Mið-Austurlanda eiga rætur í tíðum og víðtækum afskiptum Vesturlanda af þessum heimshluta í fortíð og nútíð. Fleira kemur þó til því íbúar svæðisins hafa á síðastliðnum hundrað árum beitt ýmsum aðferðum til að finna hinn gullna meðalveg hefðar og nútíma, sjálfstæðis og jafnréttis, ofbeldis og framfara, trúfrelsis og einstaklingsfrelsis.Þessi þýðingarmikla bók kom fyrst út árið 2018, hlaut þá einstakar viðtökur og hefur ítrekað verið endurprentuð. Hér er um nýja útgáfu að ræða þar sem síðustu vendingum sögunnar eru gerð skil, meðal annars atburðum á Gaza, þróun mála í Sýrlandi og borgarastríði í Jemen.Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts og gistikennari við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, er helsti sérfræðingur okkar í sögu þessa svæðis. Hér fjallar hann um öll meginstefin í sögu Mið-Austurlanda á yfirvegaðan og aðgengilegan hátt. - -15%

Irpa
Original price was: 4.990 kr..4.242 kr.Current price is: 4.242 kr..Eftir ítrekuð fósturlát þráir Edda tilbreytingu. Hún er orðin þreytt á vinnunni, íbúðinni, matarboðunum með vinkonunum og eilífum óléttutilkynningum þeirra … öllu. Þegar hún sér litla eyju á Austfjörðum auglýsta til sölu sannfærir hún Atla um að þar geti þau byrjað nýtt líf.
Á Varpey vex allt og dafnar, björgin eru full af fugli, brekkurnar þaktar berjalyngi og hafið í kring krökkt af fiski. Edda og Atli koma sér fyrir í litla íbúðarhúsinu og hefjast handa við að breyta hlöðunni í gistiheimili. Þegar Edda tekur að sjá hvítklæddri konu bregða fyrir telur hún fyrst að sér hljóti að hafa missýnst. Smám saman verður hún þó sannfærð um að þau séu ekki ein á eyjunni heldur deili henni með einhverjum sem vilji þeim illt, einhverjum sem hefur bæði líf og dauða í hendi sér.
Hildur Knútsdóttir er einn virtasti ungmennabókahöfundur landsins en hún hefur einnig slegið í gegn með nóvellum sínum fyrir fullorðna, ekki síst í hinum enskumælandi heimi. The New York Times útnefndi Myrkrið milli stjarnanna eina af tíu bestu hrollvekjum ársins 2024 og bókin hefur jafnframt verið tilnefnd til bæði Dublin-bókmenntaverðlaunanna og World Fantasy-verðlaunanna. Kvikmyndarétturinn að bæði þeirri bók og Irpu hefur auk þess verið seldur til erlendra framleiðslufyrirtækja.
- -15%

- -15%

- -15%

- -15%

- -15%

Sjáið okkur dansa
Original price was: 990 kr..842 kr.Current price is: 842 kr..Aisha er augasteinn foreldra sinna, marokkóska landeigandans Amins og Mathilde sem kemur frá Alsace í Frakklandi og hefur fylgt manni sínum til þessa framandi lands. Aisha stefnir á að verða læknir og ekkert truflar það, ekki einu sinni þegar hún verður ástfangin af ungum hagfræðingi sem lítur út og hugsar eins og Karl Marx. Aðrir í fjölskyldunni glíma við flóknari vandamál í lífi og ástum enda miklir umbrotatímar í Marokkó á sjöunda áratug 20. aldar. Vestrænir hippar flæða inn í landið og mikil ólga er í þjóðlífinu vegna misskiptingar, harðstjórnar og togstreitu milli gamalla og nýrra gilda.
Sjáið okkur dansa er annað bindið í þríleik Leïlu Slimani sem hún byggir á ættarsögu sinni en fyrsta bókin, Í landi annarra, kom út á íslensku árið 2021 og var afar vel tekið.
Friðrik Rafnsson þýddi.
- -15%

Í landi annarra
Original price was: 990 kr..842 kr.Current price is: 842 kr..Í landi annarra er hjartnæm og hrífandi skáldsaga sem dregur upp ljóslifandi mynd af marokkósku samfélagi á árum sjálfstæðisbaráttunnar. Þetta er fyrsta bókin í þríleik sem byggður er á ættarsögu höfundarins.
Örlög Mathilde ráðast í lok síðari heimsstyrjaldarinnar þegar frönsk herdeild nýlendubúa hefur viðdvöl í þorpinu hennar í Alsace. Myndarlegur liðsforingi frá Marokkó fangar hug hennar og hjarta og þegar stríðinu lýkur fylgir hún honum til heimalandsins. Með ástina og hugrekkið að vopni tekst hún á við framandi samfélag í hrjóstrugu landi þar sem ungu hjónin mæta erfiðleikum og fordómum – bæði af hendi innfæddra og frönsku nýlenduherranna.
Leïla Slimani ólst upp í Marokkó en býr í Frakklandi. Hún sló í gegn með Barnagælu, magnaðri glæpaskáldsögu sem hlaut hin virtu Goncourt-verðlaun, varð metsölubók og hefur komið út víða um heim, meðal annars hér á landi.
Friðrik Rafnsson þýddi.
- -15%

- -15%

Dagar mínir í Morisaki-bókabúðinni
Original price was: 4.790 kr..4.072 kr.Current price is: 4.072 kr..Þegar Takako missir í einu vetfangi kærastann, vinnuna og trúna á sjálfa sig, býðst henni óvænt skjól hjá sérvitringnum frænda sínum í lítilli fornbókabúð í Tókýó. Jimbocho-hverfið iðar af lífi, ágeng kryddangan er í loftinu og neonljós borgarinnar flökta stöðugt en í Morisaki-bókabúðinni opnast annar heimur – kyrrlátur, hlýr og fullur af sögum. Þar hefst heillandi ferðalag sem á eftir að umbreyta lífi Takako.
Dagar mínir í Morisaki-bókabúðinni er seiðandi saga um vináttu sem sprettur á ólíklegustu stöðum, sérkennilega fastagesti og ómótstæðilega japanska menningu.
Satoshi Yagisawa hlaut verðskuldaða athygli fyrir þessa hrífandi sögu sem hefur komið út víða um heim og var kvikmynduð í Japan. - -15%

The Oresteia
Original price was: 3.990 kr..3.392 kr.Current price is: 3.392 kr..In the Oresteia Aeschylus addressed the bloody chain of murder and revenge within the royal family of Argos. As they move from darkness to light, from rage to self-governance, from primitive ritual to civilized institution, their spirit of struggle and regeneration becomes an everlasting song of celebration. In Agamemnon, a king’s decision to sacrifice his daughter and turn the tide of war inflicts lasting damage on his family, culminating in a terrible act of retribution; The Libation Bearers deals with the aftermath of Clytemnestra’s regicide, as her son Orestes sets out to avenge his father’s death; and in The Eumenides, Orestes is tormented by supernatural powers that can never be appeased. Forming an elegant and subtle discourse on the emergence of Athenian democracy out of a period of chaos and destruction, The Oresteia is a compelling tragedy of the tensions between our obligations to our families and the laws that bind us together as a society.
The only trilogy in Greek drama that survives from antiquity, Aeschylus’ The Oresteia is translated by Robert Fagles with an introduction, notes and glossary written in collaboration with W.B. Stanford in Penguin Classics.
For more than seventy years, Penguin has been the leading publisher of classic literature in the English-speaking world. With more than 1,700 titles, Penguin Classics represents a global bookshelf of the best works throughout history and across genres and disciplines. Readers trust the series to provide authoritative texts enhanced by introductions and notes by distinguished scholars and contemporary authors, as well as up-to-date translations by award-winning translators.
- -15%

Bluets
Original price was: 3.990 kr..3.392 kr.Current price is: 3.392 kr..Bluets winds its way through depression, divinity, alcohol, and desire, visiting along the way with famous blue figures, including Joni Mitchell, Billie Holiday, Yves Klein, Leonard Cohen and Andy Warhol. While its narrator sets out to construct a sort of ‘pillow book’ about her lifelong obsession with the colour blue, she ends up facing down both the painful end of an affair and the grievous injury of a dear friend. The combination produces a raw, cerebral work devoted to the inextricability of pleasure and pain, and to the question of what role, if any, aesthetic beauty can play in times of great heartache or grief.
Much like Roland Barthes’s A Lover’s Discourse, Bluets has passed between lovers in the ecstasy of new love, and been pressed into the hands of the heartbroken. Visceral, learned, and acutely lucid, Bluets is a slim feat of literary innovation and grace, never before published in the UK.
