 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 - Stór olíuskip1.490 kr.- Ljóðabókin Stór olíuskip eftir Jónas Reyni Gunnarsson er handhafi Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar árið 2017. - Stór olíuskip er sterkt og fallegt verk. Ljóðin eru stílhrein og myndmálið ferskt og grípandi. Heildarmyndin er fimlega smíðuð og kallar á endurlestur; stóru olíuskipin sigla inn og út um vitund lesandans og skilja eftir sig fínlegt kjölfar tilfinninga sem spanna allt frá depurð og eftirsjá til hógværs fagnaðar. - — úr umsögn dómnefndar við afhendingar Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 
 
 
 
 
 
 
 
 
 - Ljóð vega gerð4.990 kr.- Ljóð vega gerð er þriðja og síðasta bindi Ljóðvegasafns Sigurðar Pálssonar. Hann vakti snemma athygli fyrir persónulegan og ferskan ljóðstíl. - Fyrri bækur hans tvær, Ljóð vega salt og Ljóð vega menn eru meðal þess lífvænlegasta í íslenskum skáldskap síðustu ára. Í þessari nýju bók eru eins og í hinum fyrri ljóðaflokkar þar sem mismargar atrennur eru gerðar að einhverju heildarviðfangsefni enda þótt hvert ljóð standi sem sjálfstæð heild. - Yrkisefnin eru fjölbreytt og skírskotanir margvíslegar. Við sjáum að bernskuslóðir, höfuðborg og heimsborg eru enn á sínum stað og sömuleiðis hugsun Sigurðar um tíma og rými og ferðalag í margs konar skilningi. - Tungumálið er krafið sagna um sjálft sig og okkur hin og vegferð okkar á ljóðvegum. 
 
 
