
The Use of Photography
3.990 kr.The Use of Photography recounts a passionate love affair between Annie Ernaux and the journalist and author Marc Marie, after the two met in January 2003. Ernaux had been receiving intensive chemo for breast cancer during the prior three months, and had lost all her hair from the treatments. At the end of January she had surgery, followed by radiation therapy.
The affair took place in different locations and Ernaux describes how, shortly after it began, she found herself entranced each morning by the sight of clothes strewn about, chairs out of place and the remains of their last meal of the evening still on the table – and how painful it felt to put things back in order afterwards. She went and got her camera, and began to take photographs of the scenes of disarray. When she told Marc Marie what she had done, he said he had felt the same desire.
Translated by Alison L. Strayer into English for the first time, The Use of Photography is an extraordinary meditation on eroticism, photography and writing, a major work by the 2022 Nobel Prize in Literature laureate.




Mörk – saga mömmu
1.290 kr.„Hann opnar hlerann og ég veit að ég þarf að stíga inn … geng varlega niður brattan stigann sem liggur ofan í kolakjallarann og fer með bænir í hljóði. Hér er niðamyrkur og köld saggalykt. Hleranum er skellt aftur og svo gerist það sem ég hef reynt hálfa ævina að gleyma.
Vel falið leyndarmál fylgir Guðbjörgu Þórisdóttur alla tíð og vofa þess skýtur upp kollinum þegar síst skyldi, allt þar til hún á fullorðinsaldri ákveður að segja skilið við hana fyrir fullt og allt. Nú hefur dóttir hennar, Þóra Karítas Árnadóttir, skrifað sögu litlu stúlkunnar sem vissi ekki hve óeðlilegt var „að búa í tveimur aðskildum heimum, himnaríki og helvíti, í einu og sama húsinu “.
Mörk er fyrsta bók höfundar sem dregur hér upp mynd af lífi móður sinnar sem elst upp í hlýjum faðmi stórrar fjölskyldu, en undir niðri kraumar sá hryllingur sem ekkert barn á að þurfa að þola.



Að deyja frá betri heimi: ævisaga Jónasar Kristjánssonar læknis
1.290 kr.Jónas Kristjánsson sór þess dýran eið að gerast læknir þegar móðir hans dó frá átta börnum í torfbæ í Svínadal árið 1881. Þá var hann 11 ára að aldri. Faðir hans lést nokkru síðar eftir fádæma harðindi, fjölskyldan var leyst upp og flest fóru til Vesturheims. Jónas barðist til mennta með miklu harðfylgi og útskrifaðist sem læknir um aldamótin. Á síðari hluta ævinnar áttu náttúrulækningar hug Jónasar allan. Hann vildi koma í veg fyrir sjúkdóma, frekar en að bregðast við þegar komið væri í óefni. Lífsstarfið var fullkomnað með opnun Heilsuhælisins í Hveragerði á 85 ára afmæli hans. Einstök saga af eldhuga sem barðist fyrir því að deyja frá betri heimi en hann þurfti að takast á við sem barn.
Pálmi Jónasson, sagnfræðingur og fréttamaður, skrifar hér sögu langafa síns. Hann byggir verkið á aragrúa heimilda og dregur þannig upp eftirminnilega

Vanþakkláti flóttamaðurinn
3.890 kr.Átta ára gömul flúði Dina Nayeri frá Íran ásamt kristinni móður sinni og bróður. Áratugum síðar skilgreinir hún sig enn út frá flóttanum. Í þessari bók fléttar hún saman sögur annarra flóttamanna og hælisleitenda á síðustu árum við sína eigin og varpar ljósi á ægivaldið sem felst í því að velja á hvern er hlustað. Einnig hverjum er trúað og hvernig ein saga er metin mikilvægari en önnur. Ómetanlegt innleg í umræðu um málefni flóttafólks.


Einu sinni var í austri – uppvaxtarsaga
3.590 kr.Uppvaxtarsaga kínverska rithöfundarins Xialou Guo (f. 1973) sem búsett hefur verið í Bretlandi í rúman áratug.
Bók sem kölluð hefur verið Villtir svanir nýrrar kynslóðar.
Hvernig er að vera listamaður þar sem ritskoðun drepur allan frumleika og það eina sem býðst er að skrifa léleg handrit að sápuóperum; hvernig er að vera kona í landi þar sem stúlkubörnum er ítrekað drekkt við fæðingu og kynferðisleg misnotkun er daglegt brauð; hvernig er hægt að elska þegar manni hefur aldrei verið kennt það.
Ingunn Snædal þýddi.

Dagbók frá Gaza
4.990 kr.Menningarmálaráðherra palestínskra stjórnvalda var að synda í sjónum þegar sprengjum tók að rigna yfir Gaza. Í stað þess að halda heim á Vesturbakkann ákváðu hann og sonur hans á unglingsaldri að halda kyrru fyrir, enda óraði þá ekki fyrir því sem koma skyldi. Með dagbókarskrifum sínum veitir Atef Abu Saif nístandi innsýn í baráttu Palestínumanna við að halda í lífi.
Palestínski rithöfundurinn Atef Abu Saif (f. 1973) hefur meðal annars skrifað skáldsögur, smásögur og bók um stjórnmál. Brot úr Dagbók frá Gaza hafa verið birt reglulega í vestrænum fjölmiðlum frá upphafi árása Ísraelshers á Gaza haustið 2023, og eru meðal mikilvægustu vitnisburða sem þaðan berast.
