• Dægradvöl

    Dægradvöl

    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Límonaði frá Díafani

    Límonaði frá Díafani

    Ella Stína er átta ára þegar hún fer út í heim með fjölskyldunni. Í Grikklandi er allt með öðrum brag en heima á Seltjarnarnesi; eðlur skjótast um veggi, mandarínur og ólífur vaxa á trjánum, geitur ganga um með bjöllur um hálsinn og örsmáu bænahúsin í hlíðinni hljóta að vera sérstaklega fyrir krakka. Ella Stína skottast um allt með yngri bræður sína en foreldrarnir eru yfirleitt uppteknir við skriftir. Löngu seinna kemur Ella Stína aftur til Grikklands, hvað er þá orðið af sólbökuðu fjölskyldunni sem eitt sinn var?

    Elísabet Jökulsdóttir hefur sent frá sér fjölda bóka en sló nú síðast í gegn með Saknaðarilmi og AprílsólarkuldaLímonaði frá Díafani kallast sterklega á við þessar bækur um leið og farið er með lesendur í heillandi könnunarferð um bernskuna undir grískri sól.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Norður í svalann

    Norður í svalann

    Sigurður Pálsson námstjóri sendir hér frá sér fyrstu bók sina ef frá eru taldar kennslubækur, m. a. í umferðarfræðum og kristnum fræðum. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1936, lauk kennaraprófi 1957 og BA-prófi í kristnum fræðum og uppeldisfræði 1978. Sigurður stundaði kennslu um margra ára skeið og var um tíma skrifstofustjóri Ríkisútgáfu námsbóka, en hefur frá 1977 verið námstjóri i kristnum fræðum. Kona hans er Jóhanna G. Möller og hefur hún aðstoðað við gerð þessarar bókar.

    Norður í svalann hefur að geyma viðtöl við fimm aðflutta Íslendinga. Þeir eru: Baltasar B. Samper listmálari, Ester Gunnarsson hjúkrunarfræðingur og húsmóðir, Carl Billich píanóleikari, Rut Magnúsdóttir organisti og húsmóðir og Einar Farestveit forstjóri. Viðtölin skráir Sigurður Pálsson námstjóri og segir hann m. a. svo í formála sínum að bókinni:

    Ekki veit ég hvort Íslendingar eru forvitnari um annarra hagi en almennt gerist. Ég veit heldur ekki hvort þeir eru forvitnari um álit annarra á landi og þjóð en tíðkast meðal þeirra sem annars staðar búa. Hitt veit ég, að þeir eru forvitnir um hvort tveggja. Þess vegna tók ég þetta verk að mér. Það myndi væntanlega svala forvitni minni og annarra, en ekki aðeins það, heldur gefa mér tækifæri til að gleðjast yfir nýjum kynnum og rifja upp gömul og deila þeirri gleði minni með öðrum.

    Ég kaus að skrifa í fyrstu persónu og láta viðmælendur mína hafa orðið án athugasemda eða spurninga af minni hálfu. Fingraför min sjást á framsetningunni en inntakið er þeirra. Þau opnuðu mér dyr, rifjuðu upp fyrir mig bernsku og æsku, áhrifavalda í lífi sínu, aðdragandann að komu sinni til Íslands, ástæður fyrir þvi að þau settust hér að fyrir fullt og allt og kynni sín af landi og lýð. Ég þakka þeim elskusemina og vona að ég hafi reynst trausts þeirra verður.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Útlaginn

    Útlaginn

    Jón Gunnar Kristinsson er nýfermdur pönkari í Reykjavík sem er sendur í skóla vestur að Núpi í Dýrafirði. Á meðan fjöllin sofa sínum eilífa svefni iðar allt annað af lífi og drengurinn sem snýr aftur tveimur árum seinna er orðinn maður. En enginn venjulegur maður. Enda var það ekkert venjulegt sem gerðist. Örlög útlagans eru óumflýjanleg. Við tekur stefnulaus ferð um borg óttans.

    Útlaginn er þriðja skáldævisaga Jóns Gnarr. Áður hafa komið út Indjáninn og Sjóræninginn. Hér rekur Jón sögu sína á aldrinum fjórtán til nítján ára af djúpri einlægni og alkunnum húmor. Með höfundur bókarinnar er Hrefna Lind Heimisdóttir.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Indjáninn

    Indjáninn

    Indjáninn er saga um fjörmikinn strák, örverpi aldraðra foreldra. Drengurinn á við ýmis vandamál að stríða sem valda honum erfiðleikum í uppvextinum, svo sem ofvirkni, athyglisbrest, rautt hár og nærsýni. Hann er hugmyndaríkur og margvísleg uppátæki hans, sum stórhættuleg, vekja litla lukku hjá hinum fullorðnu. Þetta er áhrifamikil uppvaxtarsaga sem sveiflast á milli strákslegrar gleði og nístandi einmanaleika þess sem ekki er alltaf í takt við umhverfið, en jafnframt er hér brugðið upp ljóslifandi mynd af samfélagi áttunda áratugarins frá sjónarhorni barnsins.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Wild Olives

    Wild Olives

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Bréf til Sólu

    Bréf til Sólu

    Bréf til Sólrúnar Jónsdóttur frá Þórbergi Þórðarsyni skrifuð 1922-1931

    Þessi bréf eru ástarbréf og eiga engan sinn líka í íslenskum bókmenntum. Enda eru þau varðveitt fyrir undarlega tilviljun, eins og glöggt kemur fram í inngangi Indriða G. Þorsteinssonar fyrir bókinni.

    Og þessi bréf segja ástarsögu sem er bæði falleg og fagurlega skráð. Og sú saga á vafalaust eftir að valda lesendum ýmsum heilabrotum.

    Sóla og Þórbergur unnust hugástum, það sjáum við glöggt af bréfunum. En hvers vegna auðnaðist þeim ekki að njótast? „Bagga mín. Þetta er svo löng saga,“ sagði Sóla við Guðbjörgu dóttur sína, þegar hún gekk á hana um sambandsslitin. Að öðru leyti er málið hulið þögn af hennar hálfu.

    Guðbjörg er dóttir Sólrúnar og Þórbergs og hafa báðir foreldrar hennar skilið eftir yfirlýsingar því til staðfestingar. En hún hefur ekki fengið það viðurkennt af dómstólum. Eru þau undarlegu mál skýrð hér og rakin í inngangi fyrir bréfunum og málsskjöl og dómsniðurstöður birtar í bókarlok.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Jón Leifs: Líf í tónum

    Jón Leifs: Líf í tónum

    Tónskáldið Jón Leifs var einn merkasti og óvenjulegasti listamaður okkar á 20. öld. Í miðri heimsstyrjöldinni fyrri sigldi hann til Þýskalands, aðeins sautján ára gamall, staðráðinn í að leggja tónlistina fyrir sig þótt ekki hefði hann nema óljósan grun um hvað í því fælist. Hann kvæntist konu af gyðingaættum en bjó þó í Þýskalandi fram til ársins 1944, fluttist þá til Svíþjóðar þar sem ný ást og stór harmur biðu hans, og þaðan aftur heim til Íslands – í annars konar stríð og á vit enn nýrrar ástar.

    Saga hans er saga manns sem var of stór fyrir Ísland þess tíma – stórbrotinn metnaður hans og bjargföst trú á heilaga köllun í tónlistinni varð honum bæði gæfa og ógæfa. Jón var um margt langt á undan sinni samtíð, varð fyrstur Íslendinga til að stjórna fullskipaðri sinfóníuhljómsveit, hljóðritaði íslensk þjóðlög þegar þau voru einskis metin, stofnaði STEF og samdi tónlist sem mörgum þótti óþolandi hávaði en er nú talin með því merkasta sem gert hefur verið í íslenskri tónlist fyrr og síðar.

    Árni Heimir Ingólfsson skráir lífshlaup Jóns Leifs í þessari dramatísku ævisögu og hefur velt við hverjum steini í leit sinni að heimildum um líf hans. Bók hans er einstakur lykill að lífi þessa umdeilda listamanns. Fjölda áður óbirtra ljósmynda er að finna í bókinni.

    Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2009.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Nýr penni í nýju lýðveldi

    Nýr penni í nýju lýðveldi

    Hvað er þetta, spyr ég og bendi á lokaðar dyr í holinu. Þetta er chambre horreur, kallar Elías innan úr stofu. Íbúðin er á fyrstu hæð við Birkimel 6a, baðherbergi og eldhús snúa út að bílaplani, svefnherbergi og stofa snúa út í garð. Elías situr á stól í stofunni, langur og mjór með krosslagða fætur, tekur út úr sér munnstykki og blæs frá sér þykku reykskyi sem blandast rykögnum í sólskininu sem berst inn um stofugluggann. Eitt augnablik virðist hann ætla að liðast upp með reyknum og hverfa.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Alla mína stelpuspilatíð

    Alla mína stelpuspilatíð

    Hvert hafa spor hálfsextugrar stelpu legið?

    Hvers vegna þræddi hún þessa leið en ekki hina?

    Og hvert fór eiginlega tíminn?

    Sigríður Kristín er frá Garði í Mývatnssveit, dóttir Jakobínu Sigurðardóttur rithöfundar og Þorgríms Starra Björgvinssonar bónda og hagyrðings, komin af Reykjahlíðar- og Skútustaðaætt og af kjarnafólki á Hornströndum. En hún naut þess ekki alltaf eins og hún segir hispurslaust frá í þessari ögrandi og „öðruvísi“ ævisögu. Auk þess að lýsa því hvernig var að alast upp í norðlenskri sveit á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, þar sem foreldrarnir voru kommar og húsfreyjan skrifaði bækur með „orðbragði“, dregur hún upp litríka mynd af ættmennum sínum, einkum konunum og þá fyrst og fremst móður sinni, veltir fyrir sér hlutskipti kynjanna í fortíð og nútíð – og dásamar þá tilviljun sem lífið er.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Live Long And . . . - What I Learned Along the Way

    Live Long And . . . – What I Learned Along the Way

    Still, a brief health scare in 2016 forced him to take stock. After mulling over the lessons he’s learned, the places he’s been, and all the miracles and strange occurrences he’s witnessed over the course of an enduring career in Hollywood and on the stage, he arrived at one simple rule for living a long and good life: don’t die.

    It’s the only one-size-fits-all advice, Shatner argues in Live Long and..:What I Learned Along the Way, because everyone has a unique life―but, to help us all out, he’s more than willing to share stories from his unique life. With a combination of pithy humor and thoughtful vulnerability, Shatner lays out his journey from childhood to peak stardom and all the bumps in the road. (Sometimes the literal road, as in the case of his 2,400-mile motorcycle trip across the country with a bike that didn’t function.)

    William Shatner is one of our most beloved entertainers, and he intends never to stop entertaining. His funny, provocative, and poignant reflections offer an unforgettable read about a remarkable man.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • I Am Spock

    I Am Spock

    Leonard Nimoy’s portrayal of the ever-logical Vulcan, Mr. Spock, is one of the most recognizable, loved, and pervasive characterizations in popular culture. He had been closer to the phenomenon of Star Trek than anyone, having played the pivotal role of Spock in the original series, in six motion pictures, and in a special two-part episode of Star Trek: The Next Generation. I AM SPOCK gives us Nimoy’s unique perspective on the beginnings of the Star Trek phenomenon, on his relationship with his costars, and particularly on the reaction of the pointed-eared alien that Nimoy knew best.

    Here, Nimoy shared the true story behind his perceived reticence to re-create the role and wrote frankly about how his portrayal defined an icon.

    990 kr.
    Setja í körfu