





Bónusljóð – 44% meira
1.490 kr.Bónusljóð, ein mest selda ljóðabók allra tíma á Íslandi, hefur nú loksins verið aukin, endurunnin, endurskoðuð og endurprentuð til samræmis við ströngustu kröfur neytenda og alþjóðlegra staðla um gæði ljóðmetis. Bónusljóð eru nú einnig fáanleg á ítölsku, þýsku, frönsku og ensku.
Mjallhvít
Mjallhvít getur ekki keypt sixpack
dvergarnir eru nefnilega sjösjö mjólkurpottar, sjö brauðhleifar,
sjö skyrtur, sjö sokkapör, sjö óhreinir diskar,
sjö skítugar nærbuxur, sjö daga vikunnareins og venjulega ætlaði hún
að skella kiðlingunum sjö í körfunaen hún hætti við
keypti sér eina rauðvínsflöskuog sjö eitruð epli.
Bónusljóð lýsa guðdómlega gleðilegu ferðalagi í gegnum undraveröld Bónusverslunar með viðkomu í aldingarðinum (grænmetisdeildinni) og niflheimi (frystikistur og kæligeymslur) áður en lesanda er svipt af hvítum stormsveip inn í hinn ógurlega hreinsunareld (hreinlætisvörurnar).



Skáldsaga um Jón
1.290 kr.Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar & nýrra tíma



Stóri skjálfti
1.290 kr.Blóðbragð í munninum. Blaut lærin nuddast saman, ég hef migið á mig í krampanum. Þetta er ekki að gerast. Hvar er hann? Verkurinn í enninu ágerist, eitthvað þrýstir á æðarnar, skall ég á höfuðið? Hljóp hann út í umferðina? Þá væri kominn sjúkrabíll. Eða hvað?
Saga rankar við sér eftir flogakast á gangstétt við Miklubrautina og þriggja ára sonur hennar er á bak og burt. Það síðasta sem hún man er tveggja hæða strætisvagn sem vegfarandi efast um að hún hafi í raun og veru séð. Næstu daga drottnar efinn yfir huga hennar. Hvað gerðist fyrir flogið? Hverju getur hún treyst? Og hvernig getur hún botnað nokkuð í tilfinningum sínum þegar minnið er svona gloppótt?
Skáldsögur Auðar Jónsdóttur hafa vakið athygli hér heima og erlendis fyrir fágæta blöndu af nístandi einlægni og húmor. Stóri skjálfti er áleitin og spennandi saga sem ber öll bestu einkenni höfundar síns.
