
Með hægð
1.290 kr.MEÐ HÆGÐ gerist í fagurri höll einhvers staðar í Frakklandi. Þangað fara höfundurinn og kona hans til að leita sér hvíldar fjarri skarkala heimsins. En ýmsar persónur fara fljótlega á kreik og fylla hug höfundarins. Gangar og garðar lifna af sögum og hugleiðingar kvikna um nautnahyggju Epíkúrosar og Sade markgreifa, andstæðu nautnar og hraða, afdrif einlægni og heiðarleika á öld orðagjálfurs og fjölmiðlaljósa — lífsnautn átjándu aldarinnar andspænis nautnalífi þeirrar tuttugustu.
Meðan höfundurinn vakir tengjast ólíkar sögur: hlálegar uppákomur á alþjóðaþingi skordýrafræðinga kallast á við ástarsögu frá átjándu öld um unaðsnótt sem ungur riddari og fögur aðalskona eiga saman.
Milan Kundera hefur hér enn nálgast hið upprunalega markmið sitt að skrifa léttleikandi skáldsögu um hið þungbæra hlutskipti mannsins.
Friðrik Rafnsson þýddi.




Sólin sest að morgni
1.290 kr.Hér segir frá skapmikilli stúlku sem vex upp í skjóli hárra fjalla. Að henni standa sterkar konur, fyrirmyndir í tilverunni, en líka karlar sem eru sannfæringu sinni trúir og svíkja ekki lit. Yfir leikjum og kátínu æskunnar hvílir skuggi sem erfitt er horfast í augu við.
Kristín Steinsdóttir sýnir hér á sér nýja hlið. Efniviðinn sækir hún í bernskuna og úr verður margræð frásögn þar sem undir krauma sterkar tilfinningar.
Sólin sest að morgni er heillandi saga sem snertir lesandann djúpt.




Skáldsaga um Jón
1.290 kr.Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar & nýrra tíma









Stóri skjálfti
1.290 kr.Blóðbragð í munninum. Blaut lærin nuddast saman, ég hef migið á mig í krampanum. Þetta er ekki að gerast. Hvar er hann? Verkurinn í enninu ágerist, eitthvað þrýstir á æðarnar, skall ég á höfuðið? Hljóp hann út í umferðina? Þá væri kominn sjúkrabíll. Eða hvað?
Saga rankar við sér eftir flogakast á gangstétt við Miklubrautina og þriggja ára sonur hennar er á bak og burt. Það síðasta sem hún man er tveggja hæða strætisvagn sem vegfarandi efast um að hún hafi í raun og veru séð. Næstu daga drottnar efinn yfir huga hennar. Hvað gerðist fyrir flogið? Hverju getur hún treyst? Og hvernig getur hún botnað nokkuð í tilfinningum sínum þegar minnið er svona gloppótt?
Skáldsögur Auðar Jónsdóttur hafa vakið athygli hér heima og erlendis fyrir fágæta blöndu af nístandi einlægni og húmor. Stóri skjálfti er áleitin og spennandi saga sem ber öll bestu einkenni höfundar síns.


