



Íslensk listasaga I-V
14.990 kr.Íslensk listasaga er fimm binda verk sem spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Bindin eru gefin út samtímis í vandaðri öskju og er verkið allt um 1400 blaðsíður. Ritstjóri verksins er Ólafur Kvaran en fjöldi höfunda kemur að verkinu.
Í Íslenskri listasögu er lögð sérstök áhersla á einkenni íslenskrar myndlistar á hverju tímaskeiði, sögulegt samhengi hennar og samband við alþjóðlega listasögu. Í umfjöllun og túlkun höfundanna er þannig leitað svara við ýmsum sameiginlegum spurningum en jafnframt eru áherslur þeirrar ólíkar því viðfangsefnin eru um margt ólík.
Í verkinu eru litljósmyndir af á annað þúsund listaverkum, sem varðveitt eru á söfnum hérlendis sem erlendis eða eru í einkaeigu, og yfirgripsmikill fróðleikur um listasögu Íslendinga á einum stað. Útgáfa Íslenskrar listasögu er því mikið menningarlegt framlag enda er markmiðið með útgáfunni ekki aðeins að gera grein fyrir sögu íslenskrar myndlistar heldur einnig að styrkja og móta hugmyndir okkar um myndlist þjóðarinnar, sameiginlega arfleifð hennar og sjálfsmynd.

Staðurinn
4.390 kr.Hann fór aldrei inn á safn, las eingöngu héraðsblaðið og notaði alltaf Opinel-hnífinn þegar hann tók til matar síns. Verkamaðurinn sem varð smákaupmaður. Hann flíkaði ekki tilfinningum sínum en bar þá einlægu von í brjósti að dóttir hans gengi menntaveginn og yrði föðurbetrungur.
Dóttirin er Annie Ernaux, einn kunnasti rithöfundur Frakklands.
Í þesssar vönduðu bók fjallar hún á nærfarin hátt um samband sitt við föður sinn sem hún unni. Hún afhjúpar sársaukafulla fjarlægð sem myndaðist milli hennar og föður hennar sem sagði eitt sinn við hana: „Bækur og tónlist, það er gott fyrir þig. Ég þarfnast þess ekki til að lifa.“


Papelarias Emilio Braga blýantur
360 kr.Framleiddur sérstaklega fyrir Papelarias Emilio Braga af hinum þekkta portúgalska blýantaframleiðanda VIARCO.
PEFC-vottun.





