 
 
 
 
 
 
 
 
 
 - Sæluríkið1.290 kr.- Sæluríkið er mögnuð og áleitin glæpasaga um brostna drauma, hugsjónir á villigötum og kalda grimmd – og fólk sem á stórra harma að hefna. - Við Hafravatn finnst ferðamaður látinn með áverka á höfði. Þegar ljóst verður að hann er í raun íslenskur og kom við sögu hjá lögreglunni þegar félagi hans hvarf nokkrum áratugum fyrr fer Konráð að grufla í samhengi hlutanna. Hans eigin fortíð blandast þar inn; umtalað morðmál frá áttunda áratugnum veldur uppnámi innan lögreglunnar og fornvinur hans, Leó, er farinn í felur. Um leið leitar tíðarandi kalda stríðsins á huga Konráðs, andrúmsloft samfélags í fjötrum sem litaðist af heift og flokkadráttum. - Arnaldur Indriðason er vinsælasti höfundur landsins, bæði heima og á erlendri grund. Sæluríkið er 27. skáldsaga hans. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir bækur sínar sem hafa verið þýddar á tugi tungumála og selst í nær tuttugu milljónum eintaka um heim allan. 
 - Sápufuglinn1.290 kr.- Sápufuglinn hefur að geyma þrjár sögur um losta og valdadýnamík í samböndum, flókna kynverund og arfgengan hæfileika til að ferðast um í tíma. - María Elísabet Bragadóttir sló eftirminnilega í gegn með sinni fyrstu bók Herbergi í öðrum heimi. Sápufuglinn kemur róti á huga lesanda með djúpu innsæi höfundar, óbeisluðu hugmyndaflugi og beittum húmor. - „María Elísabet Bragadóttir er með geislasverð. Ég elska Sápufuglinn.“ - – Kristín Eiríksdóttir, rithöfundur 
 
 - Missir2.990 kr.- Bókin er gefin út í þúsund tölusettum og árituðum eintökum. Henni fylgir geisladiskur með upplestri höfundar á verkinu. 
 
 
 
 
 
 - Við erum ekki morðingjar1.290 kr.- Ung kona skrifar bók sem leggur líf hennar og mannsins sem hún elskar í rúst. Ári seinna fær hún óvænt tækifæri til að segja frá sinni hlið á málinu. En hún hefur bara eina nótt. Og sá sem hlustar er ekki allur þar sem hann er séður. Við erum ekki morðingjar er spennuþrungin skáldsaga um ást, ofbeldi og viðkvæm leyndarmál. - Dagur Hjartarson hlaut tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins fyrir fyrstu skáldsögu sína, Síðustu ástarjátninguna. Hér sendir hann frá sér bók sem veltir upp áleitnum spurningum og mun koma lesendum á óvart. 
 
 
 
 
 
