


Græna geimveran
3.190 kr.Dísa er á leið í Mývatnssveit til ömmu og afa. Þar ætti hún að vera óhult fyrir geimverum sem eru alltaf að reyna að ná valdi á fólki. Það var hins vegar eins gott að hún tók með sér álklæddu derhúfuna, vatnsbyssuna og stækkunarglerið og kynntist Dreng því það er eitthvað stórundarlegt á seyði í sveitinni!

Gestur úr geimnum
4.490 kr.Enn gerast undarlegir atburðir í Mývatnssveit! Amma hringir í Veðurstofuna og kemst að því að engar jarðhræringar hafa mælst á svæðinu síðustu klukkutíma. Það hlýtur því að vera önnur skýring á skjálftanum sem þau fundu öll. Dísa nær í stækkunarglerið, Drengur sér um nestið og amma sýnir að hún er ekki dauð úr öllum æðum.
Þetta verður ævintýri!


Fríríkið
2.590 kr.Þar sem endur drekka kvöldkaffi við eldhúsborðið, froskar slaka á í klósettinu, háttatímum er breytt í gítarpartí, kassabílum í klessubíla og heimalærdómi í leikrit er aldrei dauð stund. Og ef hún drepst óvart þá sér Allamma um að lífga hana við!
Já, í Fríríkinu hennar Öllömmu er allt óvenjulegt venjulegt og leiðinlegt skemmtilegt. En mitt í gleði og galsa Fríríkisfaðmsins finna Allamma og krakkarnir Asili, Alex, Bella og hundurinn Frændi sig skyndilega í baráttu um það verðmætasta í öllum heiminum. Baráttu við þann sem hefur völd, peninga og svífst einskis til að fá sínu framgengt. Hvað ætlar hann sér? Hvað gerist þegar Allamma ræsir út ellihrellana til að komast að því? Er hægt að vinna bardaga með kleinuvörpum og stafaskylmingum? Getur Magnús í öllu sínu nefháraveldi hjálpað þeim? Hvaðan kom svínski herinn? Hver á augun í fossinum? Baráttan kallar á stofnun andspyrnuhreyfingar, innbrot, f lótta og endar á stað sem engan gat órað fyrir. Á stað sem geymir tvær lokaspurningar: Hver er ég? Og hvað verður um Fríríkið?

Ég er Jazz
3.190 kr.Frá því að hún var tveggja ára gömul vissi Jazz að hún væri stelpa þó að allir héldu að hún væri strákur. Hún elskaði bleikan og að klæða sig eins og hafmeyju og leið ekki eins og henni sjálfri þegar hún klæddist fötum eins og flestir strákarnir voru í. Þetta var ruglingslegt fyrir fjölskyldu hennar, þar til þau fóru með hana til læknis sem greindi Jazz sem trans og útskýrði að hún væri fædd á þennan hátt. Trans börn eru allskonar eins og önnur börn. Þau hafa misjafnan fatasmekk og misjöfn áhugamál. En þetta er saga Jazz sem byggir á upplifun hennar. Hún segir frá á einfaldan og skýran hátt sem höfðar vel til barna, foreldra og kennara.

Eldurinn
2.590 kr.Hefur þig alltaf langað að leika lausum hala í skólanum eftir lokun? Fara í feluleik, setja teiknibólu í kennarastólinn, aftengja skólabjölluna. Halla, Hildigunnur, Kári og Skarpi eru ein í skólanum, hvert með sína ástæðu. Það stóð samt aldrei til að kveikja í … eða hvað? Æsispennandi unglingabók!


Dularfulla hjólahvarfið
3.190 kr.Enn er eitthvað dularfullt á seyði í hverfinu. Reiðhjól hverfa úr hjólaskýlinu við blokkina sem Katla, Hildur og Bensi búa í. Krakkarnir taka til sinna ráða og reyna að komast til botns í málinu.Rannsóknin tekur óvænta stefnu en skyldi þeim takast að leysa gátuna, aftur?
Leit
Sjá:
- Notaðar bækur (967)
- Nýjar bækur (963)
Sía eftir vöruflokkum
Sía eftir höfundum
Sía eftir útgáfuári
Sía eftir verði
