
Staðreyndirnar
4.990 kr.Við erum ekki á leiðinni í neitt 1984-dæmi, skilurðu. Við erum ekki að fara að banna fólki að segja eitt né neitt. Og við ætlum ekki að fara að þurrka út allar óþægilegar staðreyndir, breyta sögunni jafnóðum og einhverjir hagsmunir krefjast þess.
Eftir hneykslið með hjartað er úti um framtíð Steins í stjórnmálum. Honum er því boðin staða hjá nýstofnaðri Upplýsingastofu og falið að leiða þróun opinbers staðreyndagrunns, vitvélar sem á að gegna lykilhlutverki í baráttu stjórnvalda gegn upplýsingaóreiðu. Verkefnið lofar góðu þar til háskólanemi ber upp eldfima spurningu við vélina um áhrif nasisma á stjórnarfar á Íslandi.
Staðreyndirnar er hárbeitt satíra um ólík tilbrigði við þögn, um uppgjöf andspænis voðaverkum, uppgjör sem aldrei fer fram og þolinmæði þeirra afla sem enn bíða þess í ofvæni að lýðræðis- og frelsisbylgju síðustu áttatíu ára ljúki. Skáldsaga um vélrænt vit, mannasiði og nasista.

Lausaletur
4.990 kr.Regnið steypist yfir borgina og fáir eru á ferli. Það hefur ekki sést gestur á prentsafninu vikum saman. Björn og Írena drekka kaffi, endurraða í safnbúðinni og dytta að vélunum. Nágrannakötturinn kemur inn úr rigningunni, það er hápunktur dagsins. Þau spjalla og drekka kaffi, hundsa draugaganginn í prentvélunum og bæla niður langanir og eftirsjá, einsemd og ótta. Þessi heimsfaraldur er allt öðruvísi en sá síðasti. Írena hugsar um eiginkonuna sem sjúkdómurinn hrifsaði, Björn hefur á tilfinningunni að þetta hafi allt gerst áður. Nú kemur nágrannakötturinn inn úr rigningunni. Einhvers staðar þarna úti er óvæntur gestur á leiðinni, einmitt í dag, þegar borgin stendur á heljarþröm.
Lausaletur er magnþrungin skáldsaga um vinnuhjónaband, heimsendi og prentsögu.
Þórdís Helgadóttir hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, meðal annars tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og Maístjörnunnar.

Blái pardusinn: Hljóðbók
4.990 kr.Blái pardusinn – hljóðbók er dramatísk gamansaga um hlustun og athygli, sagnfræði og skáldskap.
Streymisveita ein hefur gefið út hljóðbókina Bláa pardusinn, örlagasögu sem innblásin er af ævintýralegu ferðalagi íslenskrar konu um Evrópu á tímum seinni heimsstyrjaldar. Hér segir frá þremur hlustendum bókarinnar og baráttu þeirra við að halda þræði í æsispennandi atburðarásinni mitt í daglegu amstri en höfundurinn, sem enginn veit hver er, gerir þeim ekki auðvelt fyrir. Dæmalaus frásögnin fer um víðan völl og illmögulegt er að henda reiður á hvað er skáldað og hvað ekki, líkt og kemur í ljós þegar leiðir hlustendanna þriggja liggja að lokum saman við óvenjulegar og þrúgandi aðstæður.
Sigrún Pálsdóttir skrifar knappar, meitlaðar og innihaldsríkar sögur sem hafa vakið verðskuldaða athygli heima og erlendis. Fyrri bækur hennar hafa verið þýddar á fjölda tungumála og fyrir þær hefur hún hlotið verðlaun og tilnefningar.

Móðurást: Sólmánuður
4.790 kr.Ekkert lát er á veðurblíðunni í Bræðratungu síðsumarið 1878 og sólargeislarnir hleypa fjöri í bæði menn og skepnur. Systurnar Oddný og Setselja, önnur nýfermd og hin ófermd, eru óðum að uppgötva sjálfar sig og máta við hlutverkið sem þeim er ætlað. En þegar það hlutverk verður stúlku um megn, er gott að eiga síðbuxur í felum undir steini.
Einstakir hversdagstöfrar leika um skáldaða frásögn Kristínar Ómarsdóttur af uppvexti langömmu sinnar í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Móðurást: Sólmánuður er þriðja bókin í röðinni, en sú fyrsta, Móðurást: Oddný, hlaut Fjöruverðlaunin og önnur bókin, Móðurást: Draumþing, fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Hirðfíflið
6.690 kr.Inga Stella elst upp á þriggja kynslóða heimili í Reykjavík. Þegar mamma verður veik eða skrítin töltir hún niður til ömmu og frænku sem hafa endalausan tíma fyrir lítið barn. Þannig varðveitir hún sakleysið þangað til pabbi verður líka skrítinn – og alltaf skrítnari og skrítnari. Það er ekki fyrr en hún er orðin fullorðin sem það rennur upp fyrir henni að lífið hefði orðið miklu betra ef mamma hefði haft kjark til að flýja pabba og taka hana með sér.
Hirðfíflið tekur á nýstárlegan, hugrakkan og áhrifamikinn hátt á umfjöllunarefnum sem eru í deiglunni, á fíkn og andlegum veikindum foreldra og áhrifunum sem þau hafa á lítið barn.
Hirðfíflið er þriðja bók Önnu Rögnu Fossberg. Hún sigraði handritakeppni Sparibollans með skáldsögunni Hugfanginn árið 2021. Fyrsta bók hennar Auðna kom út 2018 og hlaut afar góðar viðtökur.

Heima
4.590 kr.Dóttir hennar er ferðalangur, langt í fjarskanum. Fyrrverandi manni sínum skrifar hún lítil bréf þar sem hún rekur hvernig henni líður. Judith Hermann segir frá konu sem skilur við ýmislegt og þróar með sér mótstöðuafl. Í áhrifamiklu landslagi við ströndina verður hún önnur en áður.
Gömul veröld glatast og ný verður til.


Frumbyrjur
4.990 kr.Það er aðfangadagur og hjónin á Kölduhömrum búa sig undir jólahaldið. Handan áramóta eiga þau von á sínu fyrsta barni og spennan í kviðnum smitar andrúmsloftið. Snjórinn hleðst upp og vegurinn út úr firðinum hefur ekki enn verið ruddur. Þegar kýrin á bænum tekur sótt hrökkva dyr upp á gátt sem ekki verður lokað.
Frumbyrjur er margbrotin og nístandi saga um hversdagsleg kraftaverk og ástir sem rata ekki svo auðveldlega í orð.

Fröken Dúlla
4.990 kr.Hún ólst upp á Akureyri, kaupmannsdóttir af ástríkri og samheldinni fjölskyldu. Um fermingu flutti hún til Reykjavíkur og fór að vinna á skrifstofu, eins og allar ungar stúlkur dreymdi um. Seinna lærði hún hjúkrun, því hún þráði að líkna hinum sjúku og vinna þjóð sinni gagn. Enn síðar gaf hún út tímarit og bjó til minjagripi með þurrkuðum blómum. Meðal ástvina sinna var hún alltaf kölluð Dúlla.
Í dag er nafn Jóhönnu Knudsen þó einkum þekkt vegna starfa hennar fyrir lögregluna á árum seinni heimsstyrjaldar – jafnvel alræmt. Rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík hefur verið kölluð umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn varpa dökkum skugga yfir minningu hennar.
Þessi bók segir sögu Jóhönnu frá því hún fæddist á Papósi í Lóni árið 1897 og þar til hún lést fyrir aldur fram árið 1950. Hver var Dúlla Knudsen og úr hvaða umhverfi spratt hún? Hvernig varð hún sú manneskja – og sú sögupersóna – sem hún varð?

Four Family Stories
2.990 kr.A celebration of the humble pancake, and its ability to nourish, comfort, and connect us to loved ones. A shorter version was originally published online and in print with The L.A. Times, June 4th, 2025.

Pancake Cravings
1.690 kr.A celebration of the humble pancake, and its ability to nourish, comfort, and connect us to loved ones. A shorter version was originally published online and in print with The L.A. Times, June 4th, 2025.

Mother Mary Comes To Me
5.690 kr.Arundhati Roy’s first work of memoir, this is a soaring account, both intimate and inspiring, of how the author became the person and the writer she is, shaped by circumstance, but above all by her relationship to her extraordinary, singular mother Mary, who she describes as ‘my shelter and my storm’.
Distraught and even a “little ashamed” at the intensity of her response to the death of the mother she ran from at age eighteen, Arundhati began to write Mother Mary Comes to Me. The result is this astonishing, disconcerting, surprisingly funny chronicle—unique and simultaneously universal, of the author’s life, from childhood to the present, from Kerala to Delhi.
With the scale, sweep, and depth of her novels and the passion, political clarity, and warmth of her essays, Mother Mary Comes to Me is an ode to freedom, a tribute to thorny love and savage grace—a memoir like no other.

Spessi: Tóm
13.490 kr.Tóm er ný ljósmyndabók eftir Sigurþór Spessa Hallbjörnsson. Spessi er einn af mikilvægustu sjónrænu annálahöfundum Íslands. Bókin inniheldur um 100 myndir teknar í Öræfunum og formála eftir Ófeig Sigurðsson, rithöfund.

Steinunn Þórarinsdóttir: Maður
15.990 kr.Nýtt og veglegt yfirlitsrit um list Steinunnar Þórarinsdóttur. Bókin inniheldur myndir af öllum helstu verkum Steinunnar, auk þess sem bæði innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um listferil hennar og verk frá fjölbreyttum sjónarhornum. Snæfríð Þorsteins hannaði. Bókin inniheldur um 250 myndir af verkum Steinunnar, auk annarra mynda frá ferli hennar.
- -50%

The Two Roberts
Original price was: 4.690 kr..2.345 kr.Current price is: 2.345 kr..Scotland, 1933. Bobby MacBryde is on his way. After years grafting at Lees Boot Factory, he’s off to the Glasgow School of Art, to his future. On his first day he will meet another Robert, a quiet man with loose dark curls – and never leave his side.
Together they will spend every penny and every minute devouring Glasgow – its botanical gardens, the Barras market, a whole hidden city – all the while loving each other behind closed doors. With the world on the brink of war, their unrivalled talent will take them to Paris, Rome, London. They will become stars as the bombs fall, hosting wild parties with the likes of Lucian Freud, Francis Bacon and Elizabeth Smart. But the brightest stars burn fastest.
Stunningly reimagined, The Two Roberts is a profoundly moving story of devotion and obsession, art and class. It is a love letter to MacBryde and Colquhoun, the almost-forgotten artists who tried to change the way the world sees – and paid a devastating price.


Dans jaðrakansins
5.190 kr.Dans jaðrakansins er önnur ljóðabók Guðmundar Andra en sú fyrri, Hæg breytileg átt, kom út 2016. Hér er ort af einlægni, visku og kímni um náttúruna, mannfólkið, orðin og eilífðina – björt og myndrík ljóð sem kveikja ótal hugsanir og kenndir, opna dyr og nýja heima.

Ósmann
4.990 kr.Um aldamótin 1900 voru mörg stórfljót landsins enn óbrúuð og fólk reiddi sig víða á ferjumenn til þess að komast yfir illfær og óútreiknanleg fallvötnin. Einn þeirra var Jón Ósmann sem flutti menn og skepnur yfir Héraðsvötn um fjögurra áratuga skeið. Jón var tröll að burðum, stórtækur sel- og fiskveiðimaður, guðsmaður, drykkjumaður og annálað skáld. En öðru fremur var hann mannvinur með meyrt hjarta sem sá lengra en nef hans náði. Örlögin fóru óblíðum höndum um þennan einstaka karakter og hann lést fyrir aldur fram.
Ósmann er skáldsaga byggð á ævi Jóns Magnússonar, ferjumanns í Skagafirði. Frásögnin er feiknavel skrifuð, hjartnæm og heillandi – sannkallaður yndislestur.
Joachim B. Schmidt (1981) er fæddur og uppalinn í Sviss en hefur búið á Íslandi í nær tvo áratugi. Hann skrifaði sig inn í hjörtu lesenda með bókum sínum um Kalmann á Raufarhöfn en þær hafa verið þýddar á fjölda tungumála og báðar hlotið ýmsar tilnefningar og verðlaun.
Bjarni Jónsson þýddi.


