
Safnasafnið – GÍA – Sýnisbók safneignar XI
5.490 kr.GÍA fjallar um verk og listferil Gígju Guðfinnu Thoroddsen (1957-2021), eða GÍU eins og hún kallaði sig. Verk GÍU hafa ríkar skírskotanir til listasögunnar, samfélagsins, andlegra þátta, þekktra einstaklinga, arkitektúrs og svo í eigin reynsluheim, sem hún miðlaði af áræðni og örlæti, þá sérstaklega sem virkur notandi geðheilbrigðisþjónustu hér á landi.
Bókin er prýdd fjölda ljósmynda af verkum hennar ásamt greinandi úttekt eftir Margrét M. Norðdahl og textum frá Atla Bollasyni, Ástu Thoroddsen og Níelsi Hafstein.







Bláleiðir
14.990 kr.Bláleiðir er flettirit, listrænn leiðarvísir eða skýrsla um auðn, innlönd, umbreytingar, náttúruvernd, bláma og þrá. Við sláumst í för með myndlistarkonu sem í fjöldamörg ár ferðaðist um landið og skráði hjá sér hugleiðingar og upplifanir. Í þeirri óvissuferð könnum við leiðir til að lesa og nema land. Ummerki veðurs, eilífir umhleypingar, umritanir og tilraunir birtast hér og gefa okkur hlutdeild í ævilangri leit og lífsafstöðu. Bláleiðir er innsýn í æviverk listakonu og móður sem umbreytir rústum til að skapa leikrými og jafnvægi milli fjölskyldulífs og listar, samræðu og íhugunar.




