
Handbók fyrir ofurhetjur – Tíundi hluti: Allir ljúga
3.690 kr.Reyndu að segja alltaf sannleikann – en stundum má satt kyrrt liggja.
Lísa veit að þær Sandra geta ekki verið vinkonur lengur. Það er of hættulegt, Sandra er jú dóttir Wolfgangs, versta skúrks í sögu Rósahæðar! En þegar Sandra biður Rauðu grímuna um að hjálpa sér að fá að heimsækja pabba sinn í fangelsið getur Lísa ekki neitað. Börn verða að fá að hitta foreldra sína og Wolfgangs er vel gætt þannig að ekkert getur farið úrskeiðis. Eða hvað?
Handbók fyrir ofurhetjur hefur slegið í gegn á Íslandi, í Svíþjóð og víðar. Þetta er tíundi hluti sögunnar um Rauðu grímuna og vini hennar.






Draumaþjófurinn
1.290 kr.Í Hafnarlandi er allt eins og það á að vera og rotturnar þekkja sinn sess í lífinu: Safnarar safna mat, Njósnarar njósna, Bardagarottur halda óvinum frá og Étarar éta og hafa það gott. Efst í virðingarstiganum er Skögultönn Foringi sem öllu ræður.
En daginn sem dóttir hennar, Eyrnastór Aðalbarn Gullfalleg Rottudís, gerir uppreisn tekur sagan óvænta stefnu; fer með söguhetjuna okkar inn í Borgina þar sem hættur eru á hverju strái og framandi rottur leika lausum hala. Sjálfur DRAUMAÞJÓFURINN er sendur til að
bjarga henni – eða til að deyja!Gunnar Helgason hefur á undanförnum árum sent frá sér fjölda gríðarvinsælla barnabóka. Fyrir Mömmu klikk! hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin og Bókaverðlaun barnanna hafa sex sinnum fallið honum í skaut. Hér skapar hann spánnýjan og spennandi söguheim sem auðvelt er að týna sér í.
Myndir gerir Linda Ólafsdóttir sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir myndlýsingar sínar, hér heima og erlendis.





Leit
Sjá:
- Notaðar bækur (15)
- Nýjar bækur (238)
Sía eftir vöruflokkum
Sía eftir höfundum
Sía eftir útgáfuári
Sía eftir verði
