
Hnúfa og Skrúfa
4.990 kr.Hnúfa og Skrúfa er sjöunda bókin sem kemur út á íslensku eftir bresku metsöluhöfundana Juliu Donaldson og Axel Scheffler sem íslensk börn og foreldrar þeirra þekkja orðið mætavel. Bækur þeirra eru margverðlaunaðar og hafa verið þýddar á gríðarmörg tungumál.
Snigilinn Skrúfu dreymir um að yfirgefa litla skerið sitt og skoða heiminn. Eina nóttina rætist óskin: Risastór hvalur kemur syndandi og býður henni far á sporði sínum. Og þá hefst ógleymanleg ævintýraferð, uppfull af undrum og hættum.
Sagan er í bundnu máli. Sigríður Ásta Árnadóttir þýddi.

Ætíð minnast – Strákurinn, moldvarpan, refurinn, hesturinn og stormurinn
6.390 kr.„Dag nokkurn munt þú líta til baka og gera þér grein fyrir hversu erfitt þetta var, og hversu vel þú stóðst þig.“



Ágúst og íslenska veðrið
4.390 kr.Hér er Ágúst – lundi sem elskar ævintýri! Hann ákveður að dvelja á Íslandi yfir veturinn og lendir í vetrarstormi. Með hjálp vitru uglunnar Júlíu uppgötvar hann norðurljósin og lærir hvernig ský, þoka og regnbogar myndast. Hlý og fyndin saga um veður, vináttu og bláberjakökur, fullkomin fyrir forvitna landkönnuði.

Our World: Iceland
3.890 kr.Góðan daginn! Spend a day in Iceland eating hafragautur for breakfast, visiting the farm in the countryside, and driving past volcanoes and the northern lights. Even learn words in Icelandic with pronunciation guides throughout the story.

Sólgos (kilja)
6.390 kr.Unnur er að undirbúa sig fyrir fyrsta ballið í 10. bekk þegar rafmagnið fer, allt síma- og netsamband dettur út og farartæki stöðvast. Ísland verður algjörlega sambandslaust við umheiminn. Leikreglur samfélagsins breytast á örfáum dögum og ógnin verður helsti gjaldmiðillinn. Mitt í upplausninni má þó finna samstöðu, samkennd og heitar tilfinningar.


Skjóða – Fyrir jólin
4.590 kr.Skjóða er dóttir tröllskessunnar Grýlu sem tannburstar sig bara einu sinni á ári og Leppalúða sem bakar bestu kanilsnúða í heimi. Skjóða á fleiri en 100 systkini og 13 þeirra þekkir þú vel því jólasveinarnir eru bræður Skjóðu. Sagan hefst í Grýluhelli þar sem Skjóða er að undirbúa jólin en þegar jólakötturinn eignast kettlinga fer allt úr skorðum.

Rækjuvík
6.390 kr.Eftir langan, dimman vetur og vægast sagt glatað vor, er sólin loksins mætt til Reykjavíkur. Tvíburasystkinin Inga og Baldur eru komin í sumarfrí og forvitni þeirra er vakin þegar þau finna dularfullt flöskuskeyti. Þau ákveða að rannsaka málið á sinn einstaka hátt og ævintýri hversdagsins hefjast!
Bókinni fylgja alls konar aukahlutir! Kíktu í vasann aftast til að svala forvitninni!
Rækjuvík er þriðja bókin um tvíburana uppátækjasömu en áður hafa komið Grísafjörður og Héragerði. Fyrri bækurnar voru hlaðnar lofi og hlutu alls konar tilnefningar og verðlaun.
Rækjuvík er bráðskemmtileg, fyndin, litrík og falleg bók um systkini sem eru jafn ólík og dagur og nótt. Hún er sjálfstætt framhald Grísafjarðar og Héragerðis. Lóa Hlín hefur tvívegis hlotið Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar, verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna, Barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs og Vestnorrænu barnabókaverðlaunanna. Bækur hennar hafa verið valdar bækur ársins af bóksölum landsins og Morgunblaðinu.


Jólapakkið – Jóladagatal fyrir forvitna krakka
1.990 kr.Barnabókin Jólapakkið – Jóladagatal fyrir forvitna krakka eftir Helgu Sv. Helgadóttur og Kristínu Karlsdóttur með teikningum eftir Ásbjörn Erlingsson er stórskemmtilegt jóladagatal sem færir forna, íslenska sagnaleifð í samtímann – og í framtíðina.
Þegar sagan hefst í Reykjavík framtíðarinnar, hafa ekki verið haldin jól svo áratugum skiptir enda talin til óþarfa. Þann 1. desember árið 2100 fær Grýla sig fullsadda af ólátunum í jólasveinunum og ákveður að reka þá úr hellinum til sinna hefðbundnu starfa. Til þess þarf hún að endurvekja jólaandann úr fortíðinni en það verk er einungis á færi góðra barna … og vélmenna.
Leit
Sjá:
- Notaðar bækur (15)
- Nýjar bækur (238)
Sía eftir vöruflokkum
Sía eftir höfundum
Sía eftir útgáfuári
Sía eftir verði
