
The Fault in Our Stars
1.290 kr.Despite the tumor-shrinking medical miracle that has bought her a few years, Hazel has never been anything but terminal, her final chapter inscribed upon diagnosis. But when a gorgeous plot twist named Augustus Waters suddenly appears at Cancer Kid Support Group, Hazel’s story is about to be completely rewritten.
Insightful, bold, irreverent, and raw, The Fault in Our Stars is award-winning-author John Green’s most ambitious and heartbreaking work yet, brilliantly exploring the funny, thrilling, and tragic business of being alive and in love.

Nóvella – Ævintýrið (notuð)
1.990 kr.Í þessari bók eru birtar tvær sígildar sögur eftir Goethe sem notið hafa mikillar hylli meðal bókmenntaunnenda allt frá því þær komu fyrst fyrir almenningssjónir fyrir tveimur öldum.
Þetta eru sögurnar Nóvella, um söngelska drenginn með flautuna og ljónið og tigrísdýrið sem sleppa úr búrum sínum hjá mannfólkinu, og Ævintýrið, um grænu slönguna og fögru liljuna þar sem vafurlogar og konungar koma við sögu.
Tvær töfrandi frásagnir, samdar af mikilli list.
Jón Bjarni Atlason annaðist útgáfuna, íslenskaði Nóvellu og ritaði eftirmála.
Kristján Árnason og Þórarinn Kristjánsson íslenskuðu Ævintýrið.
Þýski menningarjöfurinn Johann Wolfgang Goethe (1749–1832) var skáld, leikskáld, skáldsagnahöfundur, náttúruvísindamaður, leikhússtjóri, stjórnmálamaður, gagnrýnandi og listamaður. Meðal frægustu verka hans er leikritið Fást (Faust) og skáldsögurnar Raunir Werthers unga (Die Leiden des jungen Werthers) og Wilhelm Meisters Lehrjahre.

A Clockwork Orange (Restored Edition)
3.490 kr.Edited by Andrew Biswell With a Foreword by Martin Amis
Fifteen-year-old Alex likes lashings of ultraviolence. He and his gang of friends rob, kill and rape their way through a nightmarish future, until the State puts a stop to his riotous excesses. But what will his re-education mean?
A dystopian horror, a black comedy, an exploration of choice, A Clockwork Orange is also a work of exuberant invention which created a new language for its characters. This critical edition restores the text of the novel as Anthony Burgess originally wrote it, and includes a glossary of the teen slang ‘Nadsat’, explanatory notes, pages from the original typescript, interviews, articles and reviews, shedding light on the enduring fascination of the novel’s ‘sweet and juicy criminality’.

Letters from Tove
4.390 kr.“I find myself talking to you about all the great joys, all the agonies, all my thoughts…” Letter to Eva Konikova, 1946
Out of the thousands of letters Tove Jansson wrote a cache remains that she addressed to her family, her dearest confidantes, and her lovers, male and female. Into these she spilled her innermost thoughts, defended her ideals and revealed her heart. To read these letters is both an act of startling intimacy and a rare privilege.
Penned with grace and humour, Letters from Tove offers an almost seamless commentary on Tove Jansson’s life as it unfolds within Helsinki’s bohemian circles and her island home. Spanning fifty years between her art studies and the height of Moomin fame, we share with her the bleakness of war; the hopes for love that were dashed and renewed, and her determined attempts to establish herself as an artist. Vivid, inspiring and shining with integrity, Letters from Tove shows precisely how an aspiring and courageous young artist can evolve into a very great one.

Í hæfilegu magni
5.190 kr.Kraftmikil ljóðabók um litríka uppreisn gegn þeim þrönga stakki sem samfélagið sníður konum. Bók sem er of hávær, of fjörug og fjallar um allt of stórar tilfinningar.
Í hæfilegu magni er fyrsta ljóðabók Heiðu Vigdísar Sigfúsdóttur (f. 1992) en hún bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum, árið 2022 með sögunni Getnaði. Saga hennar Stúlkan sem skemmdi (næstum því) jólin varð hlutskörpust í samkeppninni um Jóladagatal Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar 2021.
Og svo varð ég forsetafrú
6.990 kr.Eliza Reid rifjar hér upp eftirminnilegan tíma sem forsetafrú Íslands og veitir lesendum innsýn í heim þar sem formlegheitin ráða ríkjum og opinberar heimsóknir og móttökur eru stór hluti af starfinu. Hún lét til sín taka í því sem henni þótti skipta máli, var óhrædd við að tala íslensku með erlendum hreim og hló að eigin mismælum. Hún talaði fyrir jafnrétti kynjanna og gerði góðlátlegt grín að þeirri þversögn að vera fyrst og fremst skilgreind út frá afrekum eiginmannsins.
Í bókinni segir Eliza einnig frá uppvexti sínum í Kanada, árunum í Bretlandi, ferðalögum á fjarlægar slóðir og hvernig það var að flytja til Íslands og verða útivinnandi fjögurra barna móðir.

Young Mungo
3.490 kr.Born under different stars, Protestant Mungo and Catholic James live in a hyper-masculine world. They are caught between two of Glasgow’s housing estates, where young working-class men divide themselves along sectarian lines, and fight territorial battles for the sake of reputation.
They should be sworn enemies and yet, as they begin to fall in love, they dream of escape, and Mungo must work hard to hide his true self from all those around him…

Collection Of Sand
3.690 kr.Italo Calvino claimed that ‘the brain begins in the eye’. The essays collected here display his fascination with the visual universe, in which the things we see tell a truth about the world. With encyclopedic knowledge and engaging curiosity, Calvino writes about such diverse subjects as the imaginative pleasures of maps, bizarre exhibitions and the earliest forms of written language. Books and paintings provoke discussions of artistic motivation, while descriptions of a meticulous Japanese garden, Trajan’s column crumbling to dust or a Mexican temple smothered by the jungle lead to contemplations on space, time and civilization.
Surprising and profound, Collection of Sand provides a glimpse into the mind of a master of the imagination.
Italo Calvino, one of Italy’s finest postwar writers, has delighted readers around the world with his deceptively simple, fable-like stories. Calvino was born in Cuba in 1923 and raised in San Remo, Italy; he fought for the Italian Resistance from 1943-45. He died in Siena in 1985, of a brain hemorrhage.
Martin L. McLaughlin is Professor of Italian and Fiat-Serena Professor of Italian Studies at the University of Oxford where he is a Fellow of Magdalen College. He is the English translator of Umberto Eco and Italo Calvino among many others.

Köngurváfa
5.190 kr.Köngurváfa er önnur ljóðabók Arndísar Þórarinsdóttur en þar tekst hún á við tilvistina með textum sem spretta úr upprunanum og horfa til framtíðar. Bókin spinnur þræði um formæður, fluguhnýtingar, ferðalög og stórtónleika heilmynda ABBA-flokksins, svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrri ljóðabók Arndísar, Innræti, hlaut góðar viðtökur og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2020. Arndís er jafnframt ötull barna- og ungmennabókahöfundur og hefur meðal annars fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir verk sín, auk tilnefninga til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Þýsku barnabókaverðlaunanna og Minningarverðlauna Astridar Lindgren.
Kona að hálfu
4.390 kr.Ponna og Kali reyna hvað þau geta til að eignast barn en allt kemur fyrir ekki. Síðasta hálmstráið er lokakvöld árlegrar musterishátíðar, þegar allir karlar eru guðir, en það gæti reynst þeim dýrkeypt.
Perumal Murugan (f. 1966) er þekktasti rithöfundur Tamli Nadu-héraðs á Indlandi og jafnframt eini tamílski höfundurinn sem hlotið hefur tilnefningu til alþjóðlegu Booker-verðlaunanna. Lýsingar hans á helgisiðum héraðsins í Kona að hálfu vöktu mikla reiði trúarhópa á svæðinu og mátti Murugan sæta ofsóknum og ákærum, sem hæstiréttur í Madras ógilti síðar. Kona að hálfu hefur verið þýdd á átján tungumál. Áður hefur komið út á íslensku bókin Saga af svartri geit eftir sama höfund.

Framtíðin á ferðinni
4.690 kr.Stelpa og strákur hittast óvænt í erlendri borg og verða ástfangin. Þau koma úr ólíkum menningarheimum og átta sig fljótt á því að þeirra bíða margar og erfiðar hindranir eigi heitar tilfinningar að dafna. Ástin er voldugt afl en nær miskunnarlaus veruleikinn að buga hana?
Í þessari hugstæðu skáldsögu tekst Þórhildur Ólafsdóttir á við áleitið efni sem lítt hefur verið fjallað um í íslenskum bókmenntum. Sagan talar beint til nútímans þótt höfundur sviðsetji hana í Reykjavík, París og litlu þorpi á Íslandi fyrir hálfri öld. Löngu liðnum tíðaranda er lýst á næman og áhrifaríkan hátt og persónur bókarinnar verða ljóslifandi fyrir augum lesenda.
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir lauk doktorsprófi í frönskum bókmenntum við Háskólann í Orléans í Frakklandi árið 1982. Hún var lektor og síðar dósent í frönsku við Háskóla Íslands í nokkur ár. Frá árinu 1988 hefur hún verið búsett í Strasbourg í Frakklandi þar sem hún starfaði við Evrópuráðið í aldarfjórðung. Hún hefur áður sent frá sér meðal annars skáldsögu og ljóðabók auk þýðinga á bókum Nóbelsverðlaunahafans Annie Ernaux.

Minnisblöð veiðimanns (kilja)
5.390 kr.Skáldjöfurinn Ívan Túrgenev kynntist snemma bágum kjörum rússneskra bænda og miskunnarleysi þeirra sem réðu yfir þeim. Hann ólst upp á landareign móður sinnar, sem þótti með eindæmum óvægin og grimm, en hún hafði yfir að ráða meira en fimm þúsund sálum eins og ánauðugir bændur voru gjarnan nefndir. Reynsla Túrgenevs úr uppvextinum varð honum innblástur í þessa bók, Minnisblöð veiðimanns, sem kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku.
Í Minnisblöðum veiðimanns ferðast sögumaður um sveitir Rússlands og hittir landeigendur, ráðsmenn, bændur og bóndakonur auk annarra minnisstæðra persóna. Hann lýsir þessu fólki með raunsönnum og eftirminnilegum hætti en sagan er þó ekki síður óður til rússneskrar náttúru – birkiskóganna og sveitarinnar.
Þegar bókin kom út árið 1852 var Túrgenev handtekinn og sendur í útlegð á ættaróðal sitt. Bókin er þó sögð hafa haft mikil áhrif á Aleksander II. Rússakeisara en það var hann sem steig loks það afdrifaríka skref að aflétta bændaánauðinni árið 1861.
Áslaug Agnarsdóttir íslenskaði og ritaði eftirmála.

Suðurríkjaherforinginn frá Big Sur
4.690 kr.Í þessari bráðfyndnu og furðulegu sögu slást lesendur í för með félögunum Jesse og Lee. Sá síðarnefni er sannfærður um að hann sé afkomandi gleymds hershöfðingja úr bandaríska borgarastríðinu. Frá hriplekum forstofum í San Francisco liggur leiðin til klettaveggja Big Sur þar sem lífið snýst um froskakvak, vináttu, ódýr vín, blekkingar, hamingju og leitina eilífu að tilgangi lífsins.
Suðurríkjaherforingi frá Big Sur var fyrsta skáldsaga stílsnillingsins Richard Brautigan og er löngu orðið klassískt verk í bandarískum nútímabókmenntum.
Þórður Sævar Jónsson íslenskaði.
Stíll hans og vitsmunir miðla svo mikilli orku að … Brautigan … fær öll skilningarvitin til að anda. – Newsweek
Heillandi, pirrandi og hræðilega fyndin bók.– San Francisco Chronicle
Ótrúleg saga … Þú verður sáttari við heiminn eftir að hafa lesið hana. – Los Angeles Examiner

Hermiskaði
1.290 kr.Katniss Everdeen hefur sloppið lifandi frá tvennum Hungur- leikum en líf hennar er dýru verði keypt. Tólfta umdæmi er brunnið til grunna en Kapítól hefur ekki enn svalað hefndarþorsta sínum … Uppreisnarmenn vilja að Hermiskaðinn verði sameiningartákn í stríðinu gegn Kapítól.
Katniss er á báðum áttum – en á hún nokkurra kosta völ ef hún vill bjarga ástvinum sínum? Smám saman rennur þó upp fyrir henni að hlutverk Hermiskaðans kann að verða henni þungbærara en nokkrir Hungurleikar.
Hermiskaði er lokabindið í hinum geysivinsæla bókaflokki Suzanne Collins um Hungurleikana. Spennan er ekki minni hér en í fyrri bókunum og margt kemur á óvart – svo ekki sé meira sagt.
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.
„Collins gerir marga hluti snilldarlega; ekki síst tekst henni hvað eftir annað í kaflalok að skapa óbærilega spennu sem snýr atburðarásinni á hvolf.“
BOOKLIST„Lokabindi þríleiksins um Hungurleikana er enn betra en hin, glæsilega smíðuð og snjöll saga sem er að öllu leyti vel heppnuð.“
PUBLISHERS WEEKLY
Was That Racist?
4.690 kr.To hold the line against racism, we need to know it when we see it. And as the dominant racial group in our society, White people must take up the charge. The problem is that White people haven’t been socialised to detect racial bias in the way people of colour do.
Racism is more than using racial slurs or overt, hateful speech, and it’s more than unintentional slights; it’s about an entire system that upholds Whiteness as the preferred standard.
Fortunately, detecting it is a skill that can be learned.
Was that Racist? is a re-education, call to action and practical guide, full of research-backed strategies including how to: cultivate a growth mindset about bias unlearn colour blindness and practice colour consciousness, talk to kids about race and racism – and bring others along for the journey.

The Persians
3.490 kr.The Valiat family are in crisis. Elizabeth, the regal matriarch, remained in Tehran despite the revolution with only the Islamic law-breaking Niaz for company. Meanwhile, in America, Shirin, Seema and Bita are wondering if their gleaming lives in ‘the land of plenty’ are all they had hoped for.
When an annual vacation goes wildly awry and Shirin is arrested, long-held Valiat family secrets begin to surface. As their lives are turned upside down, could revealing the truth save their family or might it break them apart, once and for all?

Nazi Mind
3.690 kr.How could the Nazis have committed the crimes they did?
Why did they willingly – often enthusiastically – oversee mass murder?
How did ordinary Germans tolerate the removal of Jewish people?
And how do we ensure it never happens again?
Bestselling author Laurence Rees combines history and the latest psychological research to help answer the most perplexing questions surrounding the Holocaust and the Nazi state. Through the lens of ‘twelve warnings’ – from talk about ‘them’ and ‘us’ to the escalation of racism – Rees delves into the darkness to explain how and why people were capable of such horrors. Using previously unpublished testimony from former Nazis and cutting-edge psychological discoveries, The Nazi Mind is a revelatory new way of understanding the most appalling crimes of the 20th century that highlights the warning signs we need to look out for in leaders today.

Bubbi
1.290 kr.„Bubbi Morthens er rétt að segja einhver frægasti maður landsins. Hann hefur verið sjálft vorið í íslenskri rokktónlist og hlotið slíkt lof að þess munu vart finnast dæmi hliðstæð“. Þetta skrifaði Gunnar Salvarsson í desember 1980, árið sem Bubbi sló svo eftirminnilega í gegn, og ekki hefur frægð hans dvínað síðan né dregið úr lofinu. Hvaðan kemur þessi maður sem svo rækilega losaði íslenska dægurtónlist úr fjötrum meðalmennskunnar? Hvernig stendur á frægð hans og hvernig hefur ferill hans verið? Og hvað finnst honum sjálfum um þetta allt saman?
Um það og ótal margt fleira geta lesendur fræðst í þessari lifandi og kraftmiklu bók þeirra Ásbjarnar og Silju. Bubbi segir frá bernsku sinni og uppvexti, misheppnaðri skólagöngu og litríkum tíma sem farandverkamaður, frá árunum í rokkinu en líka frá freistingum dópsins, sorginni og ástinni. Um leið lýsir bókin merkilegum þætti íslenskrar menningar, og skýrir kannski af hverju svo ótal margir, ungir sem aldnir, hafa hrifist af tónlist og textum Bubba undanfarinn áratug.
Á annað hundrað ljósmyndir eru í bókinni, fjöldi texta er birtur, og sömuleiðis er hér ítarleg plötu- og lagaskrá, sem kærkomin er öllum aðdáendum Bubba.

Myndlist á Íslandi / Art in Iceland No. 6
3.990 kr.„Þetta tölublað endurspeglar ferðalag listrænna hugmynda um samfélagið,“ segir ritstjórnin. Í blaðinu koma saman lykilraddir, gagnrýnin sjónarhorn og afgerandi augnablik sem mótuðu myndlistarsenuna á síðasta ári. Í blaðinu er einnig fjallað um tilnefningar og verðlaunahafa Íslensku myndlistarverðlaunanna 2026.
Sérstök áhersla er lögð á að skoða fyrirbærið listaverk sem boðbera hugmynda með því að rýna í hvernig skapandi hugsun tekur á sig mynd og verður sýnileg áður en hún festist í tímalínum, mælieiningum og sögulegri skráningu. Þannig varpar blaðið ljósi á lifandi tengsl listrænnar iðkunar og samfélagslegs veruleika.
Í tölublaðinu birtist ítarlegt viðtal við Ástu Fanneyju Sigurðardóttur, fulltrúa Íslands á Feneyjartvíæringnum 2026, um sköpunarferli hennar og undirbúning fyrir tvíæringinn eftir Helenu Sólveigar Aðalsteinsbur. Jonatan Habib Engqvist kynnir fyrir lesendum uppruna og tilurð einkasýningar dönsku stórstjörnunnar Larissu Sansour í Listasafni Reykjanesbæjar. Margrét Elísabet Ólafsdóttir fjallar um ævi og störf Steinu Vasulka í tilefni sýningar hennar í Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur. Daría Sól Andrews fer yfir hvernig berskjöldun birtist sem þema í fjölmörgum sýningum á kvennaárinu 2025. Edda Halldórsdóttir greinir frá rannsóknum sínum á fantasíum Kjarvals, Eiríkur Örn Norðdahl fer með lesandann í ferðalag um myndlist á Vestfjörðum og loks tók Hólmar Hólm viðtal við Loga Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Myndlist á Íslandi hefur sérstöðu í norrænni myndlistarumræðu og nálgast tungumál sem kvikan miðil. Með tvítyngdri útgáfu eru íslenska og enska virkjaðar sem lifandi vettvangur fyrir samtal um samtímalist, þar sem þýðingar eru skilgreindar sem gagnrýnin aðferð sem opnar á tengingar milli hins staðbundna og alþjóðlega. Blaðið er því ekki aðeins árlegt yfirlit heldur vettvangur fyrir ígrundun, samtal og alþjóðlega miðlun íslenskrar samtímalistar. Hönnun tímaritsins er í höndum PSSÁ (Petter Spilde) og gefið út í samstarfi við Myndlistarráð, Myndlistarmiðstöð, Samband íslenskra myndlistarmanna, Listaháskóla Íslands og Listfræðafélag Íslands.

The Stand
3.990 kr.When a man escapes from a biological testing facility, he sets in motion a deadly domino effect, spreading a mutated strain of the flu that will wipe out 99 percent of humanity within a few weeks. The survivors who remain are scared, bewildered, and in need of a leader. Two emerge – Mother Abagail, the benevolent 108-year-old woman who urges them to build a community in Boulder, Colorado; and Randall Flagg, the nefarious “Dark Man,” who delights in chaos and violence.
