• Jörðin undir fótum hennar

    Jörðin undir fótum hennar

    Þetta er fyrsta mikla rokkskáldsagan og jafnframt saga síðustu fimmtíu ára – eins og hún hefði getað orðið. Þetta er bók um dulspeki og jarðskjálfta, veruleikann og handanheiminn og samspilið þar á milli, bók um goðsagnir fornaldar og okkar tíma, bók um þrjár stórkostlegar borgir: Bombay, London og New York. En fyrst og fremst er þetta bók um stórbrotna ást í anda Orfeusar og Evridísar.

    Eftir því sem sögunni vindur fram komumst við að raun um að hún gerist í öðrum veruleika en okkar, veruleika sem liggur samsíða okkar veruleika og það gefur höfundinum færi á að leika sér fram og aftur með alls kyns tilvísanir, útúrsnúninga og skopstælingar. Stundum skarast þessir heimar með ógnvænlegum afleiðingum. Hér segir frá parinu Ormusi og Vínu sem eru dáðustu rokkstjörnur okkar daga, bæði Indverjar með guðlega tónlistargáfu. Saga þeirra er rakin allt frá því að leiðir þeirra liggja saman í Bombay á Indlandi endalokanna og sá sem segir söguna er ljósmyndarinn Rai, vinur Ormusar og ástmaður Vínu. Í fyrsta hlutanum opnast fyrir okkur borgin Bombay í allri sinni litadýrð, annar hlutinn geymir satíru á hina gjálífu London á sjöunda áratugnum og í þriðja hluta fáum við innsýn í firrt líf hinnar yfirþjóðlegu rokkstjörnu.

    Jörðin undir fótum hennar hefur verið kölluð glaðlegasta bók Rushdies, frásögnin einkennist af fimlegum stökkum fram og til baka á hverri blaðsíðu eru dæmi um orðgnótt höfundarins, dálæti hans á orðaleikjum og stílgaldur. Árni Óskarsson þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Geirmundar saga heljarskinns

    Geirmundar saga heljarskinns

    «Geirmundr heljarskinn sté nú til slíkra virðinga at svá er sagt at hverr maðr á Vestfjörðum vildi sitja eðr standa svá sem hann fyrir sagði.»

    Geirmundur heljarskinn var sagður göfgastur allra landnámsmanna á Íslandi. Þó hefur sögu hans aldrei verið haldið á lofti – fyrr en nú. Enda má segja að hann sé, þegar öllu er á botninn hvolft, 21. aldar maður, þótt hann hafi verið uppi fyrir 1100 árum. Bergsveinn Birgisson vakti mikla athygli í Noregi árið 2013 fyrir fræðirit sitt um Geirmund heljarskinn sem hann ritaði á norsku og nefndi Svarta víkinginn. Hér er hins vegar loks hægt að lesa stórbrotna sögu Geirmundar sjálfs. Og kominn tími til.

    Bergsveinn Birgisson hefur rannsakað sögu landnámsmannsins Geirmundar heljarskinns um árabil. Hann hefur leitað fanga víða, í fornum ritum, munnmælum og örnefnum, stuðst við fornleifarannsóknir, málfræði og erfðafræði. Hér er komin Íslendingasagan sem fékk ekki að vera með.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Under The Jaguar Sun

    Under The Jaguar Sun

    A couple on an epicurean journey across Mexico are excited by the idea of a particular ingredient, suggested by ancient rituals of human sacrifice. Precariously balanced on his throne, a king is able only to listen to the sounds around him – sure that any deviation from their normal progression would mean the uprising of the conspirators that surround him. And three different men search desperately for the beguiling scents of lost women, from a Count visiting Madame Odile’s perfumery, to a London drummer stepping over spent, naked bodies.

    3.490 kr.
    Setja í körfu
  • Roof Beneath Their Feet

    Roof Beneath Their Feet

    First publication (outside of India) for this playful and moving masterpiece of psychological intrigue and feminist space-making by the International Booker winner.

    In this Indian modern classic by the International Booker Prize-winning author, roofs are meant for wild things, for romance and for play. They are realms of freedom – freedom from the male gaze, sexual freedom and freedom from society. Chachcho and Lalna use their roofs to build a friendship that transcends time and memory.

    ‘One of the finest Hindi writers, Geetanjali has created for herself a thoughtful, lyrical and contemporary fictional world, which is free from moral posturing and political hectoring. And Rahul Soni’s English translation of The Roof Beneath Their Feet is attentive to its poetic nuances and intelligently responsive to its complexity.’ – Alok Bhalla

    ‘In The Roof Beneath Their Feet, Geetanjali Shree has created a dazzling, multifaceted narrative that plays around with shifting time and perception, leading the reader on a wild journey as only she can. Rahul Soni’s fleet-footed translation keeps up with Shree’s pyrotechnics, nimbly evoking a world like no other.’ –Jeremy Tiang

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Landscape With Landscape

    Landscape With Landscape

    Five of the six stories in Landscape with Landscape trace a suburban journey in the 1960s, as the writer negotiates the conflicting demands of Catholicism and sex, self-consciousness and intimacy, alcohol and literature. In the sixth story a Paraguayan man imagines a country called Australia, while his son sickens before his eyes.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Zelda

    Zelda

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Góði dátinn Svejk

    Góði dátinn Svejk

    Jaroslav Hasek var Tékki. Hann skrifaði Svejk og andaðist 1923, tæplega fertugur, en bók hans var ætlað lengri lífdaga.

    Það mun vera sameiginlegt álit flestra bókmenntafræðinga, að bókin um góða dátann Svejk sé eitthvert hið snjallasta skáldverk, sem nokkru sinni hafi verið ritað um styrjaldir, og ekki er um þessar mundir útlit á, að þvílíkur Fróðafriður sé í vændum, að hún verði ekki í fullu gildi enn um stund.

    Hasek fyrirleit bókmenntir og blekiðnaðarmenn. Enginn þarf því að láta sér til hugar koma, að bókin um Svejk sé skrifborðsvinna mergsogins og blóðlauss stofurithöfundar. En hann var skapmikill maður, þoldi ekki klafa austurríska herveldisins, gerði uppreisn með penna í hönd í stað sverðs og gerðist rithöfundur gegn vilja sínum. Svejk er ádeilurit hans.

    Sumum frómum sálum finnst það ef til vill ekki vel viðeigandi að kalla fyrri heimsstyrjöldina ævintýri. En nafnið fær dýpri merkingu við það, að eftir stríðið hristu Tékkar af sér ok framandi herveldis og stofnuðu tékkoslóvakiska lýðveldið. Það var ævintýri. Og auk þess er Svejk eitt af hinum mörgu dæmum um hið mikla ævintýri, að þjóðir að lokinni styrjöld rísi upp til baráttu gegn óréttlæti og blekkingum.

    Þýðing sú, sem hér birtist, er eftir Karl Ísfeld og kom fyrst út á árunum 1942-43, en var endurprentuð í einu bindi 1970. Hér er því um þriðju útgáfu þessarar ágætu þýðingar að ræða, en hún hefur verið uppseld árum saman. Óþarfi er að tíunda ágæti þessarar þýðingar, svo kunnur var Karl Ísfeld fyrir snilldartök sín á íslensku máli, enda hafa margir það fyrir satt, að þetta sé ein snjallasta þýðingin, sem gerð hefur verið af ævintýrum góða dátans Svejk. Fyndnin er svo leiftrandi, að það er dauður maður, sem ekki tárast af hlátri við lestur bókarinnar, og ýmsir lesa hana árlega sér til andlegrar hressingar.

    Undanfarna mánuði hefur landsmönnum gefist kostur á að hlusta í útvarpi á einn færasta leikara þjóðarinnar lesa ævintýri góða dátans. Þeir lestrar hafa sannað ágæti bókarinnar og vakið mikla hrifningu og má einna helst líkja vinsældum þeirra við lestra Helga Hjörvar á Bör Börsson á sínum tíma.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ungfrú Ísland

    Ungfrú Ísland

    Karlmenn fæðast skáld. Þeir eru um fermingu þegar þeir gangast við því óumflýjanlega hlutskipti sínu að vera snillingar. Það skiptir engu hvort þeir skrifa bækur eða ekki. Konur verða kynþroska og eignast börn sem koma í veg fyrir að þær geti skrifað.

    Árið er 1963. Íslendingar eru 177 þúsund og eiga einn Nóbelshöfund. Söguhetja bókar, Hekla, er ung skáldkona sem fædd er á slóðum Laxdælu. Hún heldur til Reykjavíkur með nokkur skáldsagnahandrit í fórum sínum.

    Sjötta skáldsaga Auðar Övu fjallar um sköpunarþrána í heimi þar sem karlmenn fæðast skáld og konum er boðið að verða Ungfrú Ísland.

    Auður Ava Ólafsdóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir síðustu skáldsögu sína, Ör. Bækur hennar koma út á yfir 20 tungumálum.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Sjötíu bragandi dúfur

    Sjötíu bragandi dúfur

    Ljóðaflokkur um samband tveggja bræðra og kærleikann á milli þeirra en þeir búa við mikið ofbeldi innan veggja heimilisins. Sá yngri deyr sautján ára gamall af slysförum og höfundur breytir harmi sínum í sigur með menntun og skáldskap.

    Flokkur 38 ljóða til heiðurs yngsta bróður höfundar. Í ljóðunum birtist kærleiksríkt samband þeirra bræðra sem búa við erfiðar aðstæður. Eldri bróðurinn langar að vernda þann yngri og leiða til betra lífs innan fjölskyldunnar og síðan utan hennar. Aðstæður hindra hann þó í því er á líður. Yngri bróðirinn stendur því um síðir einn andspænis ofbeldinu á heimilinu og villist æ meira afvega svo afbrot og fíkn blasa við. En með umhyggju og hlýju systur hans í Vestmannaeyjum nær hann að snúa við blaðinu fjarri heimili foreldranna. Hann er kominn á réttu brautina þegar hann deyr af slysförum aðeins sautján ára. Þá heitir eldri bróðirinn því að umbylta lífi sínu með því meðal annars að ganga menntaveginn og gerast rithöfundur. Í lokakafla bókarinnar tekst honum að snúa harmi í sigur. Tvö ljóðanna hlutu 1. og 2. verðlaun í ljóðasamkeppni Ljósberans haustið 2023.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Letter to His Father

    Letter to His Father

    Letter to His Father (Brief an den Vater, 1919) by Franz Kafka is one of the most revealing autobiographical letters in twentieth-century literature. This powerful existential classic exposes the deep conflict between father and son, capturing the tension, guilt, and emotional paralysis that shaped Kafka’s life and work. Written in 1919 but never sent, the letter stands as a key document in German modernism and remains one of the most important psychological memoirs of the modern era.

    In this English translation, readers encounter Kafka’s precise and penetrating analysis of family trauma and personal alienation. The letter unfolds as a study of psychological conflict, exploring the crushing weight of paternal authority and the fragile struggle for individuality. Those familiar with The MetamorphosisThe Trial, or The Castle will recognize the same sense of powerlessness and existential dread, here rendered with complete honesty and without the veil of fiction.

    This edition of Letter to His Father is essential reading for anyone interested in European literature of the early twentieth century, modernist classics, or the psychology of family relationships. It will appeal to readers who study literary analysis, autobiographical writing, and philosophical fiction, as well as those exploring introspective memoirs and psychoanalytic literature. A cornerstone of modern European literature, this work provides an intimate look into the mind of the author of The Metamorphosis and reveals the origins of the existential questions that define Franz Kafka’s enduring legacy.

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Eyes Of Gaza

    Eyes Of Gaza

    In early October 2023, Plestia Alaqad was a recent graduate with dreams of becoming a journalist. By the end of that November, she would be internationally known as the ‘Eyes of Gaza’, moving millions with her social media posts depicting daily life in Gaza amid Israel’s deadly invasion and bombardment.

    Written as a series of diary extracts, The Eyes of Gaza relates the horrors of Plestia’s experiences, while showcasing the indomitable spirit of the men, women and children of her community. From the heart of the turmoil, surrounded by falling bombs and widespread devastation, she captures their emotions; their gentle acts of quiet, necessary heroism; and the moments of unexpected tenderness and vulnerability amid the chaos.

    Through the raw honesty and vulnerability of a normal twenty-one-year-old woman navigating a human tragedy, The Eyes of Gaza is a potent reminder of the horrors of violence and a powerful testament to the human spirit.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Wuthering Heights

    Wuthering Heights

    Emily Brontë’s only novel and a gothic classic – a gripping story of obsession, revenge, and tragedy – now the feature film “Wuthering Heights” from Emerald Fennell, which captures the spirit of this epic love story and stars Margot Robbie as Cathy and Jacob Elordi as Heathcliff.

    Lockwood, the new tenant of Thrushcross Grange, situated on the bleak Yorkshire moors, is forced to seek shelter one night at Wuthering Heights, the home of his landlord. There he discovers the history of the tempestuous events that took place years before. What unfolds is the tale of the intense love between Heathcliff and Catherine Earnshaw. Catherine, forced to choose between passionate, tortured Heathcliff and gentle, well-bred Edgar Linton, surrenders to the expectations of her class. As Heathcliff’s bitterness and vengeance at his betrayal are visited upon the next generation, their innocent heirs must struggle to escape the legacy of the past.

    3.490 kr.
    Setja í körfu
  • Menning við ysta haf
  • Víðerni

    Víðerni

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Krónprinsessan

    Krónprinsessan

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Nornin í Portobello

    Nornin í Portobello

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ellefu mínútur

    Ellefu mínútur

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Sólsetursvatnið

    Sólsetursvatnið

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Viktoría

    Viktoría

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Now I Surrender

    Now I Surrender

    1.290 kr.
    Setja í körfu