Availability: Á lager

Góði dátinn Svejk

Höfundur: Jaroslav Hasek
SKU: SKLD0SVEJK79

1.290 kr.

Jaroslav Hasek var Tékki. Hann skrifaði Svejk og andaðist 1923, tæplega fertugur, en bók hans var ætlað lengri lífdaga.

Það mun vera sameiginlegt álit flestra bókmenntafræðinga, að bókin um góða dátann Svejk sé eitthvert hið snjallasta skáldverk, sem nokkru sinni hafi verið ritað um styrjaldir, og ekki er um þessar mundir útlit á, að þvílíkur Fróðafriður sé í vændum, að hún verði ekki í fullu gildi enn um stund.

Hasek fyrirleit bókmenntir og blekiðnaðarmenn. Enginn þarf því að láta sér til hugar koma, að bókin um Svejk sé skrifborðsvinna mergsogins og blóðlauss stofurithöfundar. En hann var skapmikill maður, þoldi ekki klafa austurríska herveldisins, gerði uppreisn með penna í hönd í stað sverðs og gerðist rithöfundur gegn vilja sínum. Svejk er ádeilurit hans.

Sumum frómum sálum finnst það ef til vill ekki vel viðeigandi að kalla fyrri heimsstyrjöldina ævintýri. En nafnið fær dýpri merkingu við það, að eftir stríðið hristu Tékkar af sér ok framandi herveldis og stofnuðu tékkoslóvakiska lýðveldið. Það var ævintýri. Og auk þess er Svejk eitt af hinum mörgu dæmum um hið mikla ævintýri, að þjóðir að lokinni styrjöld rísi upp til baráttu gegn óréttlæti og blekkingum.

Þýðing sú, sem hér birtist, er eftir Karl Ísfeld og kom fyrst út á árunum 1942-43, en var endurprentuð í einu bindi 1970. Hér er því um þriðju útgáfu þessarar ágætu þýðingar að ræða, en hún hefur verið uppseld árum saman. Óþarfi er að tíunda ágæti þessarar þýðingar, svo kunnur var Karl Ísfeld fyrir snilldartök sín á íslensku máli, enda hafa margir það fyrir satt, að þetta sé ein snjallasta þýðingin, sem gerð hefur verið af ævintýrum góða dátans Svejk. Fyndnin er svo leiftrandi, að það er dauður maður, sem ekki tárast af hlátri við lestur bókarinnar, og ýmsir lesa hana árlega sér til andlegrar hressingar.

Undanfarna mánuði hefur landsmönnum gefist kostur á að hlusta í útvarpi á einn færasta leikara þjóðarinnar lesa ævintýri góða dátans. Þeir lestrar hafa sannað ágæti bókarinnar og vakið mikla hrifningu og má einna helst líkja vinsældum þeirra við lestra Helga Hjörvar á Bör Börsson á sínum tíma.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

1979

Þýðandi

Form

Innbundin

Ástand

notuð