
Endurfundir
1.290 kr.Vorið 1991 snýr Ágúst Bergsson heim á Skagann eftir misheppnaða dvöl í New York. Hann flosnaði upp úr kvikmyndanámi og stóð í erfiðum sambúðarslitum við sænska kærustu sem reyndist ekki öll þar sem hún var séð. Í gamla heimabænum virðist fátt annað bíða en foreldrahús, fiskvinnsla og alltumlykjandi grámi. Ástin er þó aldrei langt undan. En á hún aðeins erindi við aðra?
Í þessari leiftrandi skemmtilegu skáldsögu Orra Harðarsonar er brugðið húmorísku ljósi á líf ungs manns sem þarf að læra að fóta sig upp á nýtt og finnur þá gamlar tilfinningar vakna í brjósti. Um leið einkennist sagan af djúpri hlýju og hispursleysi, þar sem lipurlegur stíll og ósvikin frásagnargleði skila persónum og sögusviði ljóslifandi til lesenda.
Fyrsta skáldsaga Orra, Stundarfró, kom út árið 2014 og hlaut verðskuldað lof gagnrýnenda og lesanda. Hún var meðal annars tilnefnd til Menningarverðlauna DV sem skáldverk ársins.

Skáldleg afbrotafræði
1.290 kr.Skáldleg afbrotafræði er makalaus aldarfarssaga sem bregður upp litríkri mynd af samfélagi og tíðaranda í byrjun 19. aldar.
Nýjar hugmyndir eru á kreiki í veröldinni og upplýsingarstefnan að ryðja sér til rúms, meira að segja í örsmáu sjávarþorpi á hjara veraldar. Prestar og hreppstjórar ráða enn örlögum smælingja en alþýðan er farin að átta sig á óréttlætinu og það styttist í að hún láti verkin tala.
Hér eru ótal þræðir á lofti; gleði og sorg, kúgun og frelsi, sögulegur fróðleikur í bland við yfirskilvitleg fyrirbæri, magnaðar persónur og misfagrir hugarheimar – og allt þetta fellir höfundurinn saman í þéttan og margslunginn vef eins og honum er lagið.
Einar Már Guðmundsson hefur sent frá sér tugi skáldverka og hlotið fyrir þau ýmis verðlaun. Bækur hans hafa verið gefnar út víða um lönd en sérstakra vinsælda nýtur hann í Danmörku, þar sem bækur hans koma nú út samtímis útgáfu hér heima.




Tugthúsið
1.290 kr.Sumarið 1757 báðu sýslumenn um leyfi til að hengja landsins lausgangara en var í staðinn gert að reisa tugthús. Næstu hálfu öld hírðust konur og karlar í Tugthúsinu við Arnarhól fyrir margvísleg brot við hörmulegar aðstæður. Löngu síðar hefur húsið virðulegra hlutverk en yfir því er enn ekki ró. Getur hugsast að ónotin í húsinu stafi af óeirð einhvers sem þar dvaldi og dó? Tugthúsið eftir Hauk Má Helgason er áhrifamikil skáldsaga sem varpar nýju ljósi á lífið í Reykjavík á seinni hluta átjándu aldar, aumustu þegna landsins og valdhafana sem sýsluðu með örlög þeirra.

Ég var nóttin
990 kr.Ungur laganemi leigir kjallaraherbergi í stóru einbýlishúsi í Þingholtunum. Leigusalarnir eru roskin hjón sem lifa í fortíðinni. Smám saman áttar stúdentinn sig á að þau eru ekki öll þar sem þau eru séð.
Eftir alllangt hlé sendir Einar Örn Gunnarsson nú frá sér nýja skáldsögu, Ég var nóttin. Sagan er frásögn ungs laganema sem leigir kjallaraherbergi í stóru einbýlishúsi í Þingholtunum í Reykjavík árið 1985. Húsið var á sínum tíma með fallegustu glæsihýsum borgarinnar en er nú í niðurníðslu. Leigusalarnir eru roskin hjón, undarleg í háttum og lifa í fortíðinni og draumórum sínum. Sögumaður er varaður við hjónunum en smám saman aukast samskipti pilts við þau. Með tímanum fer hann að átta sig á að þau eru ekki öll þar sem þau eru séð. Þessi saga styðst við Næðing, skáldsögu höfundar frá árinu 1990.

Listamannalaun
1.290 kr.Þeir vissu að þeir yrðu einhverjum söguefni, þessir þremenningar sem voru vandræðabörn á atómöld, bóhemar sem hneyksluðu og hrifu; gæfuleysið féll þeim að síðum, þeir lifðu átakamiklu lífi innra með sér og hið ytra – og reyndu að láta penna og pensil ljúga úr sér hrollinn.
Ólafur Gunnarsson rithöfundur var góðvinur listamannanna Alfreðs Flóka, Dags Sigurðarsonar og Steinars Sigurjónssonar, umdeildra snillinga sem ólu aldur sinn á jaðri samfélagsins. Hann fer hér í sannkallaðan gúmsílúmstúr – eins og Flóki hefði sagt – um Reykjavík og Kaupmannahöfn áttunda og níunda áratugarins og lýsir af næmum skilningi, hreinskilni og óborganlegum húmor kynnum sínum af þeim og fjölmörgum öðrum ógleymanlegum persónum af því sögusviði: menningarpáfum, sveitamönnum, heimsfrægum rithöfundum, húsgagnasölum, barþjónum, mögulegum KGB-mönnum, ástkonum, skáldum og listamönnum.

Kjöt
1.990 kr.Sturlaugur var ein skærasta stjarna íslenska myndlistarheimsins á yngri árum og stefndi á heimsfrægð þegar hann hvarf af hinu opinbera sviði. Fimmtán árum síðar snýr hann aftur með verk sem setur alla heimsbyggðina á hliðina.
Kjöt er ágeng saga sem fjallar um óseðjandi holrúm og fórnir sem listamenn eru tilbúnir að færa til að sinna köllun sinni.
Bragi Páll hristir hér hressilega upp í lesendum eins og í fyrri bókum sínum með beittum húmor og áleitnum spurningum.




Saga af hjónabandi
990 kr.Hvað er það sem gerist, þegar tvær manneskjur sem vilja hvor annarri ekkert nema það besta og hafa byggt upp fallegt og náið samband, missa tökin á tilfinningalífi sínu? Er hægt að komast til botns í ástinni? Er hægt að hlaupast undan henni?
Saga af hjónabandi er ísköld krufning á hinu fullkomna ástarsambandi – sem skyndilega fer að leysast upp. Maður og kona hafa búið saman í fjölmörg hamingjusöm ár, en allt í einu er fótunum kippt undan þeim og allar bjargir virðast bannaðar.
Geir Gulliksen var tilnefndur til Norðurlandaverðlaunanna fyrir þessa bók. Hann hefur skrifað skáldsögur, leikrit, barnabækur og greinasöfn og verið tilnefndur til fjölda verðlauna.
Halla Kjartansdóttir þýddi úr norsku.

Þakkarskuld
990 kr.Teheran, 1978: Nahid og Masood eru 18 ára gömul, ástfangin og byltingarsinnuð og staðráðin í að hrinda ríkisstjórn Íranskeisara og koma á lýðræði. Leynilegar aðgerðir þeirra eru hættulegar en ástríða og æskufjör gefur þeim kraft og áræði. Nótt eina leyfir Nahid yngri systur sinni að koma með þeim á fjölmenn mótmæli þar sem ofbeldi brýst út; Nahid missir tak á systur sinni og allt breytist …
Í kjölfarið neyðast Nahid og Masood til að flýja til Svíþjóðar til að tryggja öryggi sitt – og vegna þess að þau eiga von á barni. Þrjátíu árum seinna liggur Nahid á sjúkrahúsi, veik af krabbameini, og fer yfir líf sitt af dæmafárri hreinskilni þar sem allt er lagt undir.
Þakkarskuld er margrómuð skáldsaga um ást, sekt og drauma um betri tíma, kraumandi af bæði átakanlegri sorg og óslökkvandi lífsgleði.
Höfundurinn, Golnaz Hashemzadeh Bonde er fædd í Íran en uppalin í Svíþjóð.
Páll Valsson þýðir.






