
Bréfið
990 kr.Tina Craig þráir að losna frá ofbeldisfullum eiginmanni sínum. Hún vinnur myrkranna á milli til að safna fé svo að hún geti farið frá honum og er auk þess í sjálfboðavinnu í nytjaverslun til að losna að heiman. Hún finnur gamalt bréf í vasanum á notuðum jakkafötum í búðinni, umslagið er enn óopnað. Tina opnar bréfið og les það – sú ákvörðun á eftir að breyta lífi hennar …
Billy Stirling veit að hann hagaði sér eins og bjáni en vonast til að geta bætt fyrir það. Þann 4. september 1939 skrifar hann bréfið sem hann vonar að muni breyta framtíð hans. Það rætist – á fleiri vegu en hann hefði getað ímyndað sér …
Bréfið segir sögu tveggja kvenna sem fæðast með nokkurra áratuga millibili en engu að síður liggja leiðir þeirra saman og kvalræði annarrar þeirra verður hinni til bjargar …
Kathryn fékk Prima Magazine verðlaunin fyrir bestu bók ársins 2019.





Óbærilegur léttleiki tilverunnar
990 kr.Dag einn stendur þjónustustúlkan Teresa í dyragættinni hjá Tómasi lækni í Prag og er komin til að vera. Kvennagullið tekur sveitastúlkunni opnum örmum en framhaldið er ekki á þeirra valdi. Þau eru leiksoppar sögunnar rétt eins og heimalandið, Tékkóslóvakía, sem á örlög sín undir grannanum stóra í austri.
Ást, kynlíf, stjórnmál, heimspeki, dauði – allt fléttast snilldarlega saman í grátbroslegri og margslunginni sögu þar sem frelsið sem býr í draumum verður fólki kærkomið athvarf í óbærilegum ólgusjó tilverunnar.
Óbærilegur léttleiki tilverunnar er sú bóka Milan Kundera sem víðast hefur farið. Sagan kom fyrst út 1984 og í íslenskri þýðingu tveimur árum síðar. Æ síðan hefur Kundera átt stóran og tryggan lesendahóp hér á landi.
Friðrik Rafnsson þýddi og í bókarlok er birt viðtal hans við Kundera.






