

Skuggamyndir úr ferðalagi
990 kr.Ljóðskáld leggur land undir fót, ferðinni er heitið á vettvang liðinna atburða, til móts við horfinn tíma og gengnar kynslóðir. Smámyndir úr veruleikanum og fortíðinni raðast saman í áhrifamikla ferðasögu í tíma og rúmi, ljóðræna minningabók og ættarsögu í brotum. Aôfengnir textar og ríkulegt úrval ljósmynda í frjóu samspili við lesmálið gera sitt til að víkka og dýpka frásögnina í þessu frumlega og fallega verki á mörkum margra forma. Lifandi skáldskapur sem einkennist af næmi fyrir því smáa og stóra í mannlegri tilveru.
„Tök hans á stuttum textum eru með eindæm- um. Hvort sem hann er angurvær, hæðinn eða sér skoplegu hliðarnar á hlutunum getur hann skrifað nokkrar línur uppfullar af meiri töfrum en margir skrifa í heilu og hálfu bækurnar.“
– Brynjólfur Þór Guðmundsson, DV„Stórbrotið rútuferðlag með meistara smáprósans.“
– Mannamál, Stöð 2




Jónas Hallgrímsson – Ævisaga
1.990 kr.„Listaskáldið góða“ er sú einkunn sem þjóðin hefur gefið skáldinu Jónasi. Þjóðin hefur löngum séð fyrir sér mynd af viðkvæmum ljúflingi sem elskaði blómin og eina stúlku sem hann fékk ekki að eiga. Þessi mynd hefur vakið upp andstæðu sína: af beiskum drykkjumanni og auðnuleysingja sem orti fáein kvæði. Hvorug myndin er rétt, eins og Páll Valsson leiðir í ljós í þessu mikla verki um ævi og störf Jónasar Hallgrímssonar – þótt báðar feli í sér sannleikskorn. Jónas var ekki einungis ástsælasta skáld Íslendinga fyrr og síðar heldur líka innblásinn og umdeildur baráttumaður fyrir hvers kyns þjóðþrifamálum og fyrsti eiginlegi náttúrufræðingur okkar.
Á síðum þessarar bókar þar sem saman fer sannferðug og traust fræðimennska og fjörleg framsetning kviknar samtími Jónasar og fjöldi litríkra persóna kemur við sögu. Við sjáum Jónas með augum samtímamanna hans sem margir höfðu horn í síðu hans – og vinanna sem trúðu á hann. Rakin er sagan á bak við byltingarritið Fjölni, við kynnumst þrotlausum rannsóknum vísindamannsins Jónasar og farið er í saumana á fjölmörgum kvæðum hans, ástsælum jafnt sem minna þekktum. Höfundur leiðir margt nýtt í ljós um ástamál og einkahagi skáldsins og dregur upp heilsteypta mynd af lífi og starfi margbrotins manns.
Páll Valsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999 fyrir þessa bók um Jónas Hallgrímsson.



Konurnar á Eyrarbakka
7.990 kr.Konurnar á Eyrarbakka fjallar um líf og störf kvenna í sjávarþorpi sem eitt sinn var aðalverslunarstaður Suðurlands. Eyrarbakki er ríkur af sögu kvenna, sögu um lífið innan og utan heimila og milli húsa sem einhvern veginn var meira samtvinnað en það er í dag. Hjálpsemi, nýtni og þrautseigja einkenndi tilveruna þar sem konur höfðu stóru hlutverki að gegna í ósýnilegu hagkerfi en voru aldeilis ekki ósýnilegar þá frekar en nú þó ekki hafi farið miklar sögur af þeim.
Í bókinni eru viðtöl við konur og viðtöl við ættingja, konur og karla, um konur sem eru fæddar á tæplega hundrað ára tímabili, ýmist innfæddar, aðfluttar eða brottfluttar. Ekki eru sagðar sérstakar frægðarsögur heldur sögur af hversdagslífi og störfum kvenna sem hafa breyst í áranna rás.
- -25%

Aðalskipulag Reykjavíkur 1962-83
Original price was: 19.990 kr..14.990 kr.Current price is: 14.990 kr..

