• Ævintýri Munda lunda

    Ævintýri Munda lunda

    Það verður uppi fótur og fit, eða öllu heldur loppur og sundfit, þegar Mundi lundi bætist í fjölskylduna. Þó hundarnir Spotti og Flækja vilji leika verður ekki það sama sagt um Ólíver sem stöðugt reynir koma fuglinum fyrir kattarnef. Saman lendir hópurinn í ótrúlegustu ævintýrum.

    2.590 kr.
    Setja í körfu
  • Þorri og Þura - Tjaldferðalagið

    Þorri og Þura – Tjaldferðalagið

    Sólin skín og álfarnir Þorri og Þura ætla í tjaldferðalag saman. Skyndilega kemur hellidemba en vinirnir finna lausn á því eins og öðru, enda láta þau ekkert stoppa sig í ævintýraleitinni.

    Þorri og Þura hafa heimsótt leikskólabörn, komið fram á bæjarhátíðum og birst á skjám landsmanna.Þessir bráðskemmtilegu fjörkálfar eru nú orðnir að litríkum söguhetjum og bjóða lesendum með sér í óvenjulega útilegu.

    3.290 kr.
    Setja í körfu
  • Þegar Ólíver talar

    Þegar Ólíver talar

    Við höfum öll okkar fjölbreyttu blæbrigði og styrkurinn felst í því að þykja vænt um fjölbreytileikann og nýta allt sem við höfum til að gera lífið betra. Við getum verið stór, lítil, hávær, hljóð, góð á bókina og handlagin. Sumir tala mikið á meðan öðrum þykir betra að hlusta. Allt eru þetta kostir ef við leyfum okkur að sjá þá sem slíka og það er einmitt verkefnið sem Óliver tekst á við í þessari bók. Eitt af sérkennum Ólivers er að hann stamar og fá lesendur að sjá hvernig honum tekst að finna sjálfstraustið og leyfa samferðafólki sínu að njóta þess að heyra allt það áhugaverða sem hann hefur frá að segja.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Villueyjar (kilja)

    Villueyjar (kilja)

    Á Útsölum stendur aðeins eitt hús: Skólahúsið. Frá því Arilda man eftir sér hefur þessi skóli verið hennar annað heimili. Hún hefur aldrei velt því fyrir sér hvers vegna hann standi á eyju sem annars er í eyði, ekki fyrr en daginn sem hún heldur inn á miðja eyjuna og villist í þokunni.
    Eftir það breytist allt.

    Smám saman rennur það upp fyrir Arildu að hún getur engum treyst. Hún verður sjálf að leita svara, ekki bara um hryllinginn sem býr á Útsölum heldur einnig um sína eigin fjölskyldu.

    Villueyjar er önnur bók Ragnhildar Hólmgeirsdóttur sem hlaut mikið lof fyrir sína fyrstu bók, Koparborgina. Koparborgin hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar en var auk þess tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, auk Fjöruverðlaunanna í sínum flokki.

    2.790 kr.
    Setja í körfu
  • Villueyjar

    Villueyjar

    Á Útsölum stendur aðeins eitt hús: Skólahúsið.

    Frá því Arilda man eftir sér hefur þessi skóli verið hennar annað heimili. Hún hefur aldrei velt því fyrir sér hvers vegna hann standi á eyju sem annars er í eyði, ekki fyrr en daginn sem hún heldur inn á miðja eyjuna og villist í þokunni. Eftir það breytist allt.

    Smám saman rennur það upp fyrir Arildu að hún getur engum treyst. Hún verður sjálf að leita svara, ekki bara um hryllinginn sem býr á Útsölum heldur einnig um sína eigin fjölskyldu.

    Villueyjar er önnur bók Ragnhildar Hólmgeirsdóttur sem hlaut mikið lof fyrir sína fyrstu bók, KoparborginaKoparborgin hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar en var auk þess tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, auk Fjöruverðlaunanna í sínum flokki.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder

    Veran í vatninu

    3.190 kr.
    Setja í körfu
  • VeikindaDagur

    VeikindaDagur

    Þetta byrjaði þegar ég gleymdi að taka lyfin. Fimm dögum síðar ligg ég í líkhúsinu … dáinn og stjarfur á köldu stálborðinu. Dagur er eitthvað svo ólíkur sjálfum sér, með botnlausa matarlyst, dynjandi höfuðverk, gloppur í minninu og óteljandi spurningar. Hvað varð eiginlega um Breka? Af hverju er auga í klósettinu? Á hann kannski séns í Ylfu Dögg?

    Þetta byrjaði allt þegar ég gleymdi að taka lyfin mín. Fimm dögum síðar ligg ég í líkhúsinu … dáinn og stjarfur á hrollköldu stálborðinu.

    Dagur er eitthvað svo ólíkur sjálfum sér, með botnlausa matarlyst, dynjandi höfuðverk, gloppur í minninu og óteljandi spurningar. Hvað varð eiginlega um Breka? Af hverju er auga í klósettinu? Á hann kannski séns í Ylfu Dögg?

    VeikindaDagur er æsispennandi hrollvekja eftir þau Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og Sigmund Breiðfjörð. Sögur þeirra og teikningar hafa heillað lesendur um árabil en í þessari blóðugu bók halda þau á nýjar og hræðilegar slóðir. Bókin er prýdd ótal ógnvekjandi teikningum og er ALLS EKKI fyrir viðkvæma!

    4.490 kr.
    Setja í körfu
  • Töfralandið

    Töfralandið

    Töfralandið er lofsöngur Bergrúnar um bækur, því hún veit að bækurnar geyma það besta og þú sérð það líka um leið og þú lest það!

    3.490 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder

    Tarot – bók ensk

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder

    Tarot – bók íslensk

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Stelpur stranglega bannaðar

    Stelpur stranglega bannaðar

    Bíddu ha?

    Sónarmynd… í símanum hennar ömmu?

    GÆTU HLUTIRNIR MÖGULEGA ORÐIÐ EITTHVAÐ VERRI?

    Nýja stelpan í bekknum er búin að stela bestu vinkonu Þórdísar. Staða hennar sem eina stelpan í stórfjölskyldunni er kannski í hættu. Þórdís vonar að þetta séu óþarfa áhyggjur; að hún haldi stöðu sinni í fjölskyldunni og nái að endurheimta bestu vinkonu sína.

    Hún þráir ekkert heitar en að allt verði eins og áður.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder
  • Placeholder
  • Placeholder

    Sóley í Undurheimum

    4.490 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder

    Sóley og töfrasverðið

    3.190 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder
  • Placeholder
  • Sombína og sumarfríið við Myrkavatn

    Sombína og sumarfríið við Myrkavatn

    Loksins er komið sumarfrí!

    Sombína og fjölskylda hafa ekki farið í frí í … einhverjar aldir!  Áfangastaður: Blúndustaðir Herfu frænku og Hróðmars frænda.

    En það gefst lítill tími til að slappa af. Sombína uppgötvar að grafalvarlegur  bæjarstarfsmaður ætlar að selja Blúndustaði því enginn virðist búa þar.

    Mun þeim takast að bjarga Blúndustöðum áður en það verður um seinan?

    Nýtt ævintýri um Sombínu sem hefur farið sigurför um heiminn.

    3.190 kr.
    Setja í körfu
  • Sombína og draugurinn

    Sombína og draugurinn

    Hver er dularfulli draugurinn sem reynir að komast inn á Hrunvelli rétt fyrir áramótaveislu hinna framliðnu?

    Með dyggum stuðningi Harms, hins trygga albínóamjóhunds, ætlar Sombína að komast að því hver hann er þessi nýi draugalegi vinur.

    Drepfyndin saga sem fær hárin til að rísa.

    Bráðskemmtilegu bækurnar um Sombínu hafa farið sigurför um heiminn!

    3.190 kr.
    Setja í körfu
  • Sombína - og dularfulla hvarfið

    Sombína – og dularfulla hvarfið

    Sombína og besti vinur hennar albínóamjóhundurinn Harmur, búa með Hálfdánu frænku. Á sveitasetrinu Hrunvöllum, þar sem margt óvenjulegt getur gerst, verja þau dögunum í að leika sér við draugana.

    Dag einn stendur Hróðmar frændi, á tröppunum með boðskort frá Hálfdánu frænku. Einn af öðru birtast svo vinir Sombínu úr þorpinu með fleiri dularfull borðskort frá Hálfdánu.

    En hver er Hálfdána frænka?

    Er hún gufuð upp?

    Af hverju sendi hún eftir þessum drepleiðinlega frænda?

    Glænýtt og drepfyndið ævintýri um uppvakningin Sombínu.

    3.190 kr.
    Setja í körfu