Orrustan um Renóru – kilja
3.790 kr.Loksins, hugsaði Elísa og skjálfti fór um líkamann. Fyrir framan þau glitti í furðulegt hellisop. Það var eins og jörðin væri að geispa en hefði ekki náð að loka aftur munninum. Elísa hafði séð þennan helli í draumi. Svolítið var í þann mund að gerast sem hafði ekki gerst í fimm hundruð ár. Hún lokaði augunum og hugsaði; Þetta verður að virka!
Eftir hrakfarirnar í marmaraborginni standa Elísa og gæslumennirnir frammi fyrir krefjandi ferðalagi sem fer með þau um gjörvallt landið. Hættur leynast víða, sterkar tilfinningar krauma og ungmennin þurfa að taka erfiðar ákvarðanir. Lokaorrustan við steingyðjua er framundan og örlög allrar Renóru hvíla á herðum þeirra. En hvað mun slík orrusta kosta þau?
Fyrsta bókin í bókaflokknum, Dóttir hafsins, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021. Önnur bókin, Bronsharpan, var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og valin Besta barna- og ungmennabók af bóksölum 2022. Kristín Björg hlaut Vorvindar IBBY 2023.

Nornasaga 3: Þrettándinn
3.190 kr.Goðsögulegt ævintýri!
Katla verður að koma tveimur nornum aftur til Goðheima. Auk þess þarf hún að finna örlaganornirnarog fá Skuld til að skera á galdrafjötur. En áætlanir eiga það til að fara úrskeiðis þegar Katla á í hlut og í þetta sinn kemur hún af stað röð atburða sem gætu haft áhrif á örlög sjálfra guðanna. Máni er með í för en einnig flækjast systkini Kötlu og faðir hennar, Loki lævísi, óvænt inn í atburðarásina ásamt kínverskum dreka.
Katla þarf að taka erfiða ákvörðun en tekst henni að bjarga málum áður en allt fer í bál og brand?
Nornasaga 3: Þrettándinn er beint framhald bókanna Nornasaga: Hrekkjavakan og Nornasaga 2: Nýársnótt og allar eru þær ríkulega myndskreyttar.

Nornasaga 2: Nýársnótt
3.190 kr.Ógnvænlegt ævintýri!
Katla er upptekin við allt annað en jólaundirbúning. Hún ætlar að opna galdragátt á nýársnótt til að nornin Heiður komist aftur til Íslands. Þess í stað veldur hún sprengingu og hrindir af stað æsilegri atburðarás. Barrtré spretta upp á methraða, systkini Kötlu hverfa, úlfur sést í Öskjuhlíðinni, tröllskessa við Tjörnina og ógnarlangur ormur í Reykjavíkurhöfn.
Hvað er eiginlega í gangi?
Er Gullveig komin aftur?
Ef ekki … hver þá?
Katla og Máni þurfa að finna svör áður en það er of seint – og þá reynir á vinskapinn!
Nornasaga 2 – Nýársnótt er æsispennandi framhald bókarinnar Nornasaga – Hrekkjavakan. Bókin er ríkulega myndskreytt.

Mér líst ekkert á þetta
4.490 kr.Það er nýtt barn flutt í hverfið.
Það býr við hliðina á mér.
Ég vona að það sé ekki hættulegt.
…mér líst ekkert á þetta.
Mér líst ekkert á þetta fjallar um fyrirframgefnar hugmyndir og skoðanir, ímyndunaraflið og vináttuna.

Lauflétta að lesa – Bekkurinn minn 6: Unnur Lea
2.690 kr.Þessi bók fjallar um Unni Leu og jólaskemmtun bekkjarins. Unnur Lea skrifar leikrit, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið!
Hún er viss um að þetta verði flottasta leiksýning allra tíma. Bara ef bekkjarfélagarnir tækju verkefnið alvarlega.
BEKKURINN MINN – LAUFLÉTT AÐ LESA er einfaldari útgáfa af hinum vinsæla bókaflokki Bekkurinn minn.
Hver bók er sögð frá sjónarhorni eins nemanda í íslenskum grunnskóla. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi og henta einstaklega vel fyrir þá sem eru að stíga sín allra fyrstu skref á lestrarbrautinni.

Lauflétt að lesa – Bekkurinn minn 5: Leonora
2.690 kr.Þessi bók fjallar um Leonoru og orðróminn um varúlfinn í skólanum. Er Héðinn húsvörður í alvörunni varúlfur sem er læstur inni í kompu þegar myrkið skellur á?
Daginn fyrir hrekkjavökuna komast Leonora og Ragnar til botns í málinu.
BEKKURINN MINN – LAUFLÉTT AÐ LESA er einfaldari útgáfa af hinum vinsæla bókaflokki Bekkurinn minn.
Hver bók er sögð frá sjónarhorni eins nemanda í íslenskum grunnskóla. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi og henta einstaklega vel fyrir þá sem eru að stíga sín allra fyrstu skref á lestrarbrautinni.

Lauflétt að lesa – Bekkurinn minn 4: Jón Ingvi
2.690 kr.Þessi bók fjallar um Jón Ingva sem lendir í vandræðum með hjólalásinn sinn þegar hann fer með pabba í vinnuna. Feðgarnir þurfa að redda málunum og lenda í óvæntri eftirför á leiðinni heim
BEKKURINN MINN – LAUFLÉTT AÐ LESA er einfaldari útgáfa af hinum vinsæla bókaflokki Bekkurinn minn.
Hver bók er sögð frá sjónarhorni eins nemanda í íslenskum grunnskóla. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi og henta einstaklega vel fyrir þá sem eru að stíga sín allra fyrstu skref á lestrarbrautinni.

Lauflétt að lesa – Bekkurinn minn 3: Sigríður
2.690 kr.Þessi bók fjallar um Sigríði og lýsnar sem hreiðra um sig á höfði hennar. Það vill enginn vera með höfuðið fullt af lúsum … eða hvað?
BEKKURINN MINN – LAUFLÉTT AÐ LESA er einfaldari útgáfa af hinum vinsæla bókaflokki Bekkurinn minn.
Hver bók er sögð frá sjónarhorni eins nemanda í íslenskum grunnskóla. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi og henta einstaklega vel fyrir þá sem eru að stíga sín allra fyrstu skref á lestrarbrautinni.

Lauflétt að lesa – Bekkurinn minn 2: Bjarni Freyr
2.690 kr.Þessi bók fjallar um Bjarna Frey sem finnst hann hafður fyrir rangri sök. Hann ákveður að strjúka úr frístund með Mikael vini sínum. En ferðalagið endar á annan hátt en þeir héldu.
BEKKURINN MINN – LAUFLÉTT AÐ LESA er einfaldari útgáfa af hinum vinsæla bókaflokki Bekkurinn minn.
Hver bók er sögð frá sjónarhorni eins nemanda í íslenskum grunnskóla. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi og henta einstaklega vel fyrir þá sem eru að stíga sín allra fyrstu skref á lestrarbrautinni.

Lauflétt að lesa – Bekkurinn minn 1: Nadira
2.690 kr.Þessi bók fjallar um fyrsta skóladag Nadiru. Hún er nýflutt til Íslands frá Írak. Nadira er feimin í fyrstu en hún er fljót að eignast vini og læra nokkur ný orð.
BEKKURINN MINN – LAUFLÉTT AÐ LESA er einfaldari útgáfa af hinum vinsæla bókaflokki Bekkurinn minn.
Hver bók er sögð frá sjónarhorni eins nemanda í íslenskum grunnskóla. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi og henta einstaklega vel fyrir þá sem eru að stíga sín allra fyrstu skref á lestrarbrautinni.

Langelstur í leynifélaginu
3.690 kr.Áður var Rögnvaldur langelstur í bekknum en nú hafa hlutverkin snúist við og Eyja er orðin langyngst á dvalarheimilinu með tilheyrandi gríni og glensi.
Eftir skemmtilegan skólavetur eru vinirnir Eyja og Rögnvaldur komin í sumarfrí! Þegar hinn háaldraði Rögnvaldur flytur á dvalarheimili fær Eyja að fylgja honum á meðan foreldrar hennar eru fastir í vinnu. Fljótlega bætast fleiri krakkar úr bekknum í hópinn. Saman stofna þau leynifélag og leggja ýmislegt á sig til að komast að því hvort forstöðukona heimilisins sé raunveruleg manneskja eða illt og sálarlaust vélmenni!