

Kleifarvatn
1.290 kr.Þegar vatnsborð Kleifarvatns lækkar í kjölfar jarðskjálfta finnst beinagrind af manni í sandinum sem vatnið huldi áður. Við hana er bundið fjarskiptatæki með rússneskri áletrun. Lögreglan er kölluð til og rannsókn málsins leiðir þau Erlend, Elínborgu og Sigurð Óla áratugi aftur í tímann, á vit fólks sem dreymdi um réttátara þjóðfélag og heitra tilfinninga sem lutu í lægra haldi fyrir köldu stríði.
Bækur Arnaldar Indriðasonar hafa notið gríðarlegra vinsælda og verið þaulsætnar á metsölulistum hér heima og erlendis. Arnaldur hlaut tilnefiningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2004 fyrir Kleifarvatn. Bókin fékk bresku Barry-verðlaunin árið 2004 og hún hlaut einnig Le Prix du Polar Européen, bókmenntaverðlaun franska tímaritsins Le Point.

Kvæðasafn: Þórarinn Eldjárn
1.990 kr.Kvæðasafn Þórarins Eldjárns hefur að geyma mikinn skáldskaparfjársjóð: allar ljóðabækur hans sem komnar voru út árið 2008, átta talsins, og úrval úr fimm barnaljóðabókum, hátt á fjórða hundrað kvæða alls. Hér má finna afar fjölbreytilegan ljóðaforða: hárbeittar ádeilur, græskulaust gaman, sorg og trega, heimspekilegar vangaveltur, náttúrustemningar, orðaleiki, íhuganir um lífið, söguna, landið og tungumálið. Mörg ljóðanna eru bundin í rím og stuðla en önnur lausbeislaðri í formi endar er skáldið jafnvígt á ýmis ólík stílbrögð orðlistarinnar.
Í þessu safni eru átta ljóðabækur Þórarins birtar í heild sinni ásamt úrvali úr fimm barnaljóðabókum hans. Ljóðabækurnar eru: Kvæði (1974), Disneyrímur (1978), Erindi (1979), Ydd (1984), Hin háfleyga moldvarpa (1991), Ort (1991), Hættir og mörk (2005) og Fjöllin verða að duga (2007). Barnaljóðin eru úr bókunum Óðfluga (1991), Heimskringla (1992), Halastjarna (1997), Grannmeti og átvextir (2001) og Gælur, fælur og þvælur (2007).
Þórarinn Eldjárn er eitt ástsælasta ljóðskáld samtímans hér á landi, jafnt meðal barna og fullorðinna. Sum af eldri ljóðum hans eru torfengin eða ófáanleg og er því mikill fengur að safninu.

Sæluríkið
1.290 kr.Sæluríkið er mögnuð og áleitin glæpasaga um brostna drauma, hugsjónir á villigötum og kalda grimmd – og fólk sem á stórra harma að hefna.
Við Hafravatn finnst ferðamaður látinn með áverka á höfði. Þegar ljóst verður að hann er í raun íslenskur og kom við sögu hjá lögreglunni þegar félagi hans hvarf nokkrum áratugum fyrr fer Konráð að grufla í samhengi hlutanna. Hans eigin fortíð blandast þar inn; umtalað morðmál frá áttunda áratugnum veldur uppnámi innan lögreglunnar og fornvinur hans, Leó, er farinn í felur. Um leið leitar tíðarandi kalda stríðsins á huga Konráðs, andrúmsloft samfélags í fjötrum sem litaðist af heift og flokkadráttum.
Arnaldur Indriðason er vinsælasti höfundur landsins, bæði heima og á erlendri grund. Sæluríkið er 27. skáldsaga hans. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir bækur sínar sem hafa verið þýddar á tugi tungumála og selst í nær tuttugu milljónum eintaka um heim allan.








