• Landkostir – úrval greina um sambúð lands og þjóðar, 1927-1984

    Landkostir – úrval greina um sambúð lands og þjóðar, 1927-1984

    Allan sinn höfundarferil var Halldór Laxness ötull samfélagsrýnir og skrifaði beittar ritgerðir og blaðagreinar samhliða skáldskapnum.

    Það ríkti aldrei lognmolla í skrifum hans og hann var óhræddur við að tyfta samlanda sína og taka sér stöðu barnsins sem bendir á klæðleysi keisarans. Mörgum mislíkaði hreinskiptni skáldsins og óbilgirni gagnvart heimsku og heimóttarskap, en öðrum urðu þessar gagnrýnu greinar ómetanlegur innblástur.

    Hér hefur verið safnað saman greinum sem Halldór skrifaði á löngu árabili um sambúð lands og þjóðar – umhverfið sem við hrærumst í og umgengni okkar við það. Sumar greinanna bera augljós merki þess að vera innlegg í deilumál síns tíma, aðrar hafa víðari skírskotun, en allar eiga þær erindi við samtímann, ýmist sem merkilegar heimildir um málefni sem brunnu á fólki á liðinni öld eða sem sígild sannindi og áríðandi boðskapur sem ekki fyrnist.

    Halldór Þorgeirsson valdi greinarnar.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Umfjöllun

    Umfjöllun

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Á eigin vegum

    Á eigin vegum

    Sigþrúður er ekkja og vinnur fyrir sér með blaðburði. Hún ræktar garðinn sinn, hugsar um kettina og sækir jarðarfarir. Hún er ein en ekki einmana; allt frá barnæsku hefur lífið kennt henni að treysta ekki á aðra. Fólkið hennar er horfið á braut og hún fylgir því í huganum en situr sjálf um kyrrt. Djúpt í sálinni búa þó draumar um annað líf, annað land. Geta draumarnir ræst?

    Kristín Steinsdóttir hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sin og nafn hennar er þekkt langt út fyrir landsteinana. Á eigin vegum hefur fengið frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna.

    „Það er alltaf gaman að láta koma sér á óvart… [Verk] sem… er svo miklu meira umfangs en útlitið gefur til kynna.”
    – Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is

    „Kristin slær einhvern óútskýranlegan tón Og skilar af sér frábærri bók… sem skilur ekki við lesandann fyrr en löngu eftir að lestri lýkur.”
    – Óttar Martin Norðfjörð, DV

    „Snertir við lesandanum á áhrifaríkan hátt… Hér er engu ofaukið og ekkert vantar.”
    – Auður Aðalsteinsdóttir, Víðsjá RÚV

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Lára fer á hestbak

    Lára fer á hestbak

    Hin lífsglaða Lára hefur sérstaklega gaman af að læra eitthvað nýtt. Bangsinn Ljónsi fylgir henni hvert fótmál og saman spreyta þau sig á ýmsum verkefnum. 

    Lára ætlar á reiðnámskeið í sumar. Henni finnst hestarnir svolítið stórir og ætlar varla að þora að fara á bak. Atli vinur hennar er vanur hestum úr sveitinni hjá afa hans og ömmu og gefur Láru góð ráð. Á námskeiðinu eru líka fjörugir krakkar sem er gaman að kynnast.
    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • -28% Álfareiðin

    Álfareiðin

    Menntskælingurinn Líneik er spennt að búa til hlaðvarpsþátt í valáfanga í fjölmiðlafræði en þykir alveg glatað að hann eigi að vera um álfa. Og ekki nóg með það heldur neyðist hún til að vinna í hóp og situr uppi með bæði skrýtnu stelpuna og mesta slugsann í bekknum.

    Perla og Jónki leyna þó á sér og fyrr en varir eru þau búin að grafa upp dularfullt þorp á Suðurlandi sem tengist álfum og virðist eiga sér blóðuga sögu. Þegar þríeykið mætir á staðinn rennur fljótt upp fyrir þeim að þorpsbúarnir hafa margt og miður fallegt að fela – og það getur reynst stórhættulegt að spyrja rangra spurninga.
    Original price was: 6.390 kr..Current price is: 4.590 kr..
    Setja í körfu
  • Diplómati deyr (notuð)

    Diplómati deyr (notuð)

    Hópur kanadískra diplómata verður veðurtepptur í opinberri heimsókn í Vestmannaeyjum, þar á meðal sendiherra Kanada á Íslandi og eiginkona hans. Á meðan óveðrið geisar úti fyrir snæða gestirnir saman hátíðarkvöldverð – en svo hnígur aðstoðarsendiherrann niður fyrir framan viðstadda. Fljótlega kemur í ljós að um morð er að ræða og ýmsir liggja undir grun: athafnamaðurinn sem svífst einskis í samningum, meistarakokkurinn sem reiðir fram dýrindis máltíðir úr nærumhverfinu og dularfulla myndlistarkonan sem er að opna sýningu á byggðasafni bæjarins … svo nokkrir séu nefndir. En sendiherrafrúin er hvergi bangin og ákveður að komast til botns í málinu upp á eigin spýtur.

    Diplómati deyr er fyrsta skáldsaga Elizu Reid, spennandi og listilega fléttuð glæpasaga þar sem leyndarmálin eru afhjúpuð hvert af öðru.

    Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • -23% Ég bý í risalandi

    Ég bý í risalandi

    Finnst þér stundum eins og allt sé annað hvort of stórt fyrir þig, of langt í burtu eða alltof hátt uppi? Þá býrðu kannski í RISALANDI!

    Ég bý í risalandi er dásamleg saga um það að vera lítill í heimi fullorðna fólksins, um allt sem reynist smáfólki erfitt en líka allt það stórkostlega sem kemur í ljós þegar horft er á heiminn frá sjónarhóli barnsins.

    Birna Daníelsdóttir er menntaður sjávarlíffræðingur og starfaði meðal annars við hvalatalningu og sem sérfræðingur í örverufræði áður en hún lét gamlan draum rætast og fór í nám í teikningu. Ég bý í risalandi er hennar fyrsta bók en hún hlaut Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2025.

    Original price was: 5.190 kr..Current price is: 3.990 kr..
    Setja í körfu
  • Ferðalok

    Ferðalok

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Ofurnæfur

    Ofurnæfur

    Skáldsagan Ofurnæfur hefur vakið mikla athygli víða um lönd fyrir það hversu góða innsýn höfundurinn, Erlend Loe, gefur í veruleika ungs fólks þar sem gömlum gildum og verðmætum hefur verið hafnað. Gagnrýnendur hafa líkt sögunni við Bjargvættinn í grasinu eftir J. D. Salinger auk þess sem hún minnir um margt á 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason. Þetta er óvenjuleg skáldsaga um ungan mann sem skyndilega veit ekki hvert skal stefna í lífinu. Frásögnin er sposk og barnslega einlæg; sögumaðurinn veigrar sér við að lifa lífinu en leitar um leið ákaft að fótfestu í tilverunni.

    Ofurnæfur er þekktasta verk Norðmannsins Erlends Loe en bókin hefur aflað honum gríðarlegra vinsælda í heimalandinu og verið þýdd á fjölda tungumála. Hann lýsir hér á einfaldan hátt örvæntingu manns sem misst hefur tökin á tilverunni; sagan er einlæg en jafnframt leiftrandi af kímni. Þórarinn Eldjárn þýddi verkið á íslensku.

    „… sjaldgæft að rekast á bækur sem eru skrifaðar af jafn miklu kæruleysi og sannfærandi getu í senn…“
    Huldar Breiðfjörð, Morgunblaðinu

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ég skal hjálpa þér: Saga Auriar

    Ég skal hjálpa þér: Saga Auriar

    Auri Hinriksson á að baki merkilegan lífsferil en hún er þekktust fyrir að hafa aðstoðað fólk ættleitt frá Srí Lanka að finna líffræðilega foreldra sína og fjölskyldu. Auri er fædd í Colombo á Srí Lanka en flutti fertug til Ísafjarðar með eiginmanni sínum, Þóri Hinrikssyni, og fimm ára syni.

    Í þessari áhugaverðu ævisögu, sem rituð er af Herdísi Magneu Hübner, segir Auri frá uppruna sínum, vinnu fyrir stofnanir Sameinuðu þjóðanna sem leiddi hjónin saman og frá lífi víða um lönd en auk Íslands og Srí Lanka, bjó fjölskyldan um tíma á Indlandi, Barein og í Íran. Saga Auriar er einstök frásögn af kjarkmikilli konu sem lætur ekki brjóta sig niður, heldur rís alltaf upp og blómstrar mitt í mótlætinu.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Flóra

    Flóra

    Flóra geymir myndir af flestöllum tegundum íslenskra blómplantna og byrkninga, alls um 460. Hér er megináherslan á að sýna plönturnar sjálfar, fegurð þeirra og sérkenni, fremur en vistfræði, útbreiðslu og flokkunarfræði – því hlutverki gegna fjölmörg önnur verk. Langflestar myndanna eru gerðar eftir lifandi eintökum en annars byggt á bestu heimildum sem völ er á til að gefa sem sannferðugasta mynd af hverri tegund auk þess sem ýmis einkenni eru dregin fram.

    Myndir listamannsins Jóns Baldurs Hlíðberg af íslenskri náttúru, dýrum og foldarskarti, eru löngu kunnar hér á landi auk þess að hafa birst víða erlendis og hlotið þar margháttaða viðurkenningu.

    Fátt jafnast á við að njóta skrúðs og fjölbreytileika blómanna í náttúrunni sjálfri en þegar því verður ekki við komið er gott að geta notið þeirra í myndasafni eins og því sem hér birtist.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Rósa og Björk

    Rósa og Björk

    Hvað varð um Rósu og Björk, yngri systur lögreglukonunnar Hildar, sem hurfu fyrir vestan árið 1994? Í öll þau ár sem liðin eru hefur ekkert til þeirra spurst en nú er Hildur loks komin á spor sem gæti leitt hana áleiðis að lausn gátunnar. Það þarf samt kjark til að horfast í augu við fortíðina …

    Lögreglulífið á Ísafirði er líka allt annað en rólegt og lítill tími til að sinna öðru. Einn af máttarstólpum bæjarins, athafnamaður sem situr í sveitarstjórn, er skotinn til bana uppi í fjalli og Hildur og félagar eru ráðþrota. Hinn myrti var umdeildur, tókst á við pólitíska andstæðinga og einkalífið var skrautlegt svo að ýmsir gætu hafa viljað hann feigan. Og um götur Reykjavíkur reikar manneskja sem á harma að hefna.

    Satu Rämö hefur slegið í gegn með bókunum um hina vestfirsku Hildi. Satu er finnsk en hefur búið lengi á Íslandi. Glæpasögur hennar hafa selst í bílförmum í Finnlandi, Þýskalandi og víðar. Sú fyrsta, Hildur, varð metsölubók hér heima – Rósa og Björk er æsispennandi framhald.

    Erla Elíasdóttir Völudóttir þýddi.

    4.690 kr.
    Setja í körfu