• Dredfúlíur! Flýið!

    Dredfúlíur! Flýið!

    Hávarður, Maríus og Bartek eru mættir aftur. Það styttist í jól og holupotvoríurnar hafa ekki gefist upp. Þeim hefur meira að segja borist andstyggilegur liðsauki. Og hver er þessi Ófelía? Er hún holupotvoría í dulargervi? Útsendari þeirra? Eða eitthvað MIKLU hættulegra? Strákarnir mæta samt öllum áskorunum eins og þeim er einum lagið. Þessi jól bjarga sér ekki sjálf.

    3.190 kr.
    Setja í körfu
  • Draumurinn

    Draumurinn

    Atvikið sem breytti lífi mínu átti sér stað viku áður en Íslandsmótið í 4. Flokki hófst. Refsingin virtist í fyrstu alveg hræðileg og gera endanlega út um drauminn … en reyndist síðan það besta sem hefur komið fyrir mig. Alveg þangað til ég ákvað að hætta í fótbolta.

    Ég hljóp í geðshræringu frá markinu, bjó mig undir geðveikar móttökur hjá strákuknum og fagnaðaróp áhorfenda. En það var bara þögn. Liðsfélagar mínir stóðu í hnapp, ringlaðir á svip og andstæðingarnir – þeir voru brjálaðir! Þeir hópuðust að mér og kölluðu mig öllum illum nöfnum. Dómarinn kom aðvífandi, líka Gunni þjálfari og þjálfari Glámsmanna líka … það var allt að verða vitlaust og ég skildi ekkert. Vorum við ekki að vinna leikinn?

    2.590 kr.
    Setja í körfu
  • Doddi: Ekkert rugl

    Doddi: Ekkert rugl

    Munið þið eftir fyrri bókinni um mig?

    Í þessari bók held ég áfram að fjalla um æsilegt líf mitt og vina minna. Til dæmis fjalla ég um:

    Þegar hitastigið í sambandi okkar Huldu Rósar fór niður að frostmarki.

    Áhyggjur mínar af sambandi mömmu við dularfullan útlending.

    Árangur minn á sviði skordýrafræða og glæsilega framkomu í sjónvarpsþætti.

    Þátttöku í brjóstabyltingu.

    Þegar lögreglan handtók mig á Austurvelli.

    1.590 kr.
    Setja í körfu
  • Doddi: Bók sannleikans!
  • Brásól Brella: Gildrur, gátur og Glundroði

    Brásól Brella: Gildrur, gátur og Glundroði

    Brásól Brella hefur náð tökum á galdrakröftunum sínum. Eða svona nokkurn veginn. Það kemur nefnilega enn fyrir að hún galdri sig í örlítil vandræði. En núna er Kata systir hennar horfin og Brella kannast ekki við að eiga neinn þátt í því.

    Brella heldur af stað í leit að systur sinni. Vísbendingarnar leiða hana gegnum hinn stórhættulega Stóraskóg þar sem heyrst

    hefur af varasömum vampíruveiðurum.

    TEKST BRELLU AÐ FINNA KÖTU OG STÖÐVA ILL RÁÐABRUGG VEIÐARANNA ÁÐUR EN AÐ VERÐUR UM SEINAN?

    Ásrún Magnúsdóttir er með MA-gráðu í enskukennslu og hefur mikinn áhuga á ævintýrum og þjóðsögum. Hún hefur einnig einstakt dálæti á dýrum. Skemmtilegast þykir henni þegar það tvennt blandast saman.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Bekkurinn minn 7 - Bumba er best

    Bekkurinn minn 7 – Bumba er best

    Bumba er best fjallar um Óðin, sem er óvenju daufur í dálkinn þessa dagana. Snjórinn lætur bíða eftir sér og mömmur hans vilja losa sig við köttinn þeirra. Það má ekki gerast! Með hjálp Halldóru vinkonu sinnar finnur Óðinn fullkomna lausn á málinu.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Bekkurinn minn 6 - Jólaleikritið

    Bekkurinn minn 6 – Jólaleikritið

    JÓLALEIKRITIÐ fjallar um Unni Leu og jólaskemmtun bekkjarins. Unnur Lea skrifar leikrit, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið! Hún er viss um að þetta verði flottasta leiksýning allra tíma. Bara ef bekkjarfélagarnir tækju verkefnið alvarlega. Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan
    veggja skólans.

    Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Bekkurinn minn 5 - Varúlfurinn

    Bekkurinn minn 5 – Varúlfurinn

    Varúlfurinn fjallar um Leonoru og orðróminn um varúlfinn í skólanum. Er Héðinn húsvörður í alvörunni varúlfur sem er læstur
    inni í kompu þegar myrkrið skellur á? Daginn fyrir hrekkjavökuna komast Leonora og Ragnar til botns í málinu.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Bekkurinn minn 4 - Hjólahetjan

    Bekkurinn minn 4 – Hjólahetjan

    Hjólahetjan fjallar um Jón Ingva sem lendir í vandræðum með hjólalásinn sinn þegar hann fer með pabba í vinnuna. Feðgarnir þurfa að redda málunum og lenda í óvæntri eftirför á leiðinni heim. Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans.
    Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Bekkurinn minn 3 - Lús!

    Bekkurinn minn 3 – Lús!

    Lús! fjallar um Sigríði og lýsnar sem hreiðra um sig á höfði hennar. Það vill enginn vera með höfuðið fullt af lúsum … eða hvað? Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Bekkurinn minn 2 - Geggjað ósanngjarnt!

    Bekkurinn minn 2 – Geggjað ósanngjarnt!

    GEGGJAD OSANNGJARNT! fjallar um Bjarna Frey sem finnst hann ítrekað hafður fyrir rangri sök. Eitt skiptið er honum nóg boðið og hann strýkur úr frístund ásamt Mikael vini sínum. Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans.

    Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Bekkurinn minn 1 - Prumpusamloka

    Bekkurinn minn 1 – Prumpusamloka

    Prumpusamloka! fjallar um fyrsta skóladag Nadiru, sem nýflutt er til Íslands frá Írak. Við fylgjumst með henni fóta sig í bekknum, kynnast kennaranum og bekkjarfélögunum og læra ný orð, misnytsamleg þó.

    Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans.

    Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

    3.690 kr.
    Setja í körfu