
Rauði fiskurinn
4.690 kr.Simbi litli er eini rauði fiskurinn í himinbláu hafi. Hann leggur upp í ferðalag í von um að finna fleiri fiska sem eru eins og hann. Lesandinn fylgir Simba litla um heit höf og köld – stundum er hann hræddur, stundum hrifinn, en alltaf vongóður um að ná markmiði sínu: að finna lítinn, rauðan leikfélaga og höndla hamingjuna.
Rauði fiskurinn eftir Rúnu, Sigrúnu Guðjónsdóttur, kom fyrst út árið 1972 og síðan 1988 með þeim myndum sem þessi útgáfa skartar. Í sögunni renna texti og myndir áreynslulaust saman í eina heild sem er í senn spennandi og hrífandi. Hér gefst nýjum kynslóðum tækifæri til að kynnast þessari sígildu perlu íslenskra barnabókmennta.
Rauði fiskurinn
Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur myndsköpun Rúnu fundið sér farveg innan leirlistar, bókskreytinga, málverks og hönnunar. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar í gegnum tíðina, svo sem Fálkaorðuna og Íslensku hönnunarverðlaunin.

Bekkurinn minn 9 – Björgum móanum!
3.990 kr.Björgum móanum! Fjallar um Wiktoriu og besta leiksvæðið í bænum. Börnin frétta af því að það eigi að byggja risastóra blokk í miðju hverfinu. Það má ekki gerast! Þau taka höndum saman og mótmæla.
Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.





NammiDagur
4.990 kr.Bráðfyndin hrollvekja í bland við sjóðheita ástarsögu. Dagur og Ylfa ranka við sér í líkhúsinu, hissa á að vakna aftur eftir skotárás sérsveitarinnar. Þau leggja á flótta, húkka sér far út á land og hreiðra um sig í bústað með nóg af grillkjöti í nesti …
En hvaðan kom kjötið og hversu lengi geta bálskotnir unglingar verið saman í bústað án þess að hitni verulega í kolunum?
Höfundar NammiDags hafa hlotið verðskuldað lof lesenda og gagnrýnenda og hafa fengið bæði verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín.



Draugagangur og derby
4.490 kr.Eyvör og Milena byrja að æfa glænýja íþrótt; roller derby!
Æfingarnar breytast þó í rúllandi ráðgátu þegar námskeiðinu er aflýst! Dularfullir atburðir í hjólaskautahöllinni gera það að verkum að það verður að loka henni. Með hjálp nýrra vina taka Eyvör og Milena málin í sínar hendur og reyna að leysa ráðgátuna.

Bekkurinn minn 8 – Hendi!
3.690 kr.Hendi! fjallar um fótboltastrákinn Hallgrím og eftirminnilegt atvik á battavellinum. Þegar þeir Amir keppa á móti eldri krökkum í fótbolta heyra þeir sögu sem ásækir þá. Missti Úlfur í alvörunni höndina í ísbjarnarárás á Grænlandi? Eða var það hákarl?
Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

Kærókeppnin
4.990 kr.Davíð og Natalía hafa verið bestu vinir síðan þau fæddust. Þau hafa líka verið að keppa síðan þau fæddust. Nú etja þau kappi í splunkunýrri keppni sem gengur út á að komast í samband. Upphitun sem setur tóninn, brösuglegt upphaf, æsispennandi framvinda og óvæntar lokamínútur. Fótbolti, handbolti og körfubolti eru alltaf í kringum okkur. En það er ekki á hverjum degi sem þér gefst tækifæri til að fylgjast með beinni textalýsingu á kærókeppni! Þetta stefnir í hörkukeppni!
