• Vinur minn, vindurinn

    Vinur minn, vindurinn

    Getur þú blásið eins og vindurinn, öskrað eins og rokið og hvíslað eins og golan?

    Bækur Bergrúnar Írisar hafa frá upphafi vakið athygli og aðdáun jafnt hjá ungum sem öldnum lesendum og hlotið fjölda tilnefninga og verðlauna. Fyrstu myndabækur hennar, Vinur minn, vindurinn og Sjáðu mig, sumar? eru hér samankomnar í endurbættri útgáfu í einu fallegu verki sem gleður augað og eykur orðaforðann um uppáhaldsumræðuefni Íslendinga – veðrið.

    3.490 kr.
    Setja í körfu
  • Ævintýri Munda lunda

    Ævintýri Munda lunda

    Það verður uppi fótur og fit, eða öllu heldur loppur og sundfit, þegar Mundi lundi bætist í fjölskylduna. Þó hundarnir Spotti og Flækja vilji leika verður ekki það sama sagt um Ólíver sem stöðugt reynir koma fuglinum fyrir kattarnef. Saman lendir hópurinn í ótrúlegustu ævintýrum.

    2.590 kr.
    Setja í körfu
  • Þegar Ólíver talar

    Þegar Ólíver talar

    Við höfum öll okkar fjölbreyttu blæbrigði og styrkurinn felst í því að þykja vænt um fjölbreytileikann og nýta allt sem við höfum til að gera lífið betra. Við getum verið stór, lítil, hávær, hljóð, góð á bókina og handlagin. Sumir tala mikið á meðan öðrum þykir betra að hlusta. Allt eru þetta kostir ef við leyfum okkur að sjá þá sem slíka og það er einmitt verkefnið sem Óliver tekst á við í þessari bók. Eitt af sérkennum Ólivers er að hann stamar og fá lesendur að sjá hvernig honum tekst að finna sjálfstraustið og leyfa samferðafólki sínu að njóta þess að heyra allt það áhugaverða sem hann hefur frá að segja.

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Villueyjar (kilja)

    Villueyjar (kilja)

    Á Útsölum stendur aðeins eitt hús: Skólahúsið. Frá því Arilda man eftir sér hefur þessi skóli verið hennar annað heimili. Hún hefur aldrei velt því fyrir sér hvers vegna hann standi á eyju sem annars er í eyði, ekki fyrr en daginn sem hún heldur inn á miðja eyjuna og villist í þokunni.
    Eftir það breytist allt.

    Smám saman rennur það upp fyrir Arildu að hún getur engum treyst. Hún verður sjálf að leita svara, ekki bara um hryllinginn sem býr á Útsölum heldur einnig um sína eigin fjölskyldu.

    Villueyjar er önnur bók Ragnhildar Hólmgeirsdóttur sem hlaut mikið lof fyrir sína fyrstu bók, Koparborgina. Koparborgin hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar en var auk þess tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, auk Fjöruverðlaunanna í sínum flokki.

    2.790 kr.
    Setja í körfu
  • Villueyjar

    Villueyjar

    Á Útsölum stendur aðeins eitt hús: Skólahúsið.

    Frá því Arilda man eftir sér hefur þessi skóli verið hennar annað heimili. Hún hefur aldrei velt því fyrir sér hvers vegna hann standi á eyju sem annars er í eyði, ekki fyrr en daginn sem hún heldur inn á miðja eyjuna og villist í þokunni. Eftir það breytist allt.

    Smám saman rennur það upp fyrir Arildu að hún getur engum treyst. Hún verður sjálf að leita svara, ekki bara um hryllinginn sem býr á Útsölum heldur einnig um sína eigin fjölskyldu.

    Villueyjar er önnur bók Ragnhildar Hólmgeirsdóttur sem hlaut mikið lof fyrir sína fyrstu bók, KoparborginaKoparborgin hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar en var auk þess tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, auk Fjöruverðlaunanna í sínum flokki.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • VeikindaDagur

    VeikindaDagur

    Þetta byrjaði þegar ég gleymdi að taka lyfin. Fimm dögum síðar ligg ég í líkhúsinu … dáinn og stjarfur á köldu stálborðinu. Dagur er eitthvað svo ólíkur sjálfum sér, með botnlausa matarlyst, dynjandi höfuðverk, gloppur í minninu og óteljandi spurningar. Hvað varð eiginlega um Breka? Af hverju er auga í klósettinu? Á hann kannski séns í Ylfu Dögg?

    Þetta byrjaði allt þegar ég gleymdi að taka lyfin mín. Fimm dögum síðar ligg ég í líkhúsinu … dáinn og stjarfur á hrollköldu stálborðinu.

    Dagur er eitthvað svo ólíkur sjálfum sér, með botnlausa matarlyst, dynjandi höfuðverk, gloppur í minninu og óteljandi spurningar. Hvað varð eiginlega um Breka? Af hverju er auga í klósettinu? Á hann kannski séns í Ylfu Dögg?

    VeikindaDagur er æsispennandi hrollvekja eftir þau Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og Sigmund Breiðfjörð. Sögur þeirra og teikningar hafa heillað lesendur um árabil en í þessari blóðugu bók halda þau á nýjar og hræðilegar slóðir. Bókin er prýdd ótal ógnvekjandi teikningum og er ALLS EKKI fyrir viðkvæma!

    4.490 kr.
    Setja í körfu
  • Töfralandið

    Töfralandið

    Töfralandið er lofsöngur Bergrúnar um bækur, því hún veit að bækurnar geyma það besta og þú sérð það líka um leið og þú lest það!

    3.490 kr.
    Setja í körfu
  • Tarotspil norrænna goðsagna - Spilastokkur (enska)

    Tarotspil norrænna goðsagna – Spilastokkur (enska)

    Seek answers about the past, present, and future, and a deeper understanding of yourself, through the Nordic Myths Tarot Cards. The author, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, has reimagined the tarot from the perspective of Nordic mythology.

    The Nordic Myths Tarot is based on the Eddas but is true to the traditional Rider-Waite-Smith-tarot, with an additional card unique to this deck.

    Included in this box:
    79 full-color tarot cards and 3 informative cards

    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Tarot - Spil íslensk
  • Tarotspil norrænna goðsagna - askja

    Tarotspil norrænna goðsagna – askja

    Leitið svara um fortíð, nútíð og framtíð og öðlist dýpri skilning á ykkur sjálfum með aðstoð Tarotspila norrænna goðsagna. Í öskjunni er spilastokkur og bók með ítarlegum skýringum, fróðleik og tarot-lögnum.

    Höfundur spilanna, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, hefur endurhugsað tarotspilin út frá sjónarhorni norrænnar goðafræði. Tarotspil norrænna goðsagna byggja á eddukvæðum og Snorra-Eddu en fylgja forskrift hefðbundinna Rider-Waite-Smith tarotspila.

    8.990 kr.
    Setja í körfu
  • The Adventures of Mundi the Puffin

    The Adventures of Mundi the Puffin

    Things really get interesting when Mundi the blind puffin joins the family!

    The two dogs Fly and Spot, love to play with their new friend but the same cannot be said for the cat of the household, who constantly tries to spoil the fun. Together this band of friends gets into all kinds of exciting adventures.

    This is the author’s third book and is dedicated to the memory of Mundi the blind puffin and his thousands of social media friends from all around the world. And it’s thanks to the talents of Iðunn Arna that these colorful characters come to life through her wonderful illustrations.

    2.590 kr.
    Setja í körfu
  • Stelpur stranglega bannaðar

    Stelpur stranglega bannaðar

    Bíddu ha?

    Sónarmynd… í símanum hennar ömmu?

    GÆTU HLUTIRNIR MÖGULEGA ORÐIÐ EITTHVAÐ VERRI?

    Nýja stelpan í bekknum er búin að stela bestu vinkonu Þórdísar. Staða hennar sem eina stelpan í stórfjölskyldunni er kannski í hættu. Þórdís vonar að þetta séu óþarfa áhyggjur; að hún haldi stöðu sinni í fjölskyldunni og nái að endurheimta bestu vinkonu sína.

    Hún þráir ekkert heitar en að allt verði eins og áður.

    4.390 kr.
    Setja í körfu