- -15%

- -15%

Allt í himnalagi hjá Eleanor Oliphant
Original price was: 990 kr..842 kr.Current price is: 842 kr..Eleanor Oliphant lifir einföldu lífi: Hún fer í vinnuna, alltaf eins klædd, borðar alltaf sama hádegismatinn, kaupir tvær vodkaflöskur fyrir hverja helgi og drekkur þær. Samstarfsfólkið telur hana stórskrítna en það er allt í himnalagi hjá henni, hún er ánægð með lífið og saknar einskis. Eða alls.
Eitthvað hefur komið fyrir hana, eitthvað sem skýrir hegðun hennar, örin í andliti hennar, múrana sem hún hefur reist í kringum sig. En hvað er það? Og svo gerist atvik sem brýtur upp hversdagsleikann, neyðir hana til að horfast í augu við allt sem hún hefur afneitað og færir henni ný tengsl við lífið.
Gail Honeyman er skoskur rithöfundur sem stundaði háskólanám í Glasgow og Oxford. Allt í himnalagi hjá Eleanor Oliphant er fyrsta skáldsaga hennar og var tilnefnd til virtra bókmenntaverðlauna og seld til fjölmargra landa áður en hún kom út.
- -15%

Unser leuchtendes Leben
Original price was: 4.690 kr..3.987 kr.Current price is: 3.987 kr.. - -15%

Dúnstúlkan í þokunni
Original price was: 1.990 kr..1.692 kr.Current price is: 1.692 kr.. - -15%

Þrenna
Original price was: 5.190 kr..4.412 kr.Current price is: 4.412 kr..Bókin Þrenna samanstendur af bókunum Ár og sprænur; hulda ráðgátan, Ranimosk og Litlu sögurnar í hálfa samhenginu. Í bókunum koma meðal annars fram Penni Gúm, sem fann Penny Lane á You Tube, og Háloftamígur. Þar að auki er að finna prósa í hugleiðingaformi sem hverfast um vangaveltur höfundar um málefni líðandi stundar, texta sem ekki urðu að sjálfstæðum bókum ásamt endurminningum sem dansa á línu raunveruleika og skáldskapar.
Verk Einars Guðmundssonar tengjast framúrstefnuhreyfingum í myndlist fremur en því sem var efst á baugi í íslenskum bókmenntum. Sá tilraunaandi sem ríkir í verkum hans er vandfundinn í verkum annarra skáldsagnahöfunda. Eftir Einar liggja yfir 20 bækur, og eru margar þeirra orðnar efirsóttar meðal safnara. Meðal fyrri bóka Einars eru Harry the Caveman (1970), Lablaða hérgula (1975), Flóttinn til lífsins (1976) og Án titils (1978).
Bókin er gefin út í 300 tölusettum eintökum.
- -15%

- -15%

- -15%

- -15%

Drottningarnar í Garðinum
Original price was: 4.190 kr..3.562 kr.Current price is: 3.562 kr..Hópur kynlífsverkakvenna er á næturrölti í Sarmiento-garðinum í Córdoba, Argentínu. Þær heyra barnsgrát í nóttinni. Encarna frænka, leiðtogi þeirra, ryður sér leið í gegnum skógarþykknið og finnur barn, sem hún tekur að sér, eins og hún hefur tekið margar útskúfaðar konur að sér, þar á meðal Camilu. Í bleika húsinu hennar Encörnu frænku finnst skjól fyrir daglegum ógnum, sjúkdómum og ofbeldi af hálfu kúnna, lögregluþjóna og ástmanna. Mállaus kona umbreytist í fugl, hauslaus maður flýr stríð og Camila berst fyrir að ráða lífi sínu og kyngervi sjálf. Raunveruleikinn er sveipaður töfrum drungalegs ævintýris. Drottningarnar í garðinum hefur verið þýdd á ótal tungumál og unnið til margra verðlauna. Höfundurinn Camila Sosa Villada er einnig leikkona og baráttukona.
- -15%

- -15%

Þessir djöfulsins karlar
Original price was: 4.190 kr..3.562 kr.Current price is: 3.562 kr.. - -15%

Veðurfregnir og jarðarfarir
Original price was: 3.990 kr..3.392 kr.Current price is: 3.392 kr..Veðurfregnir og jarðarfarir er skáldsaga þriggja kynslóða sem gerist á mismunandi stöðum: á Íslandi, í Frakklandi og Póllandi. Veðurfræðingurinn Lena, sem er aðalpersóna ferðast um tíma og rúm í leit að sátt við lífið og fortíðardrauga. Íslenskar veður- og náttúrulýsingar eru aðalhrynjandi sögunnar og í þeim endurspeglast tilfinningar og ástarmál veðurfræðingsins. Hugleiðingar um dauðann og missi slá mikilvægan tón í frásögninni líkt og samskipti milli mæðgna, vinkvenna, systkina.
