









Vince Vaughn í skýjunum
990 kr.Á internetinu geta allir orðið stjörnur. Áður óþekkt fólk er á allra vörum einn daginn en öllum gleymt þann næsta. Verðum við kannski öll heimsfræg í 15 mínútur eftir allt saman?
Sara og Þórir – menntaskólastelpa sem vinnur í sundlaug og háttprúður Lottókynnir í sjónvarpinu – eru með öllu óviðbúin frægðinni þegar hún steypist yfir þau. Hann verður alræmdur á Íslandi, hún alþjóðleg stjarna. Hvernig bregðast þau við?
Halldór Armand Ásgeirsson (f. 1986) er ný rödd í íslenskum bókmenntum. Leikrit hans Vakt var sýnt í Norðurpólnum 2010 við góðar undirtektir og í ár fékk hann nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir sögurnar í þessari bók.

Sónata fyrir svefninn
1.290 kr.Ung kona kemur til ókunnugs bæjar, með heimilisfang á bréfmiða og lykla í vasanum. Ferðinni er heitið í íbúð á efstu hæð í gömlu húsi, þar sem ekki er allt sem sýnist. Hún leitar horfins manns og hefur ástæðu til að ætla að hann sé að finna í bænum. En hvernig á að leita þeirra sem ferðast utan eigin líkama?
Sónata fyrir svefninn er önnur skáldsaga Þórdísar Björnsdóttur en frumraun hennar á því sviði, Saga af bláu sumri, fékk frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda.
„(Þórdís Björnsdóttir) nær fullkomlega að stilla saman þá strengi sem þarf til að skapa eftirminnilega og áhugaverða sögu, sem er bæði staðfesting á þeim hæfileikum sem skáldkonan hefur þegar sýnt og gefur góð fyrirheit um framhaldið.“
Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is, um Sögu af bláu sumri„Eins og viðvarandi fantastiskt augnablik … dökkblár ástaróður til lífsins.“
Ása Helga Hjörleifsdóttir, Víðsjá, um Sögu af bláu sumri
