- -15%

Ríkisfang: Ekkert
Original price was: 1.290 kr..1.097 kr.Current price is: 1.097 kr..Haustið 2008 flúðu átta fjölskyldur skelfilegar aðstæður í Al Waleed-flóttamannabúðunum og fengu hæli á Akranesi. Allt voru þetta einstæðar mæður með börn, af palestínsku bergi brotnar en höfðu alið allan sinn aldur í Írak. En hvað rak þær á flótta?
Sigríður Víðis kynntist konunum og sögu þeirra og fjallar hér af yfirsýn og þekkingu um landlausa Palestínumenn, innrásina í Írak, flóttamannabúðir í einskismannslandi og leiðina löngu á Skagann. Í forgrunni eru tvær þeirra kvenna sem hingað komu: Ayda sem varð að skilja elsta barnið sitt eftir í Írak og Lína sem flúði ásamt þremur ungum börnum og fann hamingjuna á ný á Íslandi.
Ríkisfang: Ekkert er einstök frásögn um pólitísk átök undangenginna áratuga í Mið-Austurlöndum og fólkið sem lifir og hrærist í skugga þeirra. - -15%

Vegabréf: Íslenskt
Original price was: 1.290 kr..1.097 kr.Current price is: 1.097 kr..Í Vegabréf: Íslenskt ferðast Sigríður Víðis Jónsdóttir með lesendum um heiminn, heimsækir til að mynda brunadeild á sjúkrahúsi í Afganistan, dvelur í völundarhúsi í Sýrlandi, hittir börn í gullnámu í Búrkína Fasó og kynnist flóttafólki í Suður-Súdan. Í Eþíópíu búa geimverur á Hilton-hótelinu og í Mjanmar hvíslar fólk um stjórnvöld.
Í gegnum frásagnir af fólki á hverjum stað miðlar Sigríður heimssögunni af einstakri næmni og virðingu og minnir okkur á að þrátt fyrir að höf og eyðimerkur skilji okkur að búum við öll undir sama himni, sömu sól.
- -15%

Aksturslag innfæddra
Original price was: 1.990 kr..1.692 kr.Current price is: 1.692 kr..Í þessari bók birtast sjö smásögur sem allar eru sprottnar úr raunveruleikanum. Við sögu kemur fjölbreyttur hópur fólks sem lesendur kannast hugsanlega við. Sögurnar segja frá stuttum tímabilum eða einstökum viðburðum í lífi sögupersóna, eða lýsa jafnvel heilli ævi.
Hér er greint frá atburðum sem gætu virst hversdagslegir og smávægilegir við fyrstu sýn en ef lesið er á milli línanna endurspegla þeir stærri og flóknari hliðar tilverunnar.
Þórdís Gísladóttir hefur þýtt og skrifað fjölda barna- og unglingabóka, ljóðabækur, sjónvarpshandrit og skáldsögu fyrir fullorðna. Hún hefur getið sér orð fyrir að skrifa leikandi léttan texta sem einkennist af orðfimi og húmor og varpar nýstárlegu ljósi á hvunndaginn og samtímann. Verk hennar höfða til fjölbreytts hóps lesenda á öllum aldri.
Þórdís hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2010 fyrir fyrstu ljóðabók sína, Leyndarmál annarra, og hefur síðan hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga fyrir frumsamin og þýdd verk.
- -15%

- -19%

Útlit loptsins
Original price was: 15.990 kr..12.990 kr.Current price is: 12.990 kr..Útlit loptsins er í senn myndlistarverk í 366 hlutum, athugun á veðri tveggja ára á ólíkum öldum og dagbók höfundarins. Einar Falur var staðarlistamaður í Vatnasafni í Stykkishólmi þegar hann byrjaði að skrá í ljósmynd veðrið á hádegi dag hvern, hvar sem hann var staddur. Jafnframt bar hann opinbera veðurskráningu þess staðs saman við veðurathugun Árna Thorlaciusar kaupmanns í Stykkishólmi 170 árum fyrr sem var fyrstur Íslendinga til að skrásetja veður með markvissum hætti. Jón Kalman Stefánsson ritar formála og Einar Falur inngang. Einnig er birt ljóð eftir Anne Carson um veðrið í Stykkishólmi. Sigrún Sigvaldadóttir hannar ásamt höfundi.
- -15%

- -15%

Eggert Pétursson
Original price was: 15.490 kr..13.167 kr.Current price is: 13.167 kr..Bókin um Eggert Pétursson inniheldur 109 myndir af málverkum listamannsins og greinar um verk hans, ævi og feril.
- -15%

The Final Solution
Original price was: 1.290 kr..1.097 kr.Current price is: 1.097 kr.. - -15%

- -15%

Kalt er annars blóð
Original price was: 1.290 kr..1.097 kr.Current price is: 1.097 kr..Í Kalt er annars blóð er glæpasagnaformið fléttað glæsilega saman við íslenska sagnahefð og íslensk örlög í nútíð og fortíð eins og Þórunni Jörlu einni er lagið. Í kuldalegri Reykjavíkurborg flögrar krummi um og fylgist með viðburðum sem draga munu dilk á eftir sér; hann sér margt sem mannleg augu sjá ekki – peningar skipta um hendur, kettir eru keyrðir niður, hús brennd og menn skotnir eins og skepnur.
Þegar Ása finnur af tilviljun lík í malarhaugi norðan heiða ber margt fyrir augu sem áður hefur verið hulið – hvað rekur fólk til að ryðja öðrum úr vegi og hvað gerist þegar hömlurnar hverfa ein af annarri?
Kalt er annars blóð, sem sækir efnivið m.a. í Njálu, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2007.
- -15%

- -15%

