• Elín, ýmislegt

    Elín, ýmislegt

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Aprílsólarkuldi
  • Höfundur Íslands

    Höfundur Íslands

    Fremsti höfundur Íslands vaknar í brekku í afskekktum dal við það að lítill strákur potar í hann. Hvar er hann? Er hann lifandi eða dauður? Ekki minnkar undrun gamals manns þegar þungstígur bóndi, forn í skapi og illúðlegur, tekur hann í fangið og ber hann heim í sitt frumstæða kot, þar sem margt er kunnuglegt. Er hann staddur í eigin höfundarverki?

    Höfundur Íslands (2001) eftir Hallgrím Helgason er margslungin og nýstárleg saga sem leiðir lesandann í ótrúlega ferð um íslenskan menningarheim liðinnar aldar. Um leið er tekist á við áleitnar spurningar um samband höfundar og verks, veruleika og skáldskapar, lífs og dauða. Þetta er hrífandi og ögrandi skáldsaga sem öðrum þræði er uppgjör við 20. öldina. Fyrir hana hlaut Hallgrímur Íslensku bókmenntaverðlaunin.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Sextíu kíló af sólskini (kilja)

    Sextíu kíló af sólskini (kilja)

    Drengur sem bjargast fyrir kraftaverk hlýtur að eiga framtíð en það er eins og forlögin geti ekki gert upp við sig hver sú framtíð eigi að vera. Á hann að vera eftirlæti kaupmannsins á Fagureyri, þræll á framandi duggu eða niðursetningur hjá kotungum í Segulfirði?

    Í stöðnuðu samfélagi torfaldar eru ekki fleiri möguleikar – en svo kemur síldin! Öreigar landsins sjá peninga í fyrsta sinn og allt breytir um svip.

    Sextíu kíló af sólskini er fyrsta bindið í Sextíu kílóa sögu Hallgríms Helgasonar um síldarævintýrið á Segulfirði og fylgifiska þess. Hér segir af því þegar nútíminn sigldi til hafnar á Norðurlandi og Norðmenn námu landið öðru sinni. Saga sem bæði grætir og gleður.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Sextíu kíló af sólskini

    Sextíu kíló af sólskini

    „Og nú stóð hann hér, Eilífur, einn á breiðri snjóblæjunni, sveittur af angist og hugsaði: Þrjú kíló hveiti fyrir þetta? Þrjú kíló hveiti fyrir bú mitt, konu, börn og kú? Þrjú kíló hveit fyrir allt mitt líf? En þá heyrði hann allt í einu baulað undir fótum sér.“

    Drengur sem bjargast fyrir kraftaverk hlýtur að eiga framtíð en það er eins og forlögin geti ekki gert upp við sig hver sú framtíð eigi að vera. Á hann að vera eftirlæti kaupmannsins á Fagureyri, þræll á framandi duggu eða niðursetningur hjá kotungum í Segulfirði?

    Í stöðnuðu samfélagi torfaldar eru ekki fleiri möguleikar – en svo kemur síldin! Öreigar landsins sjá peninga í fyrsta sinn og allt breytir um svip.

    Sextíu kíló af sólskini er fyrsta bindið í Sextíu kílóa sögu Hallgríms Helgasonar um síldarævintýrið á Segulfirði og fylgifiska þess. Hér segir af því þegar nútíminn sigldi til hafnar á Norðurlandi og Norðmenn námu landið öðru sinni. Saga sem bæði grætir og gleður.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ör

    Ör

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Draumalandið

    Draumalandið

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Hjartastaður

    Hjartastaður

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Illska

    Illska

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Gula húsið

    Gula húsið

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Sumarljós, og svo kemur nóttin

    Sumarljós, og svo kemur nóttin

    Við ætlum ekki að segja frá öllu þorpinu, förum ekki hús úr húsi, en hér verður þó örugglega sagt frá girndinni sem hnýtir saman daga og nætur, frá einmana bónda og fjögur þúsund ára gamalli múmíu. Við segjum frá hversdagslegum atburðum, en líka þeim sem eru ofvaxnir skilningi okkar; menn hverfa, draumar breyta lífi. Og að sjálfsögðu ætlum við að segja þér frá nóttinni sem hangir yfir okkur, frá dögunum sem koma og fara, frá fuglasöng og síðasta andartakinu – þetta verða áreiðanlega margar sögur.

    Jón Kalman Stefánsson hefur á undanförnum árum skapað persónulegan og seiðandi sagnaheim í röð tengdra skáldsagna og smásagna. Tvö þessara verka, Sumarið bakvið brekkuna og Ýmislegt um risafurur og tímann, voru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs á sínum tíma. Jón Kalman heldur hér áfram að víkka út sagnaheim sinn, nú með þessu óvenjulega safni tengdra sagna og brota. Sögusviðið er smáþorp á Vesturlandi þar sem hver íbúinn á fætur öðrum reikar ráðþrota um villugjörn öngstræti hjartans.

    1.990 kr.
    Setja í körfu