• Sofðu ást mín

    Sofðu ást mín

    Barn í Lapplander-jeppa leitar að griðastað fyrir randaflugu uppi á hálendinu, ungur maður leitar að orði sem nær yfir ástina, nýbakaður faðir fer í pílagrímaferð til Lególands og allir draumar rætast þegar fjárfestir kaupir sér risaeðlu og heldur einkapartí með Duran Duran.

    Sofðu ást mín geymir sjö raunsæjar og persónulegar sögur eftir Andra Snæ Magnason. Saman mynda þær einlægan streng sem fyllir upp í óvenju fjölbreytt höfundarverk hans.

    Bækur Andra Snæs hafa notið gríðarlegra vinsælda og unnið til verðlauna innan lands og utan. Fyrir sléttum tuttugu árum sendi hann frá sér smásagnasafnið Engar smá sögur sem enn nýtur mikilla vinsælda. Hér koma loksins nýjar smásögur eftir þessa einstöku rödd í íslenskum bókmenntum.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Allt fer

    Allt fer

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Gula húsið

    Gula húsið

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Smásögur - Faulkner

    Smásögur – Faulkner

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Margsaga

    Margsaga

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Sérðu það sem ég sé

    Sérðu það sem ég sé

    Sérðu það sem ég sé hefur að geyma tólf listilega samansettar smásögur sem veita ferskum og kitlandi andblæ inn í líf lesandans. Hér sýnir Þórarinn Eldjárn enn á ný að fáir standa honum á sporði í smásagnagerð.

    Sögurnar eru ólíkar að efni og stil. Allar bera þær hins vegar merki einstakrar frásagnargáfu þar sem saman fer hnitmiðuð uppbygging og örugg tök á tungumálinu. Gamansemin er ismeygileg en reynist oft egghvöss þegar betur er að gáð og kippir stundum fótunum undan lesandanum.

    Þórarinn kemur víða við í sögunum enda er honum fátt óviðkomandi. Hér segir af hremmingum íslenskra ungmenna í París, afdrifaríkum feluleik barna á Íslandi, deilum jurtasafnara og fuglaskoðara, magnaðri níðstöng og vandamálum við skráningu örnefna á íslenskum landnámsjörðum, svo fátt eitt sé nefnt.

    Bækur Þórarins Eldjárns hafa um árabil notið mikilla vinsælda. Sérðu það sem ég sé mun án vafa auka hróður hans enn frekar.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Kannski er pósturinn svangur