- -15%

Til hamingju með að vera mannleg
Original price was: 5.190 kr..4.412 kr.Current price is: 4.412 kr..Til hamingju með að vera mannleg er kröftug og falleg, fyndin og átakanleg ástarjátning til lífsins eftir dansarann og danshöfundinn Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Ljóðin skrifaði hún á meðan hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð í heimsfaraldri. Vorið 2023 var frumsýnt dansleikverk með sama nafni á stóra sviði Þjóðleikhússins, byggt á textum hennar.
- -15%

- -15%

Morðin á heimavistinni
Original price was: 5.490 kr..4.667 kr.Current price is: 4.667 kr..Sjálfstæð skáldsaga eftir höfund metsölubókanna um systurnar sjö. Nemi í fínum heimavistarskóla deyr skyndilega. Skólayfirvöld afgreiða andlátið sem slys en Jazmine „Jazz“ Hunter er send til að rannsaka málið. Á sama tíma reynir hún að standast persónutöfra fyrrverandi eiginmanns síns sem vill að þau taki saman á ný. En þá fer morðunum að fjölga.
Charlie Cavendish, nemi í fínum litlum heimavistarskóla í Norfolk, deyr skyndilega. Skólayfirvöld eru fljót að afgreiða andlát hans sem slys en þrýstingur föður hans verður til þess að Jazmine „Jazz“ Hunter rannsóknarfulltrúi er send ásamt aðstoðarmanni sínum til að rannsaka málið. Brátt kemur í ljós að Charlie var myrtur og að hann lagði samnemendur sína í einelti. Var um hefnd að ræða? Jazz verður að svara þeirri spurningu og komast að því hvort sjálfsmorð prófessors við skólann tengist morðinu. Á sama tíma reynir hún að standast persónutöfra fyrrverandi eiginmanns síns sem vill að þau taki saman á ný. En þá fer morðunum að fjölga …
Lucinda Riley er höfundur bókaflokksins um systurnar sjö sem notið hefur gífurlegra vinsælda undanfarin ár. Morðin á heimavistinni er sjálfstæð skáldsaga.
- -15%

Safnasafnið – Kiko Kiorrio – Sýnisbók safneignar IV
Original price was: 5.490 kr..4.667 kr.Current price is: 4.667 kr..Í bókinni er sagt frá alþýðulistamanninum Þórði Valdimarssyni (1922- 2002) sem ávallt kallaði sig Kiko Korriro. Bókin er prýdd myndum af verkum listamannsins sem var afar afkastamikill. Lífshlaup og listsköpun Kiko er rakin í greinandi textum eftir Níels Hafstein, Aðalstein Ingólfsson og Þórð Sverrisson.
- -15%

Safnasafnið – Svava Skúladóttir – Sýnisbók safneignar VIII
Original price was: 5.490 kr..4.667 kr.Current price is: 4.667 kr..Svava Skúladóttir (1909-2005) byrjaði að skapa þegar hún var komin á efri ár og hóf að nýta sér verkstæði fyrir félagsstarf eldri borgara. Í bókinni er teikningar, málverk og skúlptúrar Svövu til umfjöllunar en þau bera þess merki að vera sköpuð hratt og af einurð, óttaleysi og lífsorku.
Bókin geymir æviágrip listakonunnar, greiningu verka hennar eftir Níels Hafstein sem og texta eftir Sigríði Ágústdóttur.
- -15%

Safnasafnið – Ragnar Hermannsson – Sýnisbók safneignar VII
Original price was: 5.490 kr..4.667 kr.Current price is: 4.667 kr..Í bókinni eru kynnt verk eftir alþýðulistamanninn Ragnar Hermannsson (1992-2009) sem var frá Flatey á Skjálfanda. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda ef verkum Ragnars ásamt greinandi úttekt á verkum hans og starfsaðferðum eftir Níels Hafstein.
- -15%

Safnasafnið – Mannsmynd – Sýnisbók safneignar IX
Original price was: 5.490 kr..4.667 kr.Current price is: 4.667 kr..Bókin sýnir valin listaverk úr safneign Safnasafnsins sem eiga það sameiginlegt að spegla og formgera hugmyndir fólks af mannslíkamanum og mannsmyndinni í ýmsum miðlum. Níels Hafstein ritaði ítarlega greiningu á viðfangsefninu.
- -15%

Safnasafnið – Ingvar Ellert – Sýnisbók safneignar X
Original price was: 5.490 kr..4.667 kr.Current price is: 4.667 kr..Í bókinni eru kynnt verk eftir Ingvar Ellert Óskarsson (1944-1992). Þó myndheimur Ingvars væri flókinn dró hann ýmsar persónur og fyrirbæri fram í dagsljósið, oft með einföldum hætti en líka í flúri og útúrdúrum.
Bókin er prýdd fjölda ljósmynda af verkum hans ásamt úttekt á lífshlaupi hans og viðkynnum af geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi. Níels Hafstein ritar greiningu um listamanninn og Guðmundur Vignir Óskarsson um lífshlaup hans.
- -15%

Safnasafnið – GÍA – Sýnisbók safneignar XI
Original price was: 5.490 kr..4.667 kr.Current price is: 4.667 kr..GÍA fjallar um verk og listferil Gígju Guðfinnu Thoroddsen (1957-2021), eða GÍU eins og hún kallaði sig. Verk GÍU hafa ríkar skírskotanir til listasögunnar, samfélagsins, andlegra þátta, þekktra einstaklinga, arkitektúrs og svo í eigin reynsluheim, sem hún miðlaði af áræðni og örlæti, þá sérstaklega sem virkur notandi geðheilbrigðisþjónustu hér á landi.
Bókin er prýdd fjölda ljósmynda af verkum hennar ásamt greinandi úttekt eftir Margrét M. Norðdahl og textum frá Atla Bollasyni, Ástu Thoroddsen og Níelsi Hafstein.



