• Delluferðin

    Delluferðin

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Eyland
  • Eldarnir

    Eldarnir

    Skáldin mega hjala um ástina, en ég þekki hana, hef séð hana að verki. Hún er ekkert annað en náttúruhamfarir.

    Jarðskjálftar skekja Reykjanesskaga, eldfjöllin eru vöknuð til lífsins eftir 800 ára hlé. Enginn þekkir þau betur en eldfjallafræðingurinn Anna Arnardóttir, forstöðumaður Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við stærsta verkefni ferilsins við stjórn almannavarna. En áferðarfallegt og hamingjuríkt líf hennar lætur ekki lengur að stjórn.

    Eldarnir eru þriðja skáldsaga Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Fyrri bækur hennar, Eyland og Hið heilaga orð, hafa vakið verðskuldaða athygli og verið þýddar á fjölda tungumála.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Stúlka með perlueyrnalokk
  • Náðarstund

    Náðarstund

    Árið 1829 bíður kona aftöku sinnar á norðlenskum sveitabæ. Agnes Magnúsdóttir hefur verið dæmd til dauða ásamt tveimur ungmennum fyrir hrottalegt morð á elskhuga sínum og öðrum manni. Henni er komið fyrir hjá hreppstjóranum á meðan beðið er eftir dómi Hæstaréttar í Kaupmannahöfn.

    Heimilisfólkið óttast hana og forðast; enginn sýnir henni skilning nema ungur aðstoðarprestur sem hefur verið falið að búa hana undir dauðann. Í samtölum þeirra og upprifjunum Agnesar opinberast smátt og smátt harmsaga hennar, ást hennar á Natani Ketilssyni og aðdragandi skelfingarnæturinnar á Illugastöðum.

    Hannah Kent var skiptinemi á Sauðárkróki þegar hún heyrði söguna um síðustu aftöku á Íslandi og heillaðist svo af henni að hún skrifaði um hana sína fyrstu skáldsögu, Náðarstund. Hér dregur hún upp margræða mynd af íslenskum raunveruleika, harðri lífsbaráttu, drungalegu myrkri og björtum nóttum, heitum tilfinningum og hörmulegum örlögum. Bókin hefur komið út víða um lönd, hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga og nú er kvikmynd eftir sögunni í undirbúningi.

    Jón St. Kristjánsson þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Hreinsun

    Hreinsun

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Grónar götur

    Grónar götur

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Það sem við tölum um þegar við tölum um ást
  • Frú Bovary

    Frú Bovary

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Kajak drekkhlaðinn af draugum
  • Enginn venjulegur lesandi
  • Tól

    Tól

    Kvikmyndagerðarkonan Villa Dúadóttir situr fyrir svörum á heimildamyndahátíð í Stokkhólmi en spurningarnar vefjast fyrir henni. Nákvæmlega hvernig tengdist hún hvalveiðimanninum Dimma, sem myndin hennar fjallar um? Hvers vegna vildi hún segja sögu hans? Er yfirleitt viðeigandi að hún geri það? Og hvað með Amalíu, sem hún klippti út úr myndinni?

    Líkt og í fyrri verkum Kristínar Eiríksdóttur virðist allt blasa við en ekkert er sem sýnist. Frásögnin heldur lesandanum föngnum, nærgætin og miskunnarlaus í senn.

    1.290 kr.
    Setja í körfu