• Nóttin sem öllu breytti: snjóflóðið á Flateyri

    Nóttin sem öllu breytti: snjóflóðið á Flateyri

    Allir sem muna snjóflóðið á Flateyri 1995 vita hversu gríðarþungt höggið var. Öll þjóðin var harmi slegin. En vitaskuld var áfallið mest og þyngst fyrir Vestfirðinga, Flateyringa – fólkið sem missti heimili sín, ættingja og vini, glataði í senn fortíð sinni og þeirri framtíð sem hefði átt að bíða.

    Sóley Eiríksdóttir var ellefu ára gömul, ein heima með systur sinni og vini hennar, nóttina afdrifaríku sem flóðið féll og splundraði húsinu þeirra og mörgum húsum í grennd. Klukkustundum saman lá hún undir snjófarginu meðan örvæntingarfullt björgunarfólk hamaðist við leit í öngþveitinu sem ríkti í þorpinu. Sóley var heppin; hún lifði af. Ekki systir hennar og nítján aðrir.

    Hér segir Sóley sögu sína og fólksins síns, sem jafnframt er saga byggðarinnar á Flateyri fyrir og eftir flóð, átakanleg saga en um leið lærdómsrík. Sóley skrifar bókina í samstarfi við Helgu Guðrúnu Johnson.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ríkisfang: Ekkert

    Ríkisfang: Ekkert

    Haustið 2008 flúðu átta fjölskyldur skelfilegar aðstæður í Al Waleed-flóttamannabúðunum og fengu hæli á Akranesi. Allt voru þetta einstæðar mæður með börn, af palestínsku bergi brotnar en höfðu alið allan sinn aldur í Írak. En hvað rak þær á flótta?

    Sigríður Víðis kynntist konunum og sögu þeirra og fjallar hér af yfirsýn og þekkingu um landlausa Palestínumenn, innrásina í Írak, flóttamannabúðir í einskismannslandi og leiðina löngu á Skagann. Í forgrunni eru tvær þeirra kvenna sem hingað komu: Ayda sem varð að skilja elsta barnið sitt eftir í Írak og Lína sem flúði ásamt þremur ungum börnum og fann hamingjuna á ný á Íslandi.

    Ríkisfang: Ekkert er einstök frásögn um pólitísk átök undangenginna áratuga í Mið-Austurlöndum og fólkið sem lifir og hrærist í skugga þeirra.
    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Vegabréf: Íslenskt

    Vegabréf: Íslenskt

    Í Vegabréf: Íslenskt ferðast Sigríður Víðis Jónsdóttir með lesendum um heiminn, heimsækir til að mynda brunadeild á sjúkrahúsi í Afganistan, dvelur í völundarhúsi í Sýrlandi, hittir börn í gullnámu í Búrkína Fasó og kynnist flóttafólki í Suður-Súdan. Í Eþíópíu búa geimverur á Hilton-hótelinu og í Mjanmar hvíslar fólk um stjórnvöld.

    Í gegnum frásagnir af fólki á hverjum stað miðlar Sigríður heimssögunni af einstakri næmni og virðingu og minnir okkur á að þrátt fyrir að höf og eyðimerkur skilji okkur að búum við öll undir sama himni, sömu sól.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Tsjernobyl-bænin

    Tsjernobyl-bænin

    Þann 26. apríl 1986 urðu sprengingar í kjarnakljúfi í Tsjernobyl í Úkraínu sem ollu stærsta kjarnorkuslysi allra tíma. Himinninn logaði og geislunin náði yfir stórt landsvæði. Slysið hafði hörmuleg áhrif á líf hundruði þúsunda mann til frambúðar. Ráðamenn reyndu að þagga það niður. Þetta er vitnisburður þeirra sem eftir lifðu. Tsjernobyl-bænin byggir á hundruðum viðtala hvítrússneska rithöfundarins og blaðamannsins Svetlönu Aleksíevítsj við fólk sem lifði kjarnorkuslysið af. Hún hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2015 ,,fyrir margradda skrif, minnisvarða um þjáningar og hugrekki á okkar tímum“, og hafa bækur hennar verið þýddar á 53 tungumál. Tsjernobyl-þættirnir vinsælu eru að hluta til byggðir á þessari bók.

    3.890 kr.
    Setja í körfu
  • Horses

    Horses

    The Icelandic horse has endured much during its millennium of service to a hard people in a cold land. Blazing trails through lava fields, shuttling between far-flung fjords, starved, drowned and even brought back from the dead. Here we see Iceland’s hardiest helper from every angle, the same beast who first set hoof on Iceland’s shores in the 9th century, through stories free from all the hype and schmaltz of the tourist brochures.

    With their first book, Birds, Hjörleifur Hjartarson and Rán Flygenring dazzled us with Iceland’s fascinating feathered friends. Now they’re back in the saddle with their unique take on Iceland’s iconic equine.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Jarðsetning

    Jarðsetning

    „Við sýnum teikningar og módel af nýjum byggingum og skálum fyrir því þegar þær rísa. Við leggjum hornsteina og höldum reisugilli. Niðurrif og jarðsetning bygginga fer hins vegar iðulega fram í kyrrþey.“ Með hversdagslíf borgarinnar í bakgrunni fléttar höfundurinn frásögn af lífi og dauða byggingar saman við sögu hugmynda og sína eigin sögu. 
    Í Jarðsetningu fer höfundur með lesendur inn í stórhýsi Iðnaðarbankans við Lækjargötu og þaðan á vit hugmynda og drauma sem búa í hinu byggða.Anna María Bogadóttir arkitekt hefur gefið út bækur um arkitektúr og manngert umhverfi og ritstýrt bókum um sama efni. Í Jarðsetningu brúar hún bilið milli arkitektúrs og bókmennta í frumlegum texta og lifandi myndum.Samhliða bókinni gerði Anna María kvikmyndina Jarðsetning þar sem áhorfendur verða vitni að niðurrifi byggingarinnar og mæta afli vélarinnar og kröftum náttúrunnar. Upptökur fóru fram á árunum 2017-2018 og hvílir bankabyggingin nú á urðunarstöðum á höfuðborgarsvæðinu. Í bókinni eru bæði stillur úr kvikmyndinni og ljósmyndir eftir Önnu Maríu auk ljósmynda úr miðborg Reykjavíkur frá miðri 20. öld.

    Bókin er gefin út í samstarfi við Úrbanistan.

    7.990 kr.
    Setja í körfu
  • Fuglar

    Fuglar

    Varúð!

    Þetta er ekki góð fuglagreiningarbók. Fuglarnir í henni eru illa teiknaðir og textinn fullur af fordómum og tilgerð. Vert er að hafa það í huga við lesturinn. Hafir þú hins vegar áhuga á krassandi sögum af áhættusækni, skrautfíkn og ástarlífi íslenskra fugla, og hvers kyns sérvisku sem tengist þeim, þá er þetta rétta bókin fyrir þig.

    Falleg bók um íslenska fugla fyrir alla fjölskylduna. Spéfuglarnir Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring draga fram helstu sérkenni fuglanna í máli og myndum án þess að taka sig of alvarlega og niðurstað er einstök og óvenjuleg en um leið fræðandi bók um íslenska fugla.

    5.890 kr.
    Setja í körfu
  • On Time and Water

    On Time and Water

    3.690 kr.
    Setja í körfu
  • Iðnríki okkar daga
  • Placeholder
  • Ár var alda

    Ár var alda

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder

    Cicero og samtíð hans

    1.490 kr.
    Setja í körfu