• Rigning í nóvember

    Rigning í nóvember

    Þannig horfir þetta við mér nú þegar ég lít um öxl og man þetta kannski ekki alveg í réttri röð. Allavega, þá stöndum við þétt saman fyrir miðri myndinni, ég held um axlirnar á honum og hann heldur líka einhversstaðar í mig – eðli málsins samkvæmt frekar neðarlega ég er með dökkbrúnan lokk niður á mjög fölt enni, hann brosir breitt og heldur á einhverju í lokuðum lófanum sem hann réttir fram.

    Á þeim orðum hefst verðlaunaskáldsaga Auðar Ólafsdóttur. Ung kona stendur á tímamótum. Hún stígur upp úr volgri hjónasæng og heldur í ævintýralegt ferðalag um myrkt og blautt landið. Með í för er heyrnarlaust barn sem henni hefur verið falið að gæta. Þar með hefst leit að týndum þræði og stefnu-
    mót við heim handan orða. Heitir líkamar, matur, nærgöngul samskipti og leyndarmál úr fortíðinni mæta söguhetjunni í kaldri nóvemberrigningunni.

    Rigning í nóvember hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2004.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Ólyfjan

    Ólyfjan

    Lífið er bara eitt stórt djók. Nei, svona í alvöru, sagði hann og yggldi sig framan í hana eins og til að segja að þar væri hún ekki undanskilin. Um leið og hann sleppti orðinu hugsaði hann með sér að hann hlyti að vera hálfgerður snillingur fyrir að hafa fundið upp á þvílíkri lífsspeki. Eða átti þetta kannski einungis við hans líf? Að hann væri djókið? Brandari bæjarins.

    Ólyfjan er fyrsta skáldsaga Díönu Sjafnar Jóhannsdóttur. Eitruð karlmennska og skáldsagnaformið allt er undir í þessari frumraun höfundar.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Hvíti ásinn

    Hvíti ásinn

    Það er fátt venjulegt við Iðunni sem býr í felum og lítur ekki út eins og aðrir unglingar. En það er líka fátt venjulegt við hvernig heimurinn er orðinn. Þegar Iðunn flytur á Himinbjörg eftir óvænta atburðarás breytist líf hennar svo um munar. Hún sér í hillingum að fá loks að tilheyra umheiminum en í ljós kemur að ekki er allt sem sýnist í Vígisfirði og líf hennar á eftir að taka allt aðra stefnu en hún heldur.

    Hvíti ásinn er fyrsta bók Jóhönnu Sveinsdóttur. Í bókinni fléttast heimur ása og vætta saman við framtíðina á spennandi og ævintýralegan hátt.

    5.890 kr.
    Setja í körfu
  • Úlfur og Ylfa: Sumarfrí

    Úlfur og Ylfa: Sumarfrí

    Úlfur og Ylfa eru bestu vinir. Þau eru komin í sumarfrí og eru á leið í ferðalag með mömmum hans Úlfs. Þau ætla að keyra alla leið á Vestfirði og að sjálfsögðu slæst hundurinn Bósi Ljóshár með í för. Vinanna bíða mörg ævintýri á áfangastað, bæði náttúruundur og nýir vinir og þau taka þátt í spennandi keppni.

    Höfundar bókarinnar eru Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir sem halda úti fræðsluvettvanginum Hinseginleikinn. Bókin er önnur í röðinni um vinina Úlf og Ylfu. Bókaflokknum er ætlað að fagna fjölbreytileikanum með því að sýna hann í allri sinni dýrð í skemmtilegum sögum fyrir hressa krakka. Fallegar myndir bókarinnar teiknaði Auður Ýr Elísabetardóttir.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder

    Ljósbrot

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Berlínarbjarmar

    Berlínarbjarmar

    6.390 kr.
    Setja í körfu
  • Mamma sandkaka

    Mamma sandkaka

    4.590 kr.
    Setja í körfu