
Babúska
990 kr.Unglingsstúlka verður fyrir bíl fyrir framan Þjóðleikhúsið og lætur lífið. Eina vitnið að þessum atburði er Svetlana, rússneskur bókmenntafræðingur sem skúrar gólfin í Arnarhvoli. Hún hjólar burt grunlaus um þær skelfingar sem af þessu hljótast. Norður í Urriðavík stendur öll sveitin á öndinni vegna dularfullra morða og reimleika. Birta var fjórtán ára niðursetningur sem hengdi sig úti í fjósi fyrir hundrað árum. Hún gengur nú aftur og er kennt um voðaverkin. Hvernig tengjast þessi mál?
Hallveig Thorlacius leysir gátuna í grípandi og spennandi frásögn sem er ekki laus við gráglettni og þjóðfélagsgagnrýni.

Ég var nóttin
990 kr.Ungur laganemi leigir kjallaraherbergi í stóru einbýlishúsi í Þingholtunum. Leigusalarnir eru roskin hjón sem lifa í fortíðinni. Smám saman áttar stúdentinn sig á að þau eru ekki öll þar sem þau eru séð.
Eftir alllangt hlé sendir Einar Örn Gunnarsson nú frá sér nýja skáldsögu, Ég var nóttin. Sagan er frásögn ungs laganema sem leigir kjallaraherbergi í stóru einbýlishúsi í Þingholtunum í Reykjavík árið 1985. Húsið var á sínum tíma með fallegustu glæsihýsum borgarinnar en er nú í niðurníðslu. Leigusalarnir eru roskin hjón, undarleg í háttum og lifa í fortíðinni og draumórum sínum. Sögumaður er varaður við hjónunum en smám saman aukast samskipti pilts við þau. Með tímanum fer hann að átta sig á að þau eru ekki öll þar sem þau eru séð. Þessi saga styðst við Næðing, skáldsögu höfundar frá árinu 1990.




Bréf til Maríu
990 kr.Hvert voru helstu ráðamenn Íslands að fara í loftbelg?
Hvað teiknaði Sæmundur fróði á kofavegginn í París?
Til hvers er þýðillinn notaður?
Sköpuðu sund-apar tungumálið?
Hvaða tónlist hljómar undir dansi í Dimmuborgum?
Hverjir sigla á uppistöðulónum virkjana á Austurlandi?
„Bókin er hinn mesti skemmtilestur og raunar sprenghlægileg á köflum. Það er sjaldgæfur eiginleiki á bók um hugmyndasögu en slíkar bækur eru þar að auki fágæti hérlendis.“
Þröstur Helgason – Lesbók Morgunblaðsins 21. apríl 2007„Einari tekst að glæða sína einföldu bréfræðu slíku lífi með tungutaki og orðaforða að textinn leiftrar hvar sem gripið er niður.“
Viðar Þorsteinsson – Viðskiptablaðið 24. maí 2007„Bréf til Maríu er hressilegur gustur um hjalla mannvísindanna og slær hroll að ýmsum við þann lestur.“
Páll Baldvin Baldvinsson – Fréttablaðið 16. júní 2007„Bréf til Maríu hefur þann höfuðkost að strax er maður gripinn fögnuði yfir að sjá móðurmáli sínu beitt af kunnáttu við að móta hugsunina.”
Kristján B. Jónasson – Herðubreið ágúst 2007
