Availability: Á lager

Bréf til Maríu

SKU: SKLD0BREMAR

990 kr.

Hvert voru helstu ráðamenn Íslands að fara í loftbelg?

Hvað teiknaði Sæmundur fróði á kofavegginn í París?

Til hvers er þýðillinn notaður?

Sköpuðu sund-apar tungumálið?

Hvaða tónlist hljómar undir dansi í Dimmuborgum?

Hverjir sigla á uppistöðulónum virkjana á Austurlandi?

„Bókin er hinn mesti skemmtilestur og raunar sprenghlægileg á köflum. Það er sjaldgæfur eiginleiki á bók um hugmyndasögu en slíkar bækur eru þar að auki fágæti hérlendis.“
Þröstur Helgason – Lesbók Morgunblaðsins 21. apríl 2007

„Einari tekst að glæða sína einföldu bréfræðu slíku lífi með tungutaki og orðaforða að textinn leiftrar hvar sem gripið er niður.“
Viðar Þorsteinsson – Viðskiptablaðið 24. maí 2007

„Bréf til Maríu er hressilegur gustur um hjalla mannvísindanna og slær hroll að ýmsum við þann lestur.“
Páll Baldvin Baldvinsson – Fréttablaðið 16. júní 2007

„Bréf til Maríu hefur þann höfuðkost að strax er maður gripinn fögnuði yfir að sjá móðurmáli sínu beitt af kunnáttu við að móta hugsunina.”
Kristján B. Jónasson – Herðubreið ágúst 2007

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2007

Tungumál

Blaðsíður

350

Form

Kilja

Ástand

notuð