• Vísnabókin

    Vísnabókin

    Fáar bækur hafa fylgt íslenskum börnum lengur en Vísnabókin; sígilt safn Símonar Jóh. Ágústssonar af kvæðum sem höfða til barna, prýtt bráðskemmtilegum teikningum Halldórs Péturssonar.

    Bókin kom fyrst út árið 1946 en með tímanum var aukið við hana bæði vísum og teikningum sem hafðar eru með í þessari nýju og gullfallegu útgáfu.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Leitin að fjarskanum
  • Haust í Heiðmörk

    Haust í Heiðmörk

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Úr hugskoti

    Úr hugskoti

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder
  • Ævi mín og sagan sem ekki mátti segja

    Ævi mín og sagan sem ekki mátti segja

    Er Björn Sv. Björnsson kom heim til Íslands árið 1946 eftir að hata setið í fangelsi í Danmörku sakaður um stríðsglæpi beið faðir hans, forseti Íslands, komu hans á Bessastöðum. Hann tók af Birni loforð um að segja sögu sína aldrei. Síðan var ferill hans á styrjaldarárunum þoku hulinn.

    Hver var raunverulega saga forsetasonarins sem varð foringi í hersveitum Hitlers, sat í fangelsi sakaður um stríðsglæpi, kom heim til Íslands en flutti síðan til Suður-Ameríku þangað sem fjölmargir liðsmenn Hitlers leituðu eftir stríð? Af hverju varðist hann aldrei þeim óhróðri sem á hann var borinn?

    Danir kölluðu hann „manninn á bak við áróður Þjóðverja í Danmörku“. Um hann og verk hans spunnust ótal sögusagnir manna á meðal og ekki var minna skrafað um lausn hans úr fangelsi. Voru sögurnar sannar? Um það fengust engin svör, því að Björn hélt loforðið er hann gaf foreldrum sínum um að ræða aldrei þetta tímabil ævi sinnar og hafa ekkert samband við fyrri félaga.

    Eftir heimkomuna hafði Björn á sér svartan stimpil í augum margra samferðarmanna sinna og ef til vill dæmdu þeir hann harðast, sem minnst vissu. Ferill hans var litríkur og ævintýralegur og spor hans hafa víða legið, en jafnan hefur þó hvílt skuggi yfir hluta af ævi hans og mörgum spurning- um hefur verið ósvarað. Eftir meira en fjörutíu ára þögn segir hann sögu sína í fyrsta sinn – söguna sem ekki mátti segja.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Urðargaldur

    Urðargaldur

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Ég um mig frá mér til mín
  • Lífsjátning

    Lífsjátning

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Býr Íslendingur hér?

    Býr Íslendingur hér?

    Sagan af kaupmannssyninum úr Reykjavík sem fullur bjartsýni heldur út í heim til að afla sér menntunar en er svikinn í hendur Gestapo og sendur í útrýmingarbúðir nasista í Þýskalandi. Býr Íslendingur hér? er óvenju áhrifamikil frásögn af þeim umskiptum sem verða í lífi ungs Reykvíkings, Leifs Muller, sem elst upp í vernduðu umhverfi heima á Stýrimannastíg 15 en lendir síðan í einhverri mestu þolraun sem Íslendingur hefur lifað.

    Hann er sendur til Sachsenhausen, hinna illræmdu útrýmingarbúða í Þýskalandi, þar sem hann verður fangi númer 68138 – réttlaus þræll meðal þræla. Í þessum nöturlega heimi dregur hann fram lífið og kemst til þroska.

    Ólýsanleg grimmd, þjáningar, miskunnarleysi og mannleg niðurlæging urðu hlutskipti Leifs og særðu hann þeim sárum sem aldrei greru og aldrei gátu gróið. Eftir fjörutíu ára þögn segir hann áhrifamikla sögu sína af hreinskilni og einlægni, sáttur við sjálfan sig og án þess að draga nokkuð undan.

    Brugðið er upp ógleymanlegum myndum af Englendingunum í hegningardeildinni, Ívani litla og Óskari Vilhjálmssyni, gamla manninum sem gat ekki gengið í takt og ungu drengjunum sem féllu í valinn, einir og yfirgefnir – sviptir trú á miskunn Guðs og manna.

    Garðar Sverrisson hefur ritað þessa áhrifamiklu örlagasögu og skapað eftirminnilega og magnaða frásögn sem á engan sinn líka meðal íslenskra ævisagna og snertir djúpt alla sem hana lesa – snertir þá og minnir á ábyrgðina sem fylgir því að vera maður.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ljóð vega gerð

    Ljóð vega gerð

    Ljóð vega gerð er þriðja og síðasta bindi Ljóðvegasafns Sigurðar Pálssonar. Hann vakti snemma athygli fyrir persónulegan og ferskan ljóðstíl.

    Fyrri bækur hans tvær, Ljóð vega salt og Ljóð vega menn eru meðal þess lífvænlegasta í íslenskum skáldskap síðustu ára. Í þessari nýju bók eru eins og í hinum fyrri ljóðaflokkar þar sem mismargar atrennur eru gerðar að einhverju heildarviðfangsefni enda þótt hvert ljóð standi sem sjálfstæð heild.

    Yrkisefnin eru fjölbreytt og skírskotanir margvíslegar. Við sjáum að bernskuslóðir, höfuðborg og heimsborg eru enn á sínum stað og sömuleiðis hugsun Sigurðar um tíma og rými og ferðalag í margs konar skilningi.

    Tungumálið er krafið sagna um sjálft sig og okkur hin og vegferð okkar á ljóðvegum.

    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Vinur vors og blóma