• Vargöld: Þriðja bók

    Vargöld: Þriðja bók

    Í vægðarlausri veröld Óðins eru mönnum sköpuð örlög – og ekki alltaf blíð.

    Vargöld er metnaðarfull myndasaga um goð og menn á heiðnum tíma sem hefur ekki aðeins hlotið lof lesenda heldur einnig tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Reykjavíkurborgar. 

    Hér má finna lokakafla þessarar miklu sögu: Líf og Dauða. 

    Komið er að leiðarlokum. Vikar á óvænta endurfundi við ástina en Óðinn vill ekki leysa hann úr þjónustu sinni. Enda er heimurinn er á heljarþröm: sjálf goðin takast á og það hriktir í stoðum veraldarinnar.
    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Eitur í augum

    Eitur í augum

    Húsfreyjan í Hvömmum er farin að huga að hjónabandi. Ekki þó sínu eigin, enda virðast draumar Bergþóru um að verða lögmannsfrú orðnir að engu. Henni bráðliggur hins vegar á að gifta kornunga fósturdóttur sína og reynist ekki þurfa að leita langt eftir hentugum eiginmanni. Ráðahagurinn á eftir að bjarga orðstír margra en einnig vekja sorg og reiði – og áður en langt um líður finnst maður í andarslitrunum eftir að hafa verið byrlað kransaugnaeitur.

    Eitur í augum er lokabindi þríleiksins um hina ráðsnjöllu Bergþóru í Hvömmum, sem er jafn lunkin við að leysa morðmál og að koma sér og sínum undan þungum refsingum Stóradóms og útskúfun samfélagsins. Hér blandast ófyrirsjáanleg flétta, leyndardómsfullir glæpir og eldheit ástarsaga saman við heillandi – en harðneskjulegt – andrúmsloft 18. aldar.

    Nanna Rögnvaldardóttir á að baki langan og farsælan feril sem höfundur bóka um matreiðslu og matarsögu. Hún hefur nú snúið sér að ritun sögulegra skáldsagna sem hlotið hafa frábærar viðtökur.

    8.690 kr.
    Setja í körfu
  • Ég um mig frá mér til mín
  • Stúlkan í skóginum

    Stúlkan í skóginum

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Þögnin

    Þögnin

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Í sumardölum

    Í sumardölum

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Here is Iceland!

    Here is Iceland!

    Every spring, over fifty species of migratory birds come to Iceland and lay their eggs in the mild and bright Arctic summer. In the winter snow covers the ground and Northern Lights light up the sky. In Here is Iceland you can read all about this volcanic island: its birds and mammals, mountains and shores, hot springs and geysers, people and culture – through spring, summer, fall and winter.

    Here is Iceland! by Margrét Tryggvadóttir and Linda Ólafsdóttir was welcomed by Icelandic readers of all ages. The book was nominated for the Icelandic Literary Award and received the Women’s Literary Award, the Reykjavík City Literary Award for illustrations, and the award of the Association of Icelandic Graphic Designers.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Þetta er þitt líf

    Þetta er þitt líf

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Væringinn mikli – Ævi og örlög Einars Benediktssonar
  • Vísnabókin

    Vísnabókin

    Fáar bækur hafa fylgt íslenskum börnum lengur en Vísnabókin; sígilt safn Símonar Jóh. Ágústssonar af kvæðum sem höfða til barna, prýtt bráðskemmtilegum teikningum Halldórs Péturssonar.

    Bókin kom fyrst út árið 1946 en með tímanum var aukið við hana bæði vísum og teikningum sem hafðar eru með í þessari nýju og gullfallegu útgáfu.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Here is Reykjavík!

    Here is Reykjavík!

    Did you know that Reykjavík used to be only a few houses on one street? And that once upon a time, people lived in army barracks where Hallgrímskirkja now stands?

    Here is Reykjavík! tells the story of Iceland’s capital city, from before the arrival of the first human beings until it became the lively and diverse city we know now. Through words and pictures, it describes society and culture, apartment buildings and road networks, skating rinks and sewers, beautiful views and outdoor areas, and all sorts of other things you will find in Reykjavík.

    Margrét Tryggvadóttir and Linda Ólafsdóttir gathered great praise for their book Here is Iceland! Now they turn the spotlight on Reykjavík, the capital of Iceland. The result is a beautiful work of art that is full of interesting information for the entire family.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Leitin að fjarskanum
  • Haust í Heiðmörk

    Haust í Heiðmörk

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Minn hlátur er sorg

    Minn hlátur er sorg

    Hún var skapheit og ástríðufull listakona sem bjó yfir miklum hæfileikum, en ljós og skuggar tókust á um líf hennar og sál. Hún var dáð og fyrirlitin,
    elskuð og fordæmd. Hennar biðu um síðir bitur örlög. Í þessari einstæðu ævisögu er lífsporsta, brestum og óblíðri ævi Ástu Sigurðardóttur lýst af næmri samkennd og innsæi.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Úr hugskoti

    Úr hugskoti

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Placeholder

    Lífið er skáldlegt

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Ævi mín og sagan sem ekki mátti segja

    Ævi mín og sagan sem ekki mátti segja

    Er Björn Sv. Björnsson kom heim til Íslands árið 1946 eftir að hata setið í fangelsi í Danmörku sakaður um stríðsglæpi beið faðir hans, forseti Íslands, komu hans á Bessastöðum. Hann tók af Birni loforð um að segja sögu sína aldrei. Síðan var ferill hans á styrjaldarárunum þoku hulinn.

    Hver var raunverulega saga forsetasonarins sem varð foringi í hersveitum Hitlers, sat í fangelsi sakaður um stríðsglæpi, kom heim til Íslands en flutti síðan til Suður-Ameríku þangað sem fjölmargir liðsmenn Hitlers leituðu eftir stríð? Af hverju varðist hann aldrei þeim óhróðri sem á hann var borinn?

    Danir kölluðu hann „manninn á bak við áróður Þjóðverja í Danmörku“. Um hann og verk hans spunnust ótal sögusagnir manna á meðal og ekki var minna skrafað um lausn hans úr fangelsi. Voru sögurnar sannar? Um það fengust engin svör, því að Björn hélt loforðið er hann gaf foreldrum sínum um að ræða aldrei þetta tímabil ævi sinnar og hafa ekkert samband við fyrri félaga.

    Eftir heimkomuna hafði Björn á sér svartan stimpil í augum margra samferðarmanna sinna og ef til vill dæmdu þeir hann harðast, sem minnst vissu. Ferill hans var litríkur og ævintýralegur og spor hans hafa víða legið, en jafnan hefur þó hvílt skuggi yfir hluta af ævi hans og mörgum spurning- um hefur verið ósvarað. Eftir meira en fjörutíu ára þögn segir hann sögu sína í fyrsta sinn – söguna sem ekki mátti segja.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Lífsjátning

    Lífsjátning

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Býr Íslendingur hér?

    Býr Íslendingur hér?

    Sagan af kaupmannssyninum úr Reykjavík sem fullur bjartsýni heldur út í heim til að afla sér menntunar en er svikinn í hendur Gestapo og sendur í útrýmingarbúðir nasista í Þýskalandi. Býr Íslendingur hér? er óvenju áhrifamikil frásögn af þeim umskiptum sem verða í lífi ungs Reykvíkings, Leifs Muller, sem elst upp í vernduðu umhverfi heima á Stýrimannastíg 15 en lendir síðan í einhverri mestu þolraun sem Íslendingur hefur lifað.

    Hann er sendur til Sachsenhausen, hinna illræmdu útrýmingarbúða í Þýskalandi, þar sem hann verður fangi númer 68138 – réttlaus þræll meðal þræla. Í þessum nöturlega heimi dregur hann fram lífið og kemst til þroska.

    Ólýsanleg grimmd, þjáningar, miskunnarleysi og mannleg niðurlæging urðu hlutskipti Leifs og særðu hann þeim sárum sem aldrei greru og aldrei gátu gróið. Eftir fjörutíu ára þögn segir hann áhrifamikla sögu sína af hreinskilni og einlægni, sáttur við sjálfan sig og án þess að draga nokkuð undan.

    Brugðið er upp ógleymanlegum myndum af Englendingunum í hegningardeildinni, Ívani litla og Óskari Vilhjálmssyni, gamla manninum sem gat ekki gengið í takt og ungu drengjunum sem féllu í valinn, einir og yfirgefnir – sviptir trú á miskunn Guðs og manna.

    Garðar Sverrisson hefur ritað þessa áhrifamiklu örlagasögu og skapað eftirminnilega og magnaða frásögn sem á engan sinn líka meðal íslenskra ævisagna og snertir djúpt alla sem hana lesa – snertir þá og minnir á ábyrgðina sem fylgir því að vera maður.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Vinur vors og blóma

    Vinur vors og blóma

    1.290 kr.
    Setja í körfu