Loksins, loksins!

Tvær af vinsælustu bókum Nóbelskáldsins Halldórs Laxness, Sjálfstætt fólk og Salka Valka, hafa verið ófáanlegar innbundnar um nokkurt skeið. Nú hefur Vaka-Helgafell loksins gefið þær út í nýjum búníngi, með sígilda mynstrinu sem Ásgeir Júlíusson hannaði á kápunni og rauðum kili með mynd af skáldinu. Þetta eru sannarlega gleðitíðindi og bækurnar verða vonandi vinsæl útskriftargjöf fyrir nýja kynslóð af Laxnesslesendum.