Forsala á ljóðbókum í Skáldu

Skálda verður með forsölu á tveimur nýjum ljóðabókum frá bókaútgáfunni Benedikt sem eru heldur betur fengur fyrir ljóðaunnendur. Bækurnar eru eingöngu fáanlegar í Skáldu til að byrja með en verður dreift í aðrar bókabúðir síðar í haust. Þeir sem kaupa bækurnar fá þær afhentar um leið í verslun Skáldu, en einnig er boðið upp á heimsendingu í vefverslun.

Fyrst ber að nefna nýja ljóðabók úr smiðju Hannesar Péturssonar, Hjá Leyningsvötnum. Hannes hefur verið meðal höfuðskálda þjóðarinnar í rúma sjö áratugi eða frá því að hann kvaddi sér hljóðs með Kvæðabók árið 1955. Hjá leyningsvötnum er tólfta ljóðabók Hannesar. Skáldinu er vant einskis á árstíð saknaðarins og hefur ekki dregið úr dirfsku sinni við að takast á við nútímann.

Hin bókin er hnausþykkt ljóðaúrval Braga Ólafssonar, Á horni Bayswater Road og Lækjargötu. Verkin eru einkum úr ljóðabókum Braga en einnig úr prósasöfnum og sérritum, auk þess sem nokkur ljóð birtast hér í fyrsta sinn. Óhætt er að segja að Bragi hafi mikla sérstöðu meðal íslenskra ljóðskálda, sem á ekki síður við um verk hans af öðrum toga.

Tryggið ykkur eintak á forsölutilboði í Skáldu.


Hjá Leyningsvötnum

7.290 kr.

Hannes Pétursson hefur verið meðal höfuðskálda þjóðarinnar í rúma sjö áratugi eða frá því að hann kvaddi sér hljóðs með Kvæðabók árið 1955. Hjá Leyningsvötnum er tólfta ljóðabók Hannesar. Skáldinu er vant einskis á árstíð saknaðarins og hefur ekki dregið úr dirfsku sinni við að takast á við nútímann.


Á horni Bayswater Road og Lækjargötu

7.990 kr.

Á horni Bayswater Road og Lækjargötu er úrval ljóða eftir Braga Ólafsson. Verkin eru einkum úr ljóðabókum Braga en einnig úr prósasöfnum og sérritum, auk þess sem nokkur ljóð birtast hér í fyrsta sinn. Óhætt er að segja að Bragi hafi mikla sérstöðu meðal íslenskra ljóðskálda, sem á ekki síður við um verk hans af öðrum toga.