• Sögur & kvæði

    Sögur & kvæði

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Umfjöllun

    Umfjöllun

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Bangsapokinn

    Bangsapokinn

    Bangsapokinn er myndskreytt barnasaga fyrir börn á öllum aldri. Þar segir frá fullum poka af heittelskuðum böngsum sem fyrir mistök mistæks afa lenda í nytjagámi Sorpu. Ógæfan virðist vofa yfir og algjör glötun blasir við þegar í ljós kemur að bangsarnir muni trúlega enda á haugunum. Allt fer þó vel að lokum. Myndir eru eftir Halldór Eldjárn.

    4.490 kr.
    Setja í körfu
  • Jarðtengd norðurljós

    Jarðtengd norðurljós

    Jarðtengd norðurljós inniheldur áður óbirt ljóð af ýmsu tagi, óbundin, háttbundin og yrkisefnin fjölbreytileg.

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Dreymt bert

    Dreymt bert

    Dreymt bert hefur að geyma prósaljóð og/eða örsögur sem áður hafa birst í bókum Þórarins Eldjárns.

    Hér fá textarnir að viðra sig í nýju samhengi og í samspili við nýjar myndir eftir Ingu Maríu Brynjarsdóttur.

    „Smáprósar Þórarins standa föstum fótum í raunveruleikanum og þurfa samt ekki á honum að halda; í þeirri þversögn blómstrar Þórarinn. Skemmtir þar sjálfum sér og lesendum“  segir Jón Kalman Stefánsson í káputexta.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Tættir þættir (notuð)

    Tættir þættir (notuð)

    Þrjátíu og sjö áður óbirtir þættir sem fara úr einu í annað um hitt og þetta. Þar á meðal reynslusögur, minningar, athuganir, viðhorf, áhorf, sagnir og smælki. Auk þess nokkrar ferilskrár. Meðal efnis: Nytjadraumar, Snorralaug í Helgadal, Nokkrar Bessastaðasögur, Þrír Halldórar, Skakkur ansats, Hirðskáldið, Hirðfíflið, Kristmann og Ursus.
    Þrjátíu og sjö áður óbirtir þættir sem fara úr einu í annað um hitt og þetta. Þar á meðal reynslusögur, minningar, athuganir, viðhorf, áhorf, sagnir og smælki. Auk þess nokkrar ferilskrár.Meðal efnis: Nytjadraumar, Snorralaug í Helgadal, Nokkrar Bessastaðasögur, Þrír Halldórar, Skakkur ansats, Hirðskáldið, Hirðfífllið, Kristmann og Ursus, Guðlast í húsi biskups, Köttur frá Steini, Að vega nema og muna, Í safninu.
    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Skuggabox

    Skuggabox

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Kvæðasafn: Þórarinn Eldjárn

    Kvæðasafn: Þórarinn Eldjárn

    Kvæðasafn Þórarins Eldjárns hefur að geyma mikinn skáldskaparfjársjóð: allar ljóðabækur hans sem komnar voru út árið 2008, átta talsins, og úrval úr fimm barnaljóðabókum, hátt á fjórða hundrað kvæða alls. Hér má finna afar fjölbreytilegan ljóðaforða: hárbeittar ádeilur, græskulaust gaman, sorg og trega, heimspekilegar vangaveltur, náttúrustemningar, orðaleiki, íhuganir um lífið, söguna, landið og tungumálið. Mörg ljóðanna eru bundin í rím og stuðla en önnur lausbeislaðri í formi endar er skáldið jafnvígt á ýmis ólík stílbrögð orðlistarinnar.

    Í þessu safni eru átta ljóðabækur Þórarins birtar í heild sinni ásamt úrvali úr fimm barnaljóðabókum hans. Ljóðabækurnar eru: Kvæði (1974), Disneyrímur (1978), Erindi (1979), Ydd (1984), Hin háfleyga moldvarpa (1991), Ort (1991), Hættir og mörk (2005) og Fjöllin verða að duga (2007). Barnaljóðin eru úr bókunum Óðfluga (1991), Heimskringla (1992), Halastjarna (1997), Grannmeti og átvextir (2001) og Gælur, fælur og þvælur (2007).

    Þórarinn Eldjárn er eitt ástsælasta ljóðskáld samtímans hér á landi, jafnt meðal barna og fullorðinna. Sum af  eldri ljóðum hans eru torfengin eða ófáanleg og er því mikill fengur að safninu.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Hlutaveikin

    Hlutaveikin

    6.390 kr.
    Setja í körfu
  • Landnamshistorier

    Landnamshistorier

    Tre fortællinger om islandske bosættelser i forskellige tidsaldre.

    Þórarinn Eldjárn er en af Islands populæreste forfattere, kendt og beundret for sine digte og børnerim, noveller og romaner, med de tragikomiske indslag, som de ofte indeholde

    2.490 kr.
    Setja í körfu
  • Premiers colons

    Premiers colons

    Trois histoires sur le peuplement de l’Islande à différentes époques.

    Þórarinn Eldjárn, l’un des auteurs les plus estimés des Islandais est connu et apprécié pour sa poésie, ses poèmes pour enfants, ses romans et nouvelles où il donne libre cours à un brio tragi-comique.

    2.490 kr.
    Setja í körfu
  • Landnámur

    Landnámur

    Sögurnar þrjár sem hér birtast fjalla allar um einhvers konar landnám, síðbúið, vanbúið eða hreinlega búið.

    Brauðið er upphafskafli Skuggabox (1988) en hefur lifað sjálfstæðu lífi.

    Í Keflvíkingasögu (1992) og Önsu (1998) er landnámsþemað síðan spunnið áfram út frá óvenjulegri þráðarsjón.

    2.490 kr.
    Setja í körfu