
Our World: Iceland
3.890 kr.Góðan daginn! Spend a day in Iceland eating hafragautur for breakfast, visiting the farm in the countryside, and driving past volcanoes and the northern lights. Even learn words in Icelandic with pronunciation guides throughout the story.

Rækjuvík
6.390 kr.Eftir langan, dimman vetur og vægast sagt glatað vor, er sólin loksins mætt til Reykjavíkur. Tvíburasystkinin Inga og Baldur eru komin í sumarfrí og forvitni þeirra er vakin þegar þau finna dularfullt flöskuskeyti. Þau ákveða að rannsaka málið á sinn einstaka hátt og ævintýri hversdagsins hefjast!
Bókinni fylgja alls konar aukahlutir! Kíktu í vasann aftast til að svala forvitninni!
Rækjuvík er þriðja bókin um tvíburana uppátækjasömu en áður hafa komið Grísafjörður og Héragerði. Fyrri bækurnar voru hlaðnar lofi og hlutu alls konar tilnefningar og verðlaun.
Rækjuvík er bráðskemmtileg, fyndin, litrík og falleg bók um systkini sem eru jafn ólík og dagur og nótt. Hún er sjálfstætt framhald Grísafjarðar og Héragerðis. Lóa Hlín hefur tvívegis hlotið Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar, verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna, Barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs og Vestnorrænu barnabókaverðlaunanna. Bækur hennar hafa verið valdar bækur ársins af bóksölum landsins og Morgunblaðinu.

Einn góðan veðurdag
3.890 kr.Góðan daginn! Eigum við að koma saman í sveitina? Hér er á ferðinni falleg harðspjaldabók eftir Ævar Þór með myndum eftir Lóu Hlín fyrir yngstu kynslóðina.
Það er gott veður í dag. Eigum við að kíkja í sveitina?
Ævar Þór Benediktsson hefur skrifað ótrúlega margar barnabækur og búið til alls konar efni fyrir bæði sjónvarp og útvarp. Hann ólst líka upp í sveitinni sem þú lest um þessari bók!
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir skrifar og teiknar bækur fyrir börn og stundum semur hún líka brandara fyrir fullorðna og syngur í hljómsveit. Þegar hún var lítil hjálpaði hún til við sauðburðinn í sveitinni hjá frænku sinni.


