Availability: Á lager

FNÆS

SKU: SALFNAE

11.990 kr.

Í Fnæs birtast á mjög mörgum blaðsíðum fimm ár af fnæsi yfir öllu frá hversdeginum til heimsmála. Stundum er fnæst af gleði, stundum af reiði og stundum af uppgjöf. Myndasögurnar í bókinni spegla sameiginlega reynslu samfélags sem er oft flókin en oft svo fyndin. Ófullkomleiki manneskjunnar, uppeldi, heimur á vonarvöl, hópefli, menningararfurinn, rútína, sérviska og jólin – ekkert er Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur óviðkomandi. Og við megum alltaf leyfa okkur að hlæja smá, meira að segja að hlutum sem eru óþolandi.

„Með síkvikum huga rannsakar Lóa bæði stóru og litlu brestina í samfélaginu okkar og í tilverunni allri. Hún sér hið óbærilega og gerir svo úr því eitthvað óbærilega fyndið.“ – Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2026

Tungumál

Form

Innbundin