
Heiman eg fór
1.290 kr.Heiman eg fór er eitt af æskuverkum Halldórs Laxness. Bókin er skrifuð árið 1924 en var gefin út árið 1952.
Halldór Laxness blandar hér saman frásögnum af æsku sinni og uppvexti og skáldskap. Höfundurinn er ungur og ferskur, sjálfslýsing hans opinská og einlæg. Hugur hans er fullur af stórbrotnum hugmyndum um hann sjálfan og lífið en um leið þjáist hann af nagandi efasemdum um allt.
Í Heiman eg fór kemur fram afstaða höfundar til þess hvað sé í frásögur færandi: „Það sem hefur komið fyrir sál mína er efni í bók.“ Og þetta viðhorf hefur meðal annars gert skáldskap Halldórs Laxness hjartfólginn íslensku þjóðinni.


Kvæðakver
1.290 kr.Þessi nýja útgáfa Kvæðakvers hefur að geyma kvæði Halldórs Laxness frá löngum ferli. Hér er að finna mörg ástsælustu ljóð þjóðarinnar, skáldskap sem nánast hefur ort sig inn í þjóðarvitundina, oft fyrir tilstilli fremstu tónskálda okkar.
Þegar Kvæðakver kom fyrst út, árið 1930, þótti það allnýstárlegt. Þar komu fram djarfar tilraunir til að leysa íslenskt ljóðmál úr viðjum hins hefðbundna forms og tónninn var ögrandi. Í ljóðunum mátti finna háðska ádeilu, stælingar og gamanmál, uppreisn gegn fáfengilegu orðaprjáli og uppblásnum hátíðleik.
Í annarri útgáfu Kvæðakvers 1949 var fjölda ljóða aukið við og nú hefur enn verið bætt í safnið kvæðum úr skáldsögum og leikritum höfundar sem ekki hafa fyrr ratað í kverið.
Í pistli í bókarlok greinir Halldór Laxness frá hvar og hvenær einstök kvæði eru ort og varpar ljósi á baksvið þeirra.








