• Landkostir – úrval greina um sambúð lands og þjóðar, 1927-1984

    Landkostir – úrval greina um sambúð lands og þjóðar, 1927-1984

    Allan sinn höfundarferil var Halldór Laxness ötull samfélagsrýnir og skrifaði beittar ritgerðir og blaðagreinar samhliða skáldskapnum.

    Það ríkti aldrei lognmolla í skrifum hans og hann var óhræddur við að tyfta samlanda sína og taka sér stöðu barnsins sem bendir á klæðleysi keisarans. Mörgum mislíkaði hreinskiptni skáldsins og óbilgirni gagnvart heimsku og heimóttarskap, en öðrum urðu þessar gagnrýnu greinar ómetanlegur innblástur.

    Hér hefur verið safnað saman greinum sem Halldór skrifaði á löngu árabili um sambúð lands og þjóðar – umhverfið sem við hrærumst í og umgengni okkar við það. Sumar greinanna bera augljós merki þess að vera innlegg í deilumál síns tíma, aðrar hafa víðari skírskotun, en allar eiga þær erindi við samtímann, ýmist sem merkilegar heimildir um málefni sem brunnu á fólki á liðinni öld eða sem sígild sannindi og áríðandi boðskapur sem ekki fyrnist.

    Halldór Þorgeirsson valdi greinarnar.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Gjörningabók

    Gjörningabók

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Alþýðubókin

    Alþýðubókin

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Sjöstafakverið

    Sjöstafakverið

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Þjóðhátíðarrolla

    Þjóðhátíðarrolla

    Þetta ritgerðasafn, sem helgað er þjóðhátíð Íslendinga 1974, hefst á nafntogaðri ræðu höfundar á Þingvöllum 28. júlí. Á eftir fara ritgerðir um forna bókmenntasögu Íslendinga; Forneskjutaut, útfrá átrúnaði í fornöld og siðaskiptunum árið 1000, og Hvað var á undan íslendingasögum?, sem rekur á nýjan hátt samhengi fornbókmenntanna og skilning vorn á þeim gegnum Íslandssöguna. Báðar greinarnar eru stórmerkt framlag til þeirrar lífrænu sögulegu og fagurfræðilegu umræðu um fornbókmenntirnar, sem Halldór Laxness hefir lengi haldið uppi. Það eru einkum þessar greinar ásamt mörgum mannlýsingum, sem skipa Þjóðhátíðarrollu á bekk með beztu ritgerðasöfnum höfundar.

    K. K.

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Þættir

    Þættir

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Reisubókarkorn

    Reisubókarkorn

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Sjálfsagðir hlutir
  • Guðsgjafaþula

    Guðsgjafaþula

    Guðsgjafaþula er rituð í endurminningastíl með tilstyrk „sögumanns“, greinargerð um liðið tímabil. Þessi sögumaður er rithöfundur, en verzlar líka með fugla. Hann kemur fyrst við í frásögn sinni árið 1920 í Kaupmannahöfn, þarnæst 1938 í norðlenzk-vestfirzku síldarplássi, Djúpvík. Og loks í London eftir síðara stríð. Þetta er hið mikla „tímabil norðurlandssíldarinnar“. Aðalsöguhetjan, Bersi Hjálmarsson, Íslandsbersi öðru nafni, er síldarspekúlant af þeirri tegund, sem uppi var í þann tíð. Reyndar er þessi síldarkaupmaður varla neinnar tegundar, hann er náttúrufyrirbæri og sögulegt undur. Hann er sömuleiðis einhver skemmtilegasta persóna, sem komið hefur fyrir í sögum Halldórs Laxness.

    Síldin er alls staðar í baksýn, dularfull, óútreiknanleg, einnig þegar hún er komin á land. Henni fylgir rökleysi í lífi manna og athöfnum. Guðsgjafaþula er mikill aldarspegill. Siöalögmál, trú, pólitík, einkum verklýöspólitík þessa tíma, hættir manna, hugmyndir og búnaður, allt birtist í óvæntu og stundum miskunnarlausu ljósi. Samt er frásögn sögumanns blandin mikilli mildi. Hann er gestur í heimi athafnanna. Og það er Bersi Hjálmarsson reyndar líka. Hann er a.m.k. af tveimur heimum. En um það fjallar sagan.

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Og árin líða

    Og árin líða

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Úngur eg var

    Úngur eg var

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Reisubókarkorn

    Reisubókarkorn

    1.290 kr.
    Setja í körfu