Availability: Á lager

Enn er morgunn

SKU: SKLD0ENNMOR

1.290 kr.

Í góulok 1936 kemur til Reykjavíkur ungur þýskur tónlistarmaður að nafni Jóhannes Kohlhaas. Hann er af gyðingaættum og hefur á ævintýralegan hátt hrakist undan nasistum, sem fara mikinn í heimalandi hans. Menningarlíf hins unga höfuðstaðar nýtur hæfileika Jóhannesar, hann aðlagast fljótt og finnur ástina.

En það eru viðsjárverðir tímar, styrjöld að brjótast út í Evrópu og jafnvel hér á þessu litla og friðsæla landi, þar sem Knudsensfjölskyldan virðist hafa alla þræði í hendi sér, eru útsendarar erlendra ríkja að störfum. Það er fylgst með fólki og skýrslur skrifaðar, flokkað, stimplað og skráð. Og þann 10. maí 1940 hernema Bretar Ísland…

Enn er morgunn er söguleg skáldsaga eftir Böðvar Guðmundsson, hinn ástsæla höfund bókanna um ferðir Íslendinga til Vesturheims á 19. öld – Híbýli vindanna og Lífsins tré. Líkt og þar er umfjöllunarefni þessarar bókar ólíkir heimar sem mætast, þótt sögutíminn og sögusviðið sé annað. Hér er í forgrunni kraftmikil örlagasaga manns og konu sem elska hvort annað, meðan allur hinn siðmenntaði heimur fer á annan endann. Undir niðri krauma áleitnar spurningar um val einstaklingsins og ábyrgð, um tryggð og fjölskyldubönd, ætt og uppruna, þjóðerni og kynþátt; spurningar um stríð eða frið, líf eða dauða. Mögnuð lesning og öllum holl, ekki síst á tímum þegar svo freistandi er að fella þunga dóma.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2009

Tungumál

Form

Innbundin

Ástand

notuð